Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1962, Síða 11
Fyrstu kynni mín af Stööv- arfirði og Stöðvfirðingum Ég var að íara yfir Hvalneðháls í ^TIR VIGFÚS GUTTORMSSON FRÁ STOÐ Stöðvarfirði, þegar ég leit Stöðvarfjörð fyrsta sinn. f»að var sumarið 1'888 og ég var þá 9 ára gamall. Foreldrar minir, séra Guttormur Vigfússon og kona hans Friðrika Þórhildur Sigurðardóttir voru þá að flytja búferlum frá Svalbarði í Þistilfirði að Stöð. Við vorum 4 systkin- in. Ég, Guðríður, Guðlaug og Sigríður og trvö vinnuhjú, Bjarni Bjarnason og Ingibjörg Friðbjarnardóttir. Mér þótti fjörðurinn sérkennilegur og mjög ólíkur Þistilfirðinum og öðrum sveitum er ég hafði áður séð. Þistil- fjörðurinn miklu stærri sveit, breið og búsældarleg, undirlendið langtum meira og fjöllin í kringum langtum lægri en umhverfis Stöðvarfjörð. (í Svalbarðs- landi voru t. d. lágir ásar og víðáttu- miklir, grösugur flói milli ásanna og yfirleitt var þar talið víðsýni.) Það sá- ust nokkrir bæir frá Svalbarði, svo sem: Garðstunga, Skóarland, Brekkukot, Her- mundarfell, Garður Og Flautafell. Stöðv- arfjörðurinn var aftur á móti lítil sveit og sjóndeildarhringurinn nokkuð þröng- ur. S amt sem áður þótti mér hann engan veginn sviplítill eða svipljótur. Það voru hinir tignarlegu og traustu fjallkóngar og hafið auðga og fisksæla, sem fóstrað hefur að nokkru leyti stöð- firzka sveina og meyjar um langan tíma, er mér fannst setja á hann myndarsvip íslenzkrar náttúru. Byggðin fyrir austan fjörðinn blasti og brosti við okkur hlý- leg og yingjarnleg með slegnum og hirt- um túnum, a.m.k. að einhverju leyti, því þetta var í ágústmánuði. Við héldum nú miður hálsinn og inn Hvalnesströndina. Þá horfði Stöðvardalurinn í hinum ið- græna sumarskrúða sínum til okkar og bauð okkur velkomin til dvalar í firð- inum sínum og sveitinni og mætti taka sér í munn orð skáldsins: Allt breiddi faðminn mót lífinu laðandi landið og hafið í sólroða baðandi.. F ól'kið í Stöð veitti okkur hinar beztu móttökur. Þar bjó Helga Jóns- dóttir, ekkja séra Jóns Austmanns. Hann dó sumarið 1887. Helga hálfsystir mín var uppalin hjá þessum hjónum, sem voru foreldrar Málfríðar fyrri konu föður míns. Ég sá hana nú í fyrsta sinn. Það var margt vinnufólk hjá maddömu Helgu, 5 vinnumenn og 3 vinnukonur. Vinnumennirnir voru: Daníel Sigurðs- son og Jóhannes bróðir hans Árnason, Anoníus Þorsteinssón, Björn Einarsson og Jón Björnsson, seinna oddv. og ihreppstjóri St. f. Vinnukonurnar voru: Sigurbjörg, síð- ari kona Þórðar Árnasonar, Sigríður og Margrét öldruð kona, sem kom með Béra Jóni að norðan. Sigríður og Sigur- björg voru systur Daníels og Jóhann- esar. Allt þetta fólk laðaði mann að sér *neð góðsemi og kátínu, svo að það var tæplega hægt að láta sér leiðast, en það var lí'ka sitt hvað fleira sem jók mér yndi og ánægju. Það voru þarna tveir ágætir reiðhest- «tr sem maddama Helga átti. Ég hafði mjög gaman af að koma þeim á bak. Hestar þessir hétu Glói og Stjarni. Þeir voru rauðir á lit og glófextir. Faðir minn étti líka tvö hesta, sem voru allgóðir sér. Þeir hétu Svalur og