Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 451 mætti þeim í samband með öðr- um gervihnöttum. Þessir gervihnettir mundu eigi aðeins annast útvarpssendingar, heldur einnig endurvarpa tali, en ekki er enn ráðið hve stórir þeir þurfi að vera. Búist er við að fyrsta tilraun með þá fari fram innan tveggja ára. Með Advent og Courier gervi- hnöttum mundu Bandaríkjamenn geta tryggt sér beint og tafar- laust samband við allar herstöðv- ar sínar um allan heim, einnig herskip á höfum úti og flugvélar í lofti. NÝ TILLAGA Bell-félagið hefir komið fram með nýa tillögu um endurvarps- hnetti. Er þar gert ráð fyrir 50 gervihnöttum dreifðum jafnt í allt að 500 km. hæð, og 26 stöðv- um á jörðinni. Eiga flestar þessar stöðvar að vera í Bandaríkjunum, en auk þess í Suður-Ameríku, Ástralíu, Afríku og í borgunum Lundúnum, Bonn, Moskvu, Pek- ing, Tokyo, Yakutsk, París og Bombay. Eins og á þessu sést er hér gert ráð fyrir allsherjar sambandi um alla jörð. Gert er ráð fyrir tvenns konar gervihnöttum. í öðrum eru 600 talrásir og kostnaðurinn er þá áætlaður 50 milljónir doll- ara á hnettina en 65 miljónir doll- ara fyrir stöðvarnar á landi. Hin tegundin á að hafa jafnmargar talrásir, en auk þess sjónvarps- rásir f allar áttir. Er gert ráð fyr- ir að hnettirnir muni þá kosta 100 miljónir dollara, en stöðvarnar á landi 70 miljónir dollara. Þarna er ekki gert ráð fyrir endurvarpi útvarps. Hnettirnir eiga að geta enzt að meðaltali í 10 ár. Langfullkomnast verður þó fyr- irkomulagið með fastahnöttunum, því að með þeim fengist svo að segja ótakmarkað svigrúm fyrir skeytasendingar og talstöðvar. Auk þess geta þeir borið útvarp og sjónvarp um allan heim, meira að segja þrívíddar litmyndir í sjónvarpi. Þar verður ekki aðal- kostnaðurinn við gervihnettina, heldur við sendistöðvarnar. ALÞJÓÐA SAMVINNA NAUÐSYNLEG Það mundi nú ekki þykja heppi- legt að ein þjóð réði yfir slíku endurvarpskerfi. Það gæti orðið skæðasta áróðurstæki allra tíma. Og ef þjóðir fara að keppa um það sín á milli að koma upp slík- um endurvarpskerfum, þá væri þegar komin ný ólga í kalda stríð- ið. Hvor mundi þá reyna að spilla fyrir hinum, og mannkyninu yrði Móðurást EG get ekki stillt mig um að segja frá tveimur spóahjónum, sem eg kynntist í æsku. Spóahjónin áttu hreiður ár eftir ár á sömu þúfunni í mýri fyrir innan Kotklettinn á Ketilsstöðum. Þetta vissi eg af því að karlinn var blestur í máli; skrollaði í honum þegar hann vall. Alltaf komu hjónin ungunum upp, en ekki vissi eg til að fjölgaði hreiðrum í mýrinni, enda var hún lítil. Hin spóahjónin áttu þúfu, sem þau hreiðruðu sig á rétt hjá smalahúsinu mínu. Mikið þótti mér gaman að þessu. Móðirin var farin að þekkja mig og flaug ekki af þó að eg væri að vakka í kringum hana. Svo komu ungarnir úr eggjunum hjá hjónunum og allt virtist í lagi. Ungarnir stækka og byrja að fljúga. Þá kemur í ljós að einn unginn getur ekki flogið, annar vængbroddurinn rakst í aftari enda hans þegar hann reyndi. Nú líður; spóar eru .flognir burt nema spóamóðirin. Hún lá á lamaða unganum sínum á nóttum, en þau voru I flóanum á daginn. Svo er hætt hjásetu því það líður að hausti. Um haustið þegar komið var fram yfir vetumætur, snjóföl á jörð og I ekkert gagn að þessari framför, miklu fremur hið mesta ógagn. Hér er því bráð nauðsyn á al- þjóðasamvinnu þegar frá upphafi. Slík samvinna hefir áður átt sér stað, er þjóðirnar skiptu með sér bylgjulengdum fyrir útvarp. En sú samvinna hefir ekki orðið að fullu gagni vegna þess að hún hafði enga allsherjar yfirstjórn, og þjóðir gátu skorist úr leik og lagt undir sig vissar bylgjulengd- ir. Að þessu hefir orðið friðar- spillir, en enn meiri friðarspillir yrði hitt, ef ekki næðist alþjóða samkomulag þegar í upphafi um endurvarps hnattkerfi í háloft- unum. (Uppistaða þessarar greinar er 1 „Bulletin . of the Atomic Scientists"). frost, þá á eg leið um hjá smalakofa mínum, því eg var 1 smalamennsku. Þá geng eg að spóahreiðrinu af göml- um vana. Hvað sé eg þá? Móðirin lá á unganum sínum þar. Eg tók ung- ann hennar og fór með hann heim, en hún flögraði yfir. Við skulum vona að hún hafi komizt úr löngu ferðinni yfir höfin, þótt áliðið væri og hún ein á ferð. Lifið grundvallast á móðurást og verður vonandi svo og mildar og bjargar á atómöld, sem á liðnum öldum. Kristján Helgason. PRENTSMIÐJUPÚKINN klóraði í skýringargrein með mynd á bls. 429 í seinustu Lesbók, svo að þar varð úr þessi setning: Hún er látin eta brauðaldin! — Þetta kemur þar eins og skollinn úr sauðarleggn- um, og er alveg út í hött. Myndin er af dreng sem ríður á skjaldböku. Hann heldur á viðarteinung og fremst á honum er bjúgaldin, rétt yfir nefinu á skjaldbökunni, jen hún ætlar sér að ná í góðgætið og eltir það, en það berst jafnhratt undan. Skýringin með myndinni átti því að vera: Hún er látin elta bjúgaldin! —

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.