Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Síða 12
400 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Jökull Pétursson Farkostir og ferðavísur ALLA tíð, meðan hesturinn mátti heita eina „farartækið“ hér á landi, hefir hann notið mikillar ástsældar, svo sem fram kemur m.a. í hinum ótölulega mörgu hestavísum. Skáld og hagyrðingar lögð*u sig mjög fram um að lof- syngja reiðhesta sína, lýsa kost- um þeirra, gangi, þoli-, vilja, rat- vísi og skynsemi. Margar þessar vísur eru kveðnar af innilegri að- dáun, hrifningu og þakklæti, og var það oft ekki að ófyrirsynju. Jafnvel þó menn ættu ekki hestinn sjálfir, þá kváðu þeir um hann; um unað þann sem hann veitti þeim. Það þurftu ekki allt- af að vera neinir sérstakir gæð- ingar, sem í hlut áttu. Smalastrák- urinn, sem reið berbakt við ein- teyming á áburðarklárnum, þóttist vera orðinn frækinn riddari og gamli Skjóni var gunnfákur hans; allra hesta beztur. Já, því þá ekki að kveða um hann stöku ef kostur var? Þeir menn, sem vegna sérstakra aðstæðna urðu að nota báta og skip til fanga og ferðolaga, kváðu einnig um þau á svipaðan hátt. Má í því sambandi minna á hinar mörgu formannavísur, sem víða voru kveðnar í sjávarplássum. Síðan koma bifreiðarnar til sög- unnar. Þær leystu brátt hestinn af hólmi, hvað viðkemur almenn- um ferðalögum, og einnig bátana og skipin að nokkru leyti. En fóru menn þá ekki að yrkja um þessa nýu farkosti? Mér vit- anlega hefir ekki verið mikið um það, en þó má vera að eitthvað hafi verið um þá kveðið, en ekki virðist það hafa komizt mikið á kreik. Loks koma svo flugvélarnar, og grípa eftirminnilega inn í sam- göngumál okkar. Hafa þær á skömmum tíma, og í vaxandi mæli, veitt bæði bifreiðum og skipum harða samkeppni um ferðalög og flutninga. Kostir flugvélanna og yfirburð- ir til þessara hluta eru svo furðu- legir, miðað við það sem áður var, að nærri má segja, að þær hafi afmáð bæði vegalengdir og tíma. Nú setjast menn upp í hinar stóru og glæsilegu flugvélar, og láta fara vel um sig í þægilegum sætum. Þeim eru bornar hvers konar veitingar, og við þá stjan- að á allan hátt af aðlaðandi flug- freyum, meðan vélin þýtur um himingeiminn, langt ofar skýum, og áður en varir eru menn komn- ir til fjarlægra landa; jafnvel til annarra heimsálfa. Hafa nú ekki þessi ævintýra- legu fyrirbrigði og furðulegu far- kostir, orðið mönnum að yrkis- efni? Jú, eitthvað mun hafa kom- izt á loft af flugvísum, en þó miklu minna en ætla mætti. Þó grunar mig að þær séu munfleiri en vitað er um. Stafar það trúlega af því, að nú á seinni árum, virð- ast menn miklu tregari á að láta vísur frá sér fara. En ástæðan til þess er aftur sú, að menn þykjast ekki finna sama hljómgrunn fyr- ir vísur sínar og áður var. Hinn linnulausi hávaði, og þá ekki hvað sízt útvarp, sem glym- ur í eyrum manna alla daga, virð- ist hafa sljóvgað svo næmi eyrans fyrir eiginleikum lausavísunnar, að menn taka naumast eftir því, þó einhver kasti fram stöku, jafn- vel þó ágæt sé. Það er þessi staðreynd, sem hefir þráfaldlega vakið þá spurn- ingu, nú sí&ustu 20—30 árin, hvort hagmælskunni sé að hnigna, og nýum vísum að fækka. Áhugamenn um þessi mál, munu vera á einu máli um að svara þessu neitandi. Ég tel að lausavísur, sem kveðnar hafa ver- ið á síðustu 50—60 árum, séu í heild miklu betur kveðnar, en áð- ur var, og sennilega er vísnafjöld- inn engu minni hlutfallslega, enda þótt það sé, að mínum dómi, ekk- ert aðalatriði. En hverfum svo aftur að flug- inu og flugvísunum. Um þessar mundir hefir flugið verið mjög á dagskrá hér á landi, og m. a. ver- ið haldin mikil flugsýning hér í Reykjavík í tilefni af 25 ára af- mæli Flugmálafélags íslands. Tilkoma flugsins hér á landi, hefir markað stórmerkileg spor í samgöngumálum okkar, og reynd- ar í öllu athafnalífi, og mun enn gera á næstu áratugum. Væri nú ekki gaman, áður en lengra líð- ur, að reyna að ná saman, og halda til haga, þeim flugvísum, sem til kunna að vera? Mundi það ekki þykja girnilegt til fróð- leiks og skemmtunar, t. d. á 100 ára afmæli flugsins að geta rifj- að upp slíkar vísur? Jú, áreiðan- lega. Hinn 3. sept. sl. voru nákvæm- lega 42 ár liðin síðan flugvél var flogið í fyrsta sinn hér á landi. Nokkuð mörg ár liðu þó þar til flugmálin festu þær rætur, sem þau hafa þróazt af síðan, eða um aldarfjórðungs bil. Samkvsemt því

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.