Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Side 8
444
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Frá Reykjavíkur-
sýningunni. Hér
eru sýndar gamlar
og nýar vinnu-
vélar.
Þetta gerðist í ágústmánuði
FORSETI íslands gaf hinn 1. ágúst
út bráðabirgðalög samkvæmt til-
lögu ríkisstjórnarinnar um þá
breytingu á lögum Seðlabanka Is-
lands, að bankinn skuli skrá gengi
islenzkrar krónu að fengu sam-
þykki ríkisstjómarinnar. í for-
sendum að bráðabirgðalögunum
segir, að vegna hinna miklu kaup-
hækkana, sem átt hafa sér stað
að undanfömu, séu fyrirsjáanlegir
miklir erfiðleikar í efnahagsmál-
um, ef ekki sé að gert (2.) Sam-
kvæmt þessum lögum var gengið
síðan fellt um 11,6%. Verður nafn-
gengi dollars þannig 43 krónur
islenzkar (4.)
í sambandi við gengisbreyting-
una vom sett bráðabirgðalög með
ákvæði um hækkun útflutnings-
gjalda í þágu sjóða sjávarútvegs-
ins (4.)
INNGANGA 1 MARKAÐS-
BANDALAGIÐ
Fulltrúar ríkisstjómarinnar hafa
haldið fund með forystumönnum ým-
issa heildarsamtaka atvinnuveganna
um hugsanlega inngöngu Islands í
Efnahagsbandalag Evrópu (Sameigin-
lega markaðinn). 15 fulltrúar lýstu
yfir stuðningi við inngöngubeiðni í
bandalagið. Fulltrúi Alþýðubanda-
lags tslands lagðist einn gegn því.
(18.)
REYKJAVÍK 175 ÁRA
18. ágúst voru liðin 175 ár frá því
Reykjavík hlaut kaupstaðarréttindi
og var þess minnzt með hátíðahöld-
um og kynningarsýningu, sem stóð í
tíu daga. Á kynningarsýningunni var
þróunarsaga bæarins rakin, en sýn-
ingarsvæðið var við Hagatorg svo og
í Hagaskóla og Melaskóla. Var sýn-
ingin mjög fjölbreytt og fróðleg. Þá
voru hátíðahöld og margvíslegar
skemmtanir bæði úti og inni á
kvöldin þá daga, sem kynningin stóð.
I sambandi við afmælið var starf-
rækt sérstök útvarpsstöð, sem út-
varpað var frá á hverju kvöldi (18.—
28.)
HEYSKAPUR
Sumarið hefir ekki verið gott
til heyþurrka og heyskapur gengið
heldur illa þó sérstaklega á Norður-
landi og norðanverðum Austfjörðum.
í Borgarfirði eystra hafa t.d. aldrei
komið tveir þurrkdagar í röð. Erfið-
leikar hafa verið miklir í Þingeyar-
sýslu og Skagafirði, sérstaklega út-
sveitum. geint í ágúst höfðu bændur
þar til jafnaðar náð inn innan við
100 hestum. Þeir, sem hafa súgþurrk-
un standa þó mun betur að vígi, þótt
oft hafi verið svo vætusamt að ekki
hafi verið hægt að blása í heyið. Um
mánaðamótin voru því mikil hey úti
í þessum landshlutum. Á Suðaustur-
landi hefir heyskapur aftur á móti
gengið vel og bændur á Suðurlandi
náð inn miklum heyum, og nýting
verið í meðallagi. Um vestanvert
landið hefir heyskapartíð verið þolan-
leg, en þó hvergi góð.
SJÁVARÚTVEGUR
Síldveiðarnar fyrir Norður- og
Austurlandi hafa gengið mun betur
nú en á undanfömum árum. 1 ágúst-
mánuði var síldarflotinn að mestu
fyrir Austurlandi. Barst svo mikið á