Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 399 Sigurður og Botler líta eftir hrognun- um. — bilinu. Að vísu er þetta ekki meðaltal, enda veiðitíminn stutt- ur, ekki nema einn mánuður. Hér eru líka heimkynni fugl- anna. Þegar ísa leysir koma þeir þúsundum saman frá suðlægari stöðum og setjast hér að, endur, gæsir og pelikanar. Tilsýndar eru pelikanar ekki ósvipaðir álftum, stórir og hvítir eins og þær. Má vera að Álftaós sé rangnefndur, mönnum hafi sýnzt svanir þar sem pelikanarnir voru. Hjá Álftaósi (Swancreek) var reist klakstöð árið 1927 og hefir verið rekin síðan á hverju vori. Margar slíkar klakstöðvar eru víðs vegar í Manitoba. Á vorin, í öndverðum apríl, þeg- ar snjó fer að leysa, streymir leysingavatnið niður skurðina og fram í ósinn. Straumurinn eyðir ísnum af tjörnum og skurðum löngu áður en vatnið leysir. Pikk- urinn sækir í strauminn til að hrygna. í Álftaósi á hann þó erfitt uppgöngu. Net eru lögð á ská frá báðum bökkum og mynda V-myndaða kví. í broddinum er lítið gat, sem fiskurinn kemst í gegnum. En á bak við er svo lás eða gildra. Þessi net eru fest á staura, sem reknir hafa verið nið- ur með fallhamri. Vitjað er um daglega, pikkur- inn aðgreindur frá öðrum fiskum og settur í sérstakan lás til geymslu, en hinum tegundunum sleppt. í klakstöðinni vinna aðeins ís- lendingar að staðaldri og því er þar venjulegast töluð íslenzka. Yfirmaður er Óskar Sigurðsson, vélstjóri er Einar Nordal og mat- sveinn Þorbergur Eiríksson. En svo eru þarna Marino Nordal, Karl Björnsson, Björn Björnsson, Ger- ald Sigurðsson og Sigurður Brandsson. Stundum þarf einn eða tvo aukamenn ef vel veiðist. Þegar veitt hefir verið nokkra daga og að því komið að fiskurinn hrygni, er hann háfaður upp úr geymslulásnum og hrogn og svil- mjólk strokin niður í bala, sem hafður er í bátnum. Balinn er hálffullur af vatni, og svo er hrært í þessu með hendinni, vel og vandlega. Þegar inn í stöðina kemur eru hrognin látin í þar til gerð glös, og tekur hvert þeirra um 10 lítra. Vatnskrani er yfir hverju glasi og gengur úr honum pípa niður í botn á glasinu og rennur eftir henni ferskt vatn. Stútur er á hverju glasi með síu- hettu, svo að hrognin skolist ekki út með vatninu. Eftir hér una bil 20 daga koma fiskaseiðin úr hrognunum. Viku síðar er þeim svo sleppt í vatnið. En nokkuð af þeim er þó flutt á hverju ári í önnur vötn, þar sem pikkur hefir ekki verið áður. Þegar öll glerílát stöðvarinnar eru full, eru um 150 miljónir hrogna í glösunum. Auðvitað er allt á huldu um hve mikið af seiðunum kemst upp. En enginn vafi er talinn á því, að klakið sé til stórmikils gagns fyrir fisk- veiðar í vatninu. Tvö smáljóð MINNING FRÁ HELLISSANDI Yfir sofandi þorp út með sendinni strönd fer sunnan þeyr, — yfir sólroðið haf inn í seiðbláa nótt fljúga svanir tveir. SUMAR Sumarið líður — — sólfar um daga og seiðandi nætur — söngur um daga og draumar sem rætast um dimmbláar nætur. K. Tilkynning í útvarpinu I San Francisco: — Veðurfregnir hafa ekkibor- izt vegna þess hvað veðrið er slæmt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.