Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Blaðsíða 3
E T T A eru blöð úr dagbókinni minni. Þegar ég var sautján ára skrifaði ég dagbók, ég var að leita að henni áðan í skóladótinu mínu. Nú br ég búinn að finna hana. Þegar Hólmar fór til útlanda hætti ég að skrifa — ég veit ekki hvers vegna, ég missti bara alla löngun til að skrifa staf framar. Og í sjö ár hugsaði ég um hann þegar ég var ein á kvöldin. Hann hló þannig að ég gat ekki annað en far- ið að brosa — jafnvel þó mér fyndist ég ætti að vera honum reið. Svo var eitthvað í augunum á hon- um, og þegar hann leit á mig hugsaði ég alltaf: „Hann er kærastinn minn, og mér er alveg sama þótt allir segi að hann sé ekkert nema sjálfselskan, of- dekraður pabbadrengur. Mér fannst hann helmingi betri og fallegri en allir aðrir — og hann sagði mér um nótt að hann ætlaði að fara út í heim. Hann var svo ungur þá. Svo fór hann. Ég veit ekki hvert. En hann er kominn aftur i— ég sá hann í gær niður á Laugavegi. Ég ætlaði varla að þekkja hann. Ég veit ekki hvort ég varð glöð eða hrygg, en það var eins og hnífsblað færi inn í mig. Hann leit á mig en þekkti mig ekki, og ég heilsaði honum ekki. Ég vildi að ég hefði aldrei fengið að sjá hann aftur. Og núna er ég búin að opna gömlu dagbókina mína í fyrsta sinn í sjö ár — og þegar ég les þetta, get ég ekki ann- að en brosað. Ég var bara sautján ára, og allt er orðið svo breytt......Þetta er svona bók sem notaðar eru á skrif- stofum, hún er innbundin og á kápunni stendur R E C O R D. Svo eru blöðin tölusett og á númer 108 stendur þetta: , »í kvöld á að vera dansæfing í skól- anum, og ég hlakka svo til. Áðan þegar ég var að strjúka kjólinn minn söng ég allan tímann. Eins og mér finnst leiðin- legt að strjúka. Ég söng „Now is the hour“. Það er svo vinsælt núna og ég. held upp á það vegna þess að það minnir mig á Hólmar. Þegar ég horfi á hann finnst mér alltaf eins og hann sé að fara í burtu. Kannski sezt hann að í útlöndum — mér finnst hann allt- af svoleiðis. Vertu sæll — ég ætla að bíða eftir þér. Kannski verðurðu ein- hvern tíman einmana og skrifar mér. Ég skal koma til þín ef þú biður mig. Mér er alveg sama hvar þú verður — ég skal koma með fyrstu ferð. Ég elska þig... Þetta er skrifað á blaðsíðu 108, en ég var nú líka bara sautján ára. Ég hef skrifað niður á miðja siðuna. Stundum hef ég fekki útfyllt tneira en fáeinar línur og stundum hefur mér ekki dugað heil blaðsíða. Þá hefur mér víst legið mikið á hjarta, eins og t.d'. næsta opna sýnir. Þar stendur: „f dag er sunnudagur, mér finnst sunnudagar leiðinlegir. Ég skil ekki hvers vegna, þar sem ég er ekkert á- nægð í skólanum. Það er messa í út- varpinu og mamma er að steikja hrygg. Það er eins og það séu engin ævintýri til framar. Ég er líka í leiðu skapi út af dansæfingunni í gærkvöldi. Hólmar dansaði ekki við mig einn einasta dans. Hann var allt kvöldið með Kristínu Helgu 1 fanginu. Og þegar einhver slökkti ljósin, langaði mig mest til að æpa og skipa þeim að kveikja aftur. Ég veit ekki hvað Árni hefur haldið um mig. Árni er ágætur strákur og það var svo sem betra að dansa við hann heldur en ekki neinn. En mér er sama — mér finnst að stúlkur séu ekki endi- lega skyldugar til að dansa vangadans ef þær langar ekki til þess. Svo fer hann svo klaufalega að því. Hólmar var með vín, og þau drukku úr sömu appelsín-flöskunni. Þau nudd- uðu sér utan í hvort annað á gólfinu .... O — ég gæti drepið hana. Ég sá það á hermi hvað hún ætlaði sér — hún bar það með sér. Hún hrópaði það án þess að segja eitt einasta orð. Ég skil ekki í öðru en hver einasta mannssál í stofunni hafi séð það. Svo fóru þau út í bílinn hans pápa hans. Þau voru þar hér um bil í klukkutíma og ég var alltaf jafn snúin við Árna greyið, enda