Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1962, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1962, Blaðsíða 8
STAR TIGER ...ÁFLUGI YFIR ATLANTSHAF... KOMIN AÐ LEIÐARLOKUM OG ALLT VIRTIST MEÐ FELLDU ...EN SKYNDILEGA ÞÖGN ... ENDALAUS ÞÖGN Sinnti enginn neyðarkallinu? ■Umir reyndustu meðal far- þeganna voru sammála um að þetta hefði verið slæm ferð. Yfir Azoreyjum skrifaði einn far- þeganna: „Þegar við komum hingað var vindhæðin 100 km á klukkustund, og stormurinn var nærri búinn að feykja okkur í sjóinn, eða yfir til Kanada.“ Flugvélin hét Star Tiger og var af gerðinni Tudor IV og í eigu British South American Airways. — Ákvörðunarstaðurinn var Bermuda. Parþegar voru 25, og eins og gerist og gengur í flugvélum: erindrekar og verrlunarmenn, ein skozk hjón á brúð- kaupeferðalagi, og einn frægur mað- ur, Sir Arthur Coningham flugmar- skálkur, fyrrverandi yfirhershöfðingi flugflotans við innrásina í Normandy. Kl. 15,34 30. janúar 1948 lagði flug- vélin aftur af stað eftir tveggja daga töf. Veðurspáin var hagstæð. Vindur reyndist meiri, en spáð var, 50 km á klukkustund, og það sem verra var, hann var beint á móti. Mótvindur étur fyrnin öll af eldsneyti, Geymar vélarinnar höfðu að visu verið stútfylltir áður en lagt var af stað, en svo langt er til Bermuda yfir opið haf, að flugstjórinn ákvað að fljúga í 2000 feta hæð, til að eyða ekki eldsneyti í að klífa upp í 21000 fet. — Þetta skipti engu máli, ef allt gekk vel. Yrði eitthvað að, var hins vegar lítill tími til athafna. STUTTORÐIR Ahálftíma fresti hafði Star Tiger samband við flugturninn á Ber- muda. Skeytin voru stutt, lítið annað en skýrsla um gang ferðarinnar. Á Bermuda var tekið á móti þeim og þau sett á sinn stað í skjalasafninu. Þau voru á engan hátt frábrugðin hundruðum þúsunda slíkra skeyta, sem finna má í skjalaskápum flugturna um allan heim. Síðasta reglulega skeytið kom klukk- an 3. f því var gefin upp staðarákvörð- un á að gizka 2% stundar flug frá Bermuda, 380 mílur til norðausturs. Kl. 3,15 kallaði Star Tiger aftur og bað um stefnumiðun. Hún var gefin og móttekin. Um þetta leyti snarversnaði veðrið á Bermuda og í nágrenni eyjanna. Veðrið hafði verið sæmilegt en nú skullu á óvæntar haglhryðjur. Ef til vill hefur þessi skyndilega veðrabreyting dregið athygli flugum- ferðarstjóranna frá hinni löngu þögn flugvélarinnar, þó hún hefði ekki átt að gera það. NEYÐARÁSTAND Vantar tíu mínútur í fimm, er klukkan þín rétt?“ „Á þetta að vera brandari? Hvernig er úti?“ „Hryllilegt. Óstætt. Nokkuð nýtt?“ „Ekki neitt markvert, nema að það er skrítið með Star Tiger.“ Star Tiger var ný- komin úr skoðun og engin ástæða var til að efast um öryggisútbún- aðinn . . . en flugmenn irnir voru áhyggjufull- ir, þegar þeir lögðu upp, Hefur sérfræBingunum yfirsézt? „Hvað með Star Tiger? Hvað segja þeir?“ „Þeir hafa ekkert látið heyra í sér. Það er skrítið. Hún ætti að koma á hverri stundu, og þeir hafa ekkert lát- ið heyra í sér.“ „Síðan hvenær?“ „Tja — það er svona hálfur annar tími síðan.“ „Hálfur annar tími?“ „Já, ég var að velta fyrir mér.... “ „Velta fyrir þér! Tilkynntu neyðar- ástand, þegar í stað.“ Brugðið var skjótt við. Tugir brezkra flugvéla sveimuðu lágt yfir svæðinu. Strandgæzla Bandaríkjanna hamaðist við_ leitina. Á skipinu voru settir sérstakir verð- ir. Áætlunarflugvélar tóku með auka- báta með vistum og lyfjum. Marka má fjölda og nákvæmni leit- armanna á því, að þegar björgunar- bátur úr flugvél sást 275 mílur norð- vestur af Bermuda, 275 mílum handan við ákvörðunarstað flugvélarinnar, stefndu 40 flugvélar og tvö strand- gæzluskip á staðinn. Leitin stóð í marga daga, og náði hún að lokum yfir 300.000 fermílur. Ekkert fannst. i í niðurslöðu nefndarinnar segir með- al annars: „Aldrei mun verða upplýst, hvað fyrir kom. Örlög vélarinnar munu um tíma og eilífð verða óráðin gáta.