Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 12
448
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Vb. Helgi Flóvents-
son frá Húsavík
sökk út af
Langanesi.
ÝMISLEGT
Greiðslujöfnuður ríkissjóðs var hag-
stæður um 10,7 milj. kr. árið 1960
(1.)
Togarinn Freyr kom hingað með
grænlenzkan fálka, sem settist á skip-
ið í rúmsjó (1.)
Vegir eru orðnir mjög slæmir, sér-
staklega í nágrenni Reykjavíkur,
vegna vegavinnuferkfallsins (2.)
Færeyingum leyft að stunda hand-
færaveiðar á takmörkuðum svæðum
innan íslenzku fiskveiðilandhelginnar
(2.)
Um 45 íslendingar munu nú vera
á norska fiskiskipaflotanum (3.)
Daníel Pétursson, flugmaður, hefir
hafið áætlunarferðir innanlands til
ýmissa staða, sem Flugfélag Islands
ílýgur ekki til (5.)
Tjónið af ríkisábyrgðum nemur nú
yfir 200 milj. kr. (5.)
Flugvélar Flugfélags íslands fóru
15 ferðir á einum degi til Vestmanna-
eya vegna mannflutninga á þjóðhátíð
(3.)
FÍB hefir tekið upp víðtæka við-
gerðarþjónustu á bílum, sem bila á
vegum úti um helgar, þegar umferð-
in er mest (5.)
Gæzluflugvélin Rán og varðskipið
Þór tóku brezkan togara í landhelgi
út af Austfjörðum (6.)
Þrjár nýar káltegundir, toppkál,
savoyer-kál og spergilkál, ræktaðar
hér á landi (6.)
Aætlað að 1500—1600 gestir hafi
verið á þjóðhátíðinni í Vestmanna-
eyum (9.)
Umferð gekk mjög vel í nágrenni
Reykjavíkur um verslunarmannahelg-
ina (9.)
900 farþegar flugu með flugvélum
Flugfélags íslands á einum degi inn
verslunarmannahelgina (9.)
Viðskiptasamningur við Tékkósló-
vakíu endumýjaður (10.)
Mjög mikill drykkjuskapur og svall
var víða um verslunarmannahelgina,
sérstaklega á skemmtunum í Hall-
ormsstaðaskógi, Vaglaskógi og að
Laugarvatni, einnig í Húsadal í Þórs-
mörk (9.)
Rúmlega 7 millj. kr. jafnað niður
á Siglufirði (10.)
Þýzkur maður, Egon Miiller að
nafni, sem stundaði hér ólöglegar
fálkaveiðar, tekinn á Flateyardal þar
sem hann vann að tamningu sex vals-
unga (10. og 11.)
Frá stofnun Framkvæmdabanka Is-
lands 1953 hefir Bandaríkjastjóm
veitt bankanum 20,8 milj. dollara lán
(11.)
BP semur um olíusölur til Kefla-
víkurflugvallar (12.)
Skátar taka að sér að hreinsa vír-
dræsur frá stríðsárunum, sem hafa
verið búsmala í Mosfellssveit hættu-
legar (12.)
Skógrækt í Heiðmörk gengur mjög
vel. Vegakerfi lagt um mikinn hluta
markarinnar (13.)
Flugvélasprengja írá stríðsárunum
festist á línu fiskimanns I Reyðar-
firði (16.)
Eimskipafélag Islands gefur út ný*>
áætlun (17.)
Furðubleikja veiðist í Víðidalsá.
Samkvæmt tillögu dómsmálaráð-
herra hefur þremur færeyskum skip-
stjórum, sem voru að handfæraveið-
um í landhelgi, verið veitt sakarupp-
gjöf (17.)
Brotizt inn í stóra vélskóflu í Rauð-
hólum og hún stórskemmd (16.)
Það er 101 ár milli yngsta og elzta
Reykvíkingsins (18.)
Kanadísk flotadeild í kurteisisheim-
sókn í Reykjavík (18.)
Kjötkaupmenn neita að selja nýtt
dilkakjöt vegna of lágrar álagningar
(18.)
Dómnnefnd Fegrunarfélags Reykja-
víkur kaus garðinn við Langagerði
60 fegursta garð bæarins á þessu ári
(18.)
Fjögurra manna sendinefnd frá
Suður-Kóreu í heimsókn hér (19.)
Kaupfélag Skagfirðinga dæmt til
þess að greiða 203 þús. kr. hærra
útsvar en á það var lagt í fyrstu
(19.)
Þjóðkirkjunni gefin Viðeyarkirkja
(19.)
Ráðstefna um raunvísindarannsókn-
ir haldin í Háskólanum (22.)
Laxveiði hefir verið misjöfn í sum-
ar, en bezt í Miðfjarðará (24.)
Vikulegum áætlunarferðum Loft-
leiða milli Evrópu og Ameríku fjölg-
ar úr 5 í 7 yfir vetrarmánuðina (24.)