þótt hann sé áreiðanlega bezti strákur- inn í bekknum — og þó hann hafi hjálp- að mér svolítið á miðsvetrarprófinu. Ég gat elckert að þessu gert — maður ræður ekki við tilfinningar sínar. Og þegar þau komu loksins inn aftur, dönsuðum við fram hjá þeim og Hólm- ar var með nefið á kafi í hári hennar. „Halló“, sagði ég. Þau litu bæði upp og fóru að hlæja. Ó — ég skammaðist mín svo.... Ég vildi að ég hefði aldrei farið á þessa dansæfingu — ég vildi að ég væri dauð. Árni fylgdi mér heim. Aumingja Árni, hann snýst í kring um mig, enda þótt ég sé alltaf svona tíkarleg við hann. Og þegar við stóðum á tröppun- um, þá var hann eitthvað svo vand- ræðalegur. Ég hefði getað grátið og hlegið í senn. Hann fálmaði sífellt upp í bindishnútinn sinn og vissi ekkert hvað hann átti að segja. Ég hugsa að hann hafi verið að gera það upp við sig, hvort hann ætti að voga að kyssa mig tröppukoss. Æ, æ og ósköp.... ég get hálfpartinn vorkennt honum. Hvení vegna eru allir sem fylgja mér heim svona klaufalegir? Svo sagði hannf „Góða nótt Edda mín....“ Og hann minnti mig á pabba sem er fæddur hér í Reykjavík og er svo órómantískur að hann lét byggja sumarbústað uppi I Kjós. Ég fer þangað aldrei". einskis virði. Á þær er aðeins skrifað fáeinar athugasemdir um lífið í skólan- um. Á blaðsíðu 113 stendur reyndar þetta: „Hólmar mætti ekki í skólann í dag. Hann er farinn að mæta svo illa upp á síðkastið". Raunar er öll bókin mér einskis virði — ekki framar. Kannske brenni ég hana — eða ríf hana í tætlur og fleygi ögnunum í öskutunnuna — örsmáum ögnum, það skal ekkert heilt orð vera eftir. Ekkert sem stendur í henni er mér nokkurs virði framar. Jafnvel ekki síða 114 þótt það hafi verið glaðasti og kannski um leið sárasti dagur í lífi mínu. Þegar ég les þessar línur núna fyllist ég leiða. Ekki vegna þess sem skeði — ég hugsa að eitthvað svipað gerist í lífi flestra stúlkna. Heldur hins hve allt er breytt. Og ég les: „Fimmtudagur — Það rigndi eins og hellt væri úr fötu. í gær snjóaði en í dag rigndi og göturnar eru eitt krapa- flag. Sem betur fer á ég góðar bomsur og þær eru fóðraðar innan með skinni. Hólmar kom í skólann og enskukenn- arinn spurði hvort hann hefði verið veikur í gær. „Já, ég var kvefaður", sagði Hólmar. „Það er einmitt það“, sagði ensku- kennarinn. „Það er eins og það sé veðr- ið til þess arna. Gleymduð þér að fara í skóhlífarnar?" Hann getur verið svo neyðarlegur enskukennarinn okkar. ííólmar roðnaði út undir eyru .... Svo var hann svo niðurdreginn í allan morgun og Kristín Helga leit ekki við honum. Birna segir að hún stundi Borgina á kvöldin og sé alltaf með ein- hverjum sjötta bekking. Ég hélt að dag- urinn ætlaði aldrei að líða. Klukkan korter yfir átta hringdi Hólmar og sagð- ist eiga tvo miða í bíó. „Ertu til“, sagði hann. „Já“, sagði ég. „Hvar ertu?“ Ég var víst áköf í símanum. „Niður í bæ“, sagði hann. „Kemurðu?" sagði ég. „Ég kem“, sagði hann og lagði tólið á. „Hann er ennþá í daufu skapi“, hugs- aði ég. „Hvað stendur til?“ sagði mamma. „Ég er að fara í bíó“, sagði ég. „Edda — þú hefur ekki litið í bók‘*s „Æ — ég er að fara í bíó“. Svo kom hann. Myndin var víst nauða ómerkileg. En mér var sama um allt. Við sátum oftast uppi í Stjörnubíói og myndin var ekk- ert atriði. Ég lifði sjálf tíu filmur — ég Framh. á bls. 12 CONRAD FERDINAND MEYER: ÞAGNARSKÓGUR Mitt athvarf varstu í æskuhörmum mínum, og aldrei, Þagnarskógur, brástu mér, er fyrir draums míns fleygu furðusýnum og fyrstu hjartasorg eg trúði þér. Þinn dimmi laufagnýr, er hátt sig hefur úr hyljum skuggablám, mig kallar nú. Mín kæti þegir, kvöl míns hjarta sefur. Nú kem eg til að hlusta. Tala þú. Guðmundur Frímann ísl. 26. tölublað 1962 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.