Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Blaðsíða 8
OSCAR CLAUSEN: HÉR verður sagt frá séra Árna Jónssyni, sem prest- nr var á Hofi á Skagaströnd árin 1673—’79, og madömu hans, Ingi- björgu, sem hlaut viðumefnið Galdra-Ingibjörg eða Galdra-Imba, en þau hjónin voru ramm-göldrótt, og voru mikil málaferli gjörð á hendur presti, einkum af yfirvöld- um kirkjunnar, sem honum tókst ekki að hreinsa sig af. Séra Árni var í báðar ættir kominn af góðum og gegnum guðsmönnum. Hann var sonur síra Jóns Egilssonar á Völl- ■uim í Svarfaðardal og kion-u hans, ma- dönuu Þuríðar Ólafsdóttur lögsagnara frá Miklagarði og Núpafelli, Jónssonar prests i Laufási Sigurðssonar. Áður en síra Árni varð prestur á Hofi, hafði hann verið nokkur ár prestur í Fagra- nesi og Sjávarborg. Þegar á ' prests- skaparárum hans í