Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1961, Qupperneq 8
624 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Bjarni Benedikts- son forsætisráð- herra ræðir við Jörgensen fyrr. kennslumálaráð- herra og Bjarna Fálsson sendiherra Dana á íslandi. ÞETTA CERÐIST í OKTÓBER HÁSKÓLl ÍSLANDS 50 ÁRA HÁSKÓLÍ íslands efndi til mikilla, tveggja daga hátíðahalda í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Fóru þau fram í hinu nýa og glæsilega sam- komuhúsi Háskólans við Hagatorg. Meðal viðstaddra voru forsetahjónin, ráðherrar og fulltrúar fjölmargra er- lendra háskóla, sem fluttu Háskólan- um árnaðaróskir og gjafir. Þá voru útnefndir 24 heiðursdoktorar, þar af átta innlendir. Meðal gjafanna voru 5 milj. kr. frá Bandaríkjastjórn og 2 milj. kr. frá ónafngreindum Norð- manni. í tilefni afmælisins gáfu há- skólamenntaðir menn út bók helgaða Háskóla íslands, „Vísindin efla alla dáð“. Þá gaf Háskólinn sjálfur út bók, Sögu Háskóla íslands, sem Guðni Jónsson prófessor tók saman. Menntamálaráðherra gat þess á há- skóluhátíðinni, að borið yrði fram á næsta Alþingi frumvarp til laga um handritastofnun í tengslum við há- skólann. Þá skýrði borgarstjórinn í Reykjavík frá því, að bæarstjórn hefði ákveðlð að gefa háskólanum kost á viðbótarlóð allt að 100 þús. ferm. Núverandi rektor Háskólans er Ár- mann Snævarr lagaprófessor (6., 7., 8., 10.) ALÞINGI Alþingi kom saman til fundar 10. október. Forseti ísiands setti þingið eftir að þingmenn höfðu hlýtt messu í Dómkirkjunni. Er þetta 82. löggjaf- arþinglð frá endurreisn Alþingis 1845. Aldursforseti þingsins, Gísli Jónsson, stýrði fyrstu fundum (11.) Friðjón Skarphéðinsson kosinn for- seti Sameinaðs Alþingis, Sigurður Óli Ólafsson forseti Efri deildar og Ragn- hildur Helgadóttir forseti Neðri deild- ar. Er þetta í fýrsta sinn, sem kona er kjörin einn af aðalforsetum þings- ins (12.) Frumvarp til fjárlaga 1962 var fyrsta málið, sem lagt var fyrir Al- þingi. Niðurstöðutölur á sjóðsyfirliti eru 1721 milj. kr., en á rekstraryfir- liti 1718 milj. kr. Kosið í 19 fastanefndir Alþingis (13.) Kjartan J. Jóhannsson kosinn for- maður fjárveitinganefndar (19.) Vantrauststillaga tveggja þing- manna Framsóknarflokksins á ríkis- stjórnina var felld með 32 atkvæðum gegn 26 (28.) Viðskiptamálaráðherra upplýsti á Alþingi að vísitalan hækkaði um 10,4 stig vegna kauphækkananna á s.l. sumri (28.) Samþykkt voru á Alþingi með 49 samhljóða atkvæðum (7 sátu hjá) eindregin mótmæli vegna risakjarn- orkusprengju Rússa o? neðanjávar- sprengingum þeirra (28.) BRÁÐABIRGÐALÖG Gefin voru út bráðabirgðalög á framlengingu á samningum milli læknafélags og sjúkrasamlags, þar sem samningarnir féllu úr gildi 1. okt. og samkomulag hafði ekki náðst (1.) LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Sjálfstæðisflokkurinn hélt lands- fund í Reykjavík. í upphafi fundar- ins var lesið bréf frá Ólafi Thors þar sem hann biðst undan endurkjöri sem formaður flokksins (20.) Á landsfundinum voru m.a. sam- þykktar nýar skipulagsreglur fyrir Sjálfstæðisflokkinn (21.) Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, kjörinn formaður Sjálfstæðis- flokksins og Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, varaformaður (24.) ÖSKJUGOS Stórkostlegt hraungos hófst í Öskju fimmtudaginn 26. okt. Vall rauðgló- andi hraunið eins og straumþung elf- ur marga kílómetra frá fjallinu (27.) Ekkert lát er á gosi í Öskju. Fimmti gígurinn myndaðist fyrir miðju Öskjuopi 27. okt. Eldstólpinn var þá um 400 m. í loft upp. Fjöldi manns fór í flugvélum yfir eldsvæðið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.