“ N* SÖGUR Á KREIKI blöðum og á þingi var farið að gera fyrirspurnir og fyrst og fremst farið að leita að einhverjum, sem kenna mætti um allt saman. Þegar Ijóst var, að Star Tiger myndi ekki finnast, gaf flugmálaráðherrann skipun um að taka skyldi allar flug- vélar af gerðinni Tudor IV úr notkun „af öryggisástæðum, meðan rannsókn færi fram á styrkleika þeirra og flug- hæfni“. Tudor-vélarnar reyndust auðvitað ó- aðfinnanlegar í alla staði, en rannsókn- in varð til þess, að alls konar sögur komust á kreik. Menn tóku að rifja upp, að Tudor I hafði orðið að undirgangast nákvæma rannsókn á, hvort hún væri hæf til Atlantshafsflugs, að flugvél frá sama flugfélagi hafði horfið yfir Andesfjöll- unum hálfu ári áður; tvær flugvélar fé lagsins höfðu farizt annars staðar. Af þessum sökum gengu þær sögur að smíðagallar væru á Tudor IV og að stjórn flugfélagsins væri í handaskot- um. Sannleikurinn var sá, að gagnger skoðun og viðgerð hafði farið fram á flugvélinni rétt áður en hún fór síð- ustu ferð sína. Frægur lögfræðingur, MacMillan lá- varður, var gerður að formanni nefnd- ar, sem átti að rannsaka slysið. og vélin steyptist i djúpin, meðan gerð- ar voru örvæntingarfullar tilraunir til að segja heiminum það, sem hann fær aldrei að vita nú. HVAÐ KOM FYRIR? Jeyðarskeyti geta ekki komið i veg fyrir slys, en þau geta flýtt fyrir björgun. Það er ósjálfráð hreyfing að senda SOS, eins og skelf- ingar- og sársaukavein. Hvers vegna sendi Star Tiger aldrei neyðarmerki? MacMillan-nefndin setti fram tvo möguleika: Annað hvort fórst vélin svo snögglega, að ekki var einu sinni tími til að senda út fyrstu stafina í SOS, eða senditæki flugvélarinnar eyðilögð- ust í nágrenni Bermuda. Enginn lifandi maður getur ímynd- að sér, hvað hefði getað valdið svo snöggu slysi, og þótt radíótæki vélar- innar hefðu bilað, hefði hún átt að komast á áfangastað. En athugið eitt: Þótt aldrei heyrðust nein neyðarmerki á Bermuda, er ekki víst, að þau hafi aldrei verið send. Flugumferðarstjómin í Bermuda var vissulega ekki gallalaus þessa nótt. Ein alvarleg mistök komu í ljós í orðaskiptum flugturnsins við Star Tiger. SKY'SSA Hvort sem um misheyrn eða mis- reikning var að ræða, er það staðreynd, að flugvélin gaf upp rangan komutíma. Þessari mikilvægu skyssu var ekki tekið eftir á B irmuda. Að vísu getur enginn vitað, hvort hún hafði áhrif á örlög vélarinnar, en skyssan var gagn- rýnd harðlega í skýrslu nefndarinnar. Vei getur verið, að starfslið hafi skort í flugturninum, eða mennirnir ekki tekið nógu vel eftir. Hvort held- ur er, er það staðreynd, að ýmislegt gat farið — og fór — framhjá starfsmönn- unum. Og það er í rauninni talsvert líklegra en að ekkert neyðarmerki hafi verið gefið. Hins vegar hefur hin lága flughæð orðið til þess, að lítill tími hefur verið um borð frá því óhappið vildi til unz flugvéiin var komin í sjó- inn. Öruggt má telja, að ekki hefði mátt koma í veg fyrir slysið, en ef til vill hefði mátt finna orsök þess. Ýmsir furðulegir möguleikar koma til greina í þessu máli. En það er áreiðanlega ekki ólíkleg- ast, að eitt neyðarmerki hafi farið fram hjá flugturninum á Bermuda; að eng- inn heyrði síðustu orðin frá Star Tiger, MYNDAMÖT H.F. I - / B MORGUNBLAÐS HÚSINU 7. hœð Framleiða allar gerðir af: l I 111 13 S MYNDAMÚTUM II \ á Vönduð vinna Fl/ót afgreiðsla I - PRENTMYNDAGF.RÐIN MYNDAMÓT H.F MORGUNBLÁÐSHÚSINU -,.SfMI 17152 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.