Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 401 sýndist ekki ástæða til að leita öllu lengra en 25 ár aftur í tím- ann að flugvísum. Þó kann eg eina flugvísu, sem ort er fyrir 33 árum. Það var sumarið 1928, þegar sjóflugvélin Súlan flaug vestur til ísafjarð- ar og hafði þá, að sjálfsögðu, aldrei fyrr sést slíkur fugl þar vestra. Vakti hann því nokkra undrun manna og athygli. Þá kvað Guðm. E. Geirdal þessa vísu: Hugur manns í hæðir kleif, hristi gnýrinn fjöll og sæinn, er fjaðurvana Súlan sveif syngjandi yfir „rauða“ bæinn. Eg tel vafalítið að þetta sé fyrsta flugvísan, sem ort er hér á landi. Að lokum læt ég svo fylgja hér með fáeinar flugvísur, sem eg hefi gert. Ekki þó af því, að þær séu neitt sérlega athyglisverðar, held- ur geri eg það til að undirstryka framanskráð*a hugmynd, ef þær mættu verða til þess að þeir sem flugvísur hafa ort, eða kunna, létu þær koma fram í dagsljósið. RATVÍSI Viljafastur Faxi svífur, frjálsa tauma heimtar þá. Skýjarastir kaldar klýfur kvikar naumast marki frá. KVEÐJA Langar slóðir ljósvakans léttur vóð með snilli. Borið hróður heimalands hefir þjóða milli. MEÐ HRÍMFAXA Hraður skundar Hrímfaxi, hreina loftið klýfur; yfir Norður-Englandi innan stundar blífur. 31. 7. ’61. Yfir himinhöfin breið hreyfla þrymur veður. Vængjafimur skundar skeið skýabrimið treður. 2. 8. '61. Líkingareikningur ekki kenndur í neinum skóla en nauðsynlegur í daglegu lífi ÞAÐ voru ekki vísindamenn sem fundu upp líkindareikninginn, heldur fjárhættuspilarar á 17. öld. Þeir voru fúsir að veðja við hvern sem var um það, að sér mundi takast að láta 6 koma upp á ten- ing einu sinni í hverjum fjórum köstum. Og svo kom einn og sagði, að ef hann hefði tvo ten- inga, gæti hann kastað tólfunum einu sinni í hverjum 24 köstum. Þetta varð til þess, að franski stærðfræðingurinn Pierre de Fer- Næstu 3 vísurnar eru kveðnar um Gullfaxa hinn eldra, á árunum 1950 —’56, er eg flaug með honum milli landa: FLUGTAK Þrífur sprettinn Faxi fljótt, flýa strangar þrautir. Svífur léttur, skundar skjótt skýa langar brautir. OFAR SKÝUM Veröld er af undrum full, oft má þetta sanna. Skýin breiðast eins og ull undir fótum manna. VIÐ FERÐALOK Fljúgðu, góði Faxi minn frjáls um víða geima. Vafinn gæfu sérhvert sinn sértu aftur heima. Með Gullfaxa hinum nýja, á heim- leið frá Noregi: • Vængjasláttinn þreytir þrátt, þræðir átt í vestur. Líður dátt um heiðið hátt heima brátt er seztur. 20. 8. ’61. mat fór að rannsaka þetta, og hann kom fram með skýringu sína fyrir réttum 309 árum. Og vegna þess að útlistan hans getur skýrt fyrir mönnum hvað líkinda- reikningur er, þá skal hún birt hér: Á hverjum tening eru 6 fletir. Ef hann er nákvæmlega smíðaður og engin skekkja á honum, og hann veltur ekki þegar honum er kastað, þá eru nákvæmlega jafn miklar líkur til þess að upp komi talan 1 og sex, eð*a hver önnur tala þar í milli. Líkurnar til þess að 4 (eða hver önnur tala) komi upp eru því 1:6. Þetta sýnir, að ef nógu oft er kastað, eru líkur til þess að 4 komi upp í 6. hvert skifti. Og eftir því sem oftar er kastað, eftir því eru líkurnar meiri. En þegar tveir teningar eru not- aðir, breytist viðhorfið og útreikn- ingarnir. Skýringin á þessu verð- ur auðskildari ef vér hugsum oss að annar teningurinn sé grænn en hinn rauður. Þegar einum tening er kastað kemur aðeins upp ein tala, það er að segja einhver af hinum sex flötum hans veit upp, og hver flötur er jafn líklegur til þess að koma upp. En hvernig fer nú þegar tveir teningar eru not- aðir? Svarið er, að líkur eru jafn- ar til þess að hver af hinum sex flötum hvors tenings komi upp, en auk þess getur verið sín talan á hvorum tening. Með öðrum orð- um, tölurnar sem upp koma geta verið á 36 mismunandi vegu, eins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.