Glámur. Svalur brúrublesóttur með mjóa blesu fram á hausnum en Glámur rauðbles- óttur með breiða blesu hvíta. Þetta voru mestu stólpagripir. Svalur var gamm- vakur og þolinn ferðahestur, þá 18 vetra. En því miður varð að leggja hann að velli um haustið vegna fóðurskorts. Það sagði faðir minn að hann hefði ekkert verið farinn að láta sig og hefði því verið mesta eftirsjón í honum. á var enn eitt, sem gjörði sitt til að auka ánægjuna. Það voru berin. Við systkinifi þurftum ekki að fara nema rétt upp fyrir túnið til að fylla ílátin af krækiberjum, bláberjum og aðalbláberjum. Þessu hnossgæti vorum við óvön frá Svalbarði. Þó fékkst svo- lítið bragð af vísum eða hálfvöxnum berjum nokkuð fyrir austan bæinn á Svalbarði í svonefndum Barnalágum. Mér fannst yfirleitt vera úr fleiru. að moða þarna í Stöð en fyrir norðan. Það var heldur ekki mjög leiðinlegt að vera með piltunum þegar þeir voru að draga fyrir silunginn. Það var hreinasta unun að horfa á, þegar þeir fóru að buga og draga á land og bröndurnar fóru að gefa af sér og gusa frá sér, síkvikar, iðandi og spriklandi, reynandi til að forða sér úr þessum heljargreipum. Það var annars mikil björg, sem kom oft úr Stöðvarfirði á þeim dögum (og hefði 'þó mátt vera meiri). E g hafði mjög gaman af einni ferð, sem ég fór með foreldrum mínum um sumarið, seint í ágúst. Við fórum ríð- andi austur að Kolfreyjustað og Dölum, út fyrir fjall og inn fyrir Fáskrúðsfjörð, stóðum við hjá Jóni bónda á Eyri, föð- ur Stefaníu, konu Þorsteins. Jón fylgdi okkur að Búðum. Þar voru þá ekki nema örfá hús. Svo héldum við út norð- ur byggðina að Kolfreyjustað og gist- um hjá séra Jónasi Hallgrímssy^i og frú Guðrúnu Arneson. Þar var tekið á móti okkur með íslenzkri gestrisni. Séra Jón- as og faðir minn voru skólabræður frá Latínuskólanum. Daginn eftir héldum við inn að Dölum og fylgdi okkur inn- eftir sá maður, sem hét Páll Jökull, hann var náskyldur séra Páli í Þing- múla, málleysingjakennara. Honum þótti áreiðanlega góður sopinn, því hann var öðru hverju að skvetta í sig á leiðinni, en skemmtinn var hann og ræðinn við okkur á leiðinni. Pabbi og hann voru eitthvað saman í skóla. Við héldum til nokkra stund hjá Jakobi bónda á Brim- nesi. Hann var maður Ólafar Stefáns- dóttur prests frá Kolfreyjustað. Okkur var tekið í Dölum með miklum ágætum. Þar bjó Björn Stefánsson og kona hans Margrét Stefánsdóttir. Þau áttu 6 börn, 5 dætur oig 1 son, sem hét Stef- án. Hann varð síðar ritstjóri Lögbergs í Ameríku og prestur á Hólmum í Reyð- arfirði Og Eskifirði og prófastur í Suður- Múleisýslu. . Systurnar voru: Þórunn, Lára, Val- gerður, Herborg og Hólmfríður, Við Lára og Valgerður vorum á svipuðum aldri. Við gistum eina nótt í Dölum og héldum síðan suður að Stöð aftur. Eftir þessa ferð myndaðist mikill kunnings- skapur milli fjölskyldnanna í Stöð og í Dölum og miklar indælis stundir voru okkur systkinunum veittar, þegar okk- ur var leyft að bregða okkur á hestum yfir Stöðvarskarð. Þetta var rúmlega þriggja -etunda ferð á góðhestum. E g var í einni brúðkaupsveizlu um haustið. Það var