Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Page 9
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
449
A 175 ára
afmæli
Reykjavíkur:
Forseti ís-
lands og
borgarstjóri
koma frá því
að hlýða
á guðsþjón-
ustu.
land að ekki var hægt að vinna allan
aflann þar og var sumt flutt í bræðslu
til Norðurlands. Mjög dró þó úr síld-
veiðunum er líða tók á ágústmánuð
og mörg skip hættu veiðum. 28.
ágúst var heildaraflinn orðinn rúm-
lega 1,5 millj. mál og tunnur (790
þús. á sama tíma í fyrra). Tæpar 360
þús. tunnur höfðu verið saltaðar, 1,1
milj. mál brædd og tæplega 24 þús.
tunnur frystar. Víðir II úr Garði
var aflahæsta skipið með 21.415 mál
og tunnur (29.)
tTGERÐIN
Verðfall hefir orðið á síldarmjöli
og síldarlýsi (11.)
Norsku síldarbátarnir, sem veiða
hér við land tapa hundruðum þús-
unda króna þar sem þeir verða sjálf-
ir að sigla með aflann heim vegna
skorts á flutningaskipum (11.)
Heildaraflinn fyrstu sex mánuði
ársins varð rúmlega 228 þús. lestir,
og er það rúml. 6 þús. lestum minna
en á sama tíma í fyrra (12.)
77 erlendir togarar eru að veiðum
hér við land auk 50 rússneskra síld-
veiðiskipa (13.)'
Þrjú ný rækjusvæði finnast hér við
land, undan Haganesvík, í Amarfirði
og á köntum Seyðisfjarðardýpis (15.)
Mikil kolkrabbavaða kom á land á
Flateyri (16.)
Útflutningur hinnar nýu saltsíldar
hófst upp úr miðjum ágúst (16.)
Samkvæmt niðurstöðum af rann-
sóknarleiðangri „Maríu Júlíu“ undir
stjórn Aðalsteins Sigurðssonar fiski-
fræðings hefir þorskmagnið hér við
land víða minnkað (18.)
MENN OG MÁLEFNl
Ingi R. Jóhannsson varð Norður-
landameistari í skák (1.)
íslenzka þokkagyðjan Sigrún Ragn-.
arsdóttir varð í 5. sæti í fegurðar-
samkeppni á Langasandi í Kaliforníu,
þar sem keppt var um titilinn „Miss
International“ (1.)
Halldór Hansen, yngri, hefir verið
skipaður yfirlæknir barnadeildar
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur (2.)
Nils Langhelle, forseti norska Stór-
þingsins, í heimsókn hér á landi í
•boði forseta Alþingis (3.)
Franskur maður gengst fyrir töku
tveggja- stuttra kvikmynda hér á
landi, sem sýna á erlendis (4.)
Árni Pálsson, cand. theol., kosinn
prestur f Miklaholtsprestakalli (13.)
íslenzkur listdansari, Helgi Tómas-
son, fær mjög góða dóma í dönskum
blöðum (13.)
Ungfrú Gunnhildur Ólafsdóttir, 16
ára, kjörin blómadrottning í Hvera-
gerði (15.)
Forseti íslands kom i opinbera
heimsókn til bæarstjómar Reykjavík-
ur í tilefni afmælis borgarinnar 18.
ágúst (19.)
Valtýr Stefánsson, ritstjóri, kjörinn
heiðursfélagi Skógræktarfélags ís-
lands (20.)
Maður af íslenzkum ættum, Frank
Frederickson, kosinn borgarstjóri í
Vancouver í Kanada (22.)
Friðjón Sveinbjörnsson frá Snorra-
stöðum ráðinn sparisjóðsstjóri í Borg-
arnesi (24.)
Herra biskupinn, Sigurbjörn Einars-
son, sækir biskupafund Norðurlanda
í Finnlandi (23.)
Friðrik Ólafsson, stórmeistari, bar
sigur úr býtum á svæðamóti í skák,
sem haldið var í Tékkóslóvakíu (23.)
14 konur og karlar kjörnir heiðurs-
félagar Reykvíkingafélagsins 25.)
Baldur Möller skipaður ráðuneytis-
stjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu (26.)
Þorkell Grímsson, fornleifafræðing-
ur vinnur að uppgreftri á Reyðar-
felli í Hvítársíðu, sem sagt er frá í
Grettissögu (26.)
Tveir skógræktarmenn frá Alaska
staddir hér á landi (31.)
Sjö stúdentar hljóta 30 þús. kr.
styrki í fimm ár (31.)
Danskir ferðamálamenn heimsækja
ísland (31.)
Þrír íslendingar, dr. Gunnar Böðv-
arsson, Sveinn Einarsson, verkfræð-
ingur, og Helgi Sigurðsson, hita-
veitustjóri, miðla fróðleik um virkjun
jarðhita á ráðstefnu SÞ um nýar
orkulindir (31.)
FRAMKVÆMDIR
Barnaleikvöllur opnaður í Seltjam-
arneshreppi, sá fyrsti þar í sveit (1.)