Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Page 6
Aalmanakinu eru fjórar árs- tíðir, en í New York eru þær sex. Fyrir utan sumar, vetur, vor og haust eru sumarleyfatíðin og gleðskapartíðin. Það er sú síðar- nefnda, sem fyrrverandi New York- búar eiga við, þegar þeir segja að þeir saltni „the season“. — Borgin breytist allmikið um þetta leyti, og borgarbúar taka að búa sig undir að skemmta sér. Kvikmyndahúsin fleygja frá sér myndum, sem hafa gengið í sjö mánuði fyrir hálfu húsi. Það koma ný nöfn í slúðurdálkana, ný nöfn í veizlurnar og sjónvarps- viðtölin. Og gleðskapartíðin er h'ka auglýsingavertíð. í ár hlakka stjörnusmiðirnir til að nota nýtt verkfæri, nefnilega Telstar. I>að er varla efi á, að kvikmyndafélög- in kaupa sér auglýsingatíma í Telstar. Hann hefur þann mikla kost að geta sjónvarpað vítt og breitt og stjörnur himingeimsins geta bráðlega fengið að sjá myndir af nöfnum sínum í Holly- wood. Hinsvegar má búast við að stjörnurnar verði skammlífari, þegar hægt er að láta mynd þeirra drekkja öllum hnettinum á svipstundu. Menn sjá þær fyrir sér í vöku og svefni, og verða strax leiðir á þeim. Sjálf stjörnusmíðin fylgir jafn ströng- um helgisiðum og elddansinn og er jafn erfið. Þegar á annað borð er búið að festa fé í hráefninu, verður það að gefa eitthvað í aðra hönd. Það verður að halda nafninu að almenningi og þess vegna er sjónvarp orðið mikilvægt við smíðina. Sjónvarpið nær til þess hluta almennings, sem ef til vill man ekki nafn en gleymir ekki andliti. Sýningin byrjar vanalega um það bil tveim vikum áður en frumsýna á mikilvæga mynd. Nýstirnið flýgur til borgarinnar, og darradansinn byrjar um leið og stiganum er ekið að flugvélinni. Hinsvegar verður stjarnan auðvitað að koma síðust út, svo að dauðþreyttir verzlunarmenn og aðrir vesalingar, sem eiga erindi til borgarinnar, spilli ekki myndunum. í gömlu sjö ára samningunum var venjuleg ákvæði um, að leikkona skyldi „fyrstu fimm samningsárin sýna líkams- töfra sína á auglýsingamyndum, auk kvikmynda“. — Hollywood hefur ekki lengur efni á sjö ára samningum, en venjan hefur haldizt við. Hvergi er eins auðvelt að láta pilsunum blása yfir höfuð sér og í flugvélardyrum. Það má alltaf nota blásara, ef svo illa vill til að logn er, og enginn blaðaljósmyndari með sómatilfinningu situr af sér jafn gullið tækifæri. Þetta er samt bara reykurinn af rétt- unum. Aðalrétturinn er borinn fram daginn eftir, þegar sú nýja er formlega kynnt fyrir blöðunum. Stjarnan getur látið sér nægja að brosa og töfra, hún er umkringd og studd af blaðafulltrú- um og auglýsingastjórum, sem svara erfiðum spurningum, eins og: „Hvað hefur myndin kostað?“ og „hvað er bú- izt við miklum tekjum af henni?“ að er um að gera að nota daginn, þó hann verði langur og erfiður, og stjarnan borðar um það bil sjö máltíðir opinberlega. Að auki koma svo einn eða tveir síðkvöldverðir í litlum klúbb- um, þar sem slúðurdálkahöfundarnir framkvæma rannsóknir sínar. Hráefni þjóðsögunnar um smástirnið er útlit hennar, föt, hverjum hún er með o. s. frv., og þarf venjulega að vinna mikið úr því áður en. það er markaðshæft — eins og öðrum hráefnum. Nú er í Hollywood tízka að hafa stjörnurnar venjulegar í útliti og sú tízka hefur rekið margan auglýsinga- stjórann til annarra starfa. Samt eru nógu margir eftir til að spyrja hinna nauðsynlegu spurninga. Það er ekki erfitt að fá hana til að trúa spyrjend- unum fyrir fegurðarleyndarmálum sín- um (ég bursta hárið á mér upp úr haframéli) slúðurdálkahöfundunum fyr- ir róman’tísku leyndarmálunum (við er- um bara góðir vinir). Vikuritin fá svo hin allra helgustu leyndarmál (æðsti draumur minn er að komast á þing). Til tilbreytingar neita þær stund- um að svara öllum spurningum. Það er piý>ðileg tækni, ef ekki er gert of mikið af því. Ef vel gengur er skrifuð um hana fjögurra síðna grein með mynd- um, þar sem hún er að gefa uppáhalds jagúarnum sínum, lesa „Nasyrninginn" eða læra hlutverkið sitt í baðinu (það virðist vera eini staðurinn til að læra hlutverk á). Kvikmyndablöðin eru stjúpbörn aug- lýsingastjóranna. Þau einkennast af fjálglegum stíl, þykkt smurðum með upphrópunarmerkjum og óþörfum spurningarmerkjum: „Þá var það, að krumla óttans nísti hjarta hennar og í fyrsta skipti í fjögur ár komu hinar æðislegu minningar aftur. Eddie! Kom- inn aftur? Hvað nú? ó, drottinn! Hvað myndi nú ske?