þagar þau giftust Benedikt Benediktsson og Guðrún Árna- dóttir. Þar þótti mér gaman að vera, því þar var glímd ramm íslenzk glíma. Beztu glímumennirnir sem þar voru, voru þeir Gísli Högnason á Eydölum, tengdasonur séra Magnúsar Bergssonar og faðir Magnúsar fyrrverandi sýslu* manns í S-Múlasýslu, Daníel Sigurðs- son í Stöð og Benedikt, sjálfur brúðgum- inn. Þessir menn glímdu áreiðanlega af list og kunnáttu. Þeir notuðu einna mest klofbragð og skelltu hver öðrum á víxl. Það var borðað, drukkið og sungið í tjaldi fram og niðri á Hvalnestúninu. Ævin leið alveg eins Og í draumi fyrsta sumarið mitt í Stöð. Eg man ekki til þess að neitt skyggði á í lífi mínu. Þó fann ég það vel að byggingin eða húsakynnin í Stöð voru hrip og lá mikil vinna í því að ausa út lekavatninu, þeg- ar mest rigndi. Þegar frá leið eða fram liðu stundir var auðvitað smám saman bætt úr þessu. Ég ætla ekki að fjölyrða meir um þetta en víkja að því, hvað fyrsti veturinn minn í Stöð hafði í skauti sínu. Já, það var virkilega oft glatt á hjalla í þrengslunum í Stöðvarbaðstof- unni. Það var mikið sungið í rökkrun- um. Margt af fól'kinu var sönghneigt, svo sem foreldrar mínir, Helga systir mín, systurnar Sigurbjörg og Sigríður og Þórður Ámason, sem var mjög músíkalskur maður. Hann spilaði vel á einfalda harmoniku og var forsöngvari í kirkjunni. Faðir minn kenndi okkur Helgu systur minni og Stefáni Björns- syni frá Dölum m. a. latneska málfræði, og finnst mér ég vel geta talið þær stundir, sem hann var að fræða okkur og kenna, til skemmtistunda. Við Stefán frændi glímdum mi'kið og hafði ég ákaflega gaman af að iðka þá íþrótt. Alltaf hafði hann yfirhöndina, enda var hann þrem árum eldri en ég, en oft gekk honum seint að fella mig, því ég var liðugur en hann miklu sterk- ari. Hann skellti mér venjulega á snið- glímu. Seinni hluta vetrarins fóru þeir að ganga til spurninga til föður míns: Þórður Magnússon, á Einarsstöðum, Ein- ar Benediktsson á Hvalnesi og Bjarni Björgúlfsson á Kömbum. Ég fór stund- um á móti þeim til að bjóða þeim í bröndótta. Ég man ekki betur en við Þórður bærum sigur af hólmi í viður- eigninni við Einar og Bjarna. Glímu- brögð þau, sem við notuðum voru aðal- lega: hnébragð, klofbragð, leggjar- bragð og hælkrókur. Þessir dreng- ir, sem ég nefndi voru beztu piltar og vel gefnir. Bjarni dó tveim árum síðar Og þótti mér þá vera höggvið skarð í ungmennahóp Stöðvarfjarðar. E g vil geta hér helztu hjóna, sem voru í Stöðvarfirði þegar ég kom þangað. Á Heyl^ifi bjuggu þá Ari Brynjólfsson og Ingibjörg Högnadótt- ir. Ari var þá oddviti Stöðvfirðinga og Breiðdælinga, því að Breið- dalur og Stöðvarfjörður var þá einn og sami hreppur. Ari var skýr- leiksmaður, tölugur á fundum og ein- arður, varð síðar þingmaður Sunn- mýlinga eitt ár. Hann var mjög dug- legur smiður og við allt sem hann snerti á, og yfirleitt voru þau hjón mestu sómahjón. Þá bjuggu á Kömb- um Björgúlfur Stefánsson og Kristím Framh. á bls. 13 Nýleg mynd frá Stöðvarfirði (Ljósm. G. Á.) 28. tölublað 1962 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.