“ Kvikmyndablöðin eru, nú orðið, að- eins afturgöngur af því sem þau voru á fyrri frægðardögum. Fjálgleikinn er að kæfa þau. En þau skrimta enn með aðstoð fegrunarauglýsinga og þeirrar kenningar, að allt* umtal sé betra en ekk-i neitt. Þau virðast hvergi lesin nema á hárgreiðslustofum og lesend- urnir virðast nær eingöngu vera innan við fermingu með rúllur í hárinu. En þetta virðist nægja til að unnt sé að gefa þau út. Þarfir þeirra eru fábrotn- ar eins og innihaldið. Fyrir utan blöðin eru svo ýmis- konar brögð. Nýstirnið er nærri ávallt kosin einhverskonar drottning. Það skiptir engu máli yfir hverju hún ríkir, ef aðeins er hægt að ljósmynda hana með fullt fangið af blónium og fínt fólk í kringum sig. Hvar sem margmenni safnast saman, er henni stillt út. Allt má nota, hvort heldur verið er að opna fiskbúð eða vígja kirkju. Jafnvel bóka- og hljómplötuverzlanir er hægt að nota fyrir sýningarstaði. Flestar kvikmyndir innihalda einshverskonar hljóðfæraleik og eru gerðar eftir bók. Ef leikkonan er við hendina til að skrifa á bækurn- ar, bíða lesendur ekki eftir að hún komi út í vasaútgáfu. Kvikmyndahátíðir eru fyrsta flokks tækifæri til að sýna vöruna. Menn leikara og leikkonur. Aðeins vesalings dómararnir verða að híma í sýningar- sölunum. AHir aðrir eru að spóka sig í sólskininu og skoða gripina. Oft er erfitt að komast að, hvað er verið að sýna á hverjum stað, en allir vita hve- nær stjörnurnar eiga að „koma upp“. Auðvitað er bezt að halda hátíð- irnar á baðströndum, því þar geta stjörnurnar verið í sundfötum. Því mið- ur eru allir orðnir leiðir á búningnum. En alltaf finnast nýjar leiðir. Ein stúlk- an kom með ref til Cannes í vor. Bragð- ið nægði til að koma henni í Life, en á næsta ári neyðist hún til að hafa með sér gírafa. Cannes verður áreiðanlega eins og dýragarður. Nú er komið að öðrum þætti í her- ferðinni og nú fyrst verður líf í tuskun- um. Aðalatriðið er að koma nýstirnun- um í sjónvarp. Til að það takist verður fyrsti þáttur að hafa tekizt vel, því að sjónvarpsstjórarnir hafa aðstöðu til að taka aðeins frægt fólk. Sjónvarpið gegn- ir tvöföldu hlutverki, kynna þá ó- þekktu og halda þeim, sem þegar eru orðn-ir þekktir, að almenningi, Vinsæl- ustu stjörnurnar geta stundum hummað fram af sér viðtölin og auglýsingasvið- setningarnar, sleppt kvikmyndahátíðun- um og gefið kvikmyndablöðunum langt nef, en enginn hefur efni á að snúa baki við sjónvarpsvélunum. Leikararnir koma venjulega fram sem gestastjörnur og áhorfendum er tilkynnt um komu þeirra nokkrum dög- um fyrirfram, en auðvitað er ekki sagt, hver gesturinn er, til að fólk verði for- vitið. ví vinsælli sem sjónvarpsdag- skráin er, því frægari eru gestastjörn- urnar. Stundum gera þær ekkert annað en fylla út í skerminn, en revíudag- skrárnar heimta, að gestirnir geri eitt- hvað smávegis. Þetta verður að gerast á flykkjast á hátíðirnar, ekki til að horfa haustinu á kvikmyndir, sem eru í hverju kvik- myndahúsi, heldur til þess að skoða þann hátt, að áhorfendur fái löngun til að horfa á stjörnurnar, en varast verð- ur að seðja þessa löngun. Það síðast- nefnda verður þó oft erfitt, því að fjór- ar til fimm slíkar sýningar eru nauð- synlegar í hverri herferð. Þegar viðtölin, fréttamyndirnar, sjón- varpssýningarnar og útvarpsávörpin eru búin, kemur að sjálfri frumsýningu myndarinnar. Frumsýning kvikmynda á talsvert sameiginlegt með gamlárs- kvöldi, valdatökudegi forsetans og Bast- illudeginum, en er þó ólík þeim öllum. Hún er einstætt fyrirbrigði, einskonar vasaútgáfa af Hollywood, með ljósum, látum, myndavélum, kossum, tárum, hamingjuóskum og allsherjaróskapnaði. Frumsýningin er bæði upphaf og endir. Enginn þykist í alvöru trúa að gagn- rýnin geri út um örlög kvikmyndar, enginn veit hvað gerir út um örlög þeirra í raun og veru, en marga grunar að það séu auglýsingaherferðir. IV ú er komin aðferð til að láta þetta allt gerast á öldum ljósvakans. Stjörnuferillinn getur byrjað að morgni dags, verið kominn á rekspöl á hádegi, náð hátindi sínum eftir kaffið og verið orðin þjóðsaga daginn eftir. Það er synd og skömm, að nafnið Telstar (Firðstjarna) var notað á tækið sjálft. Það hefði verið svo prýðilegt nafn á framleiðslunni. (New York Times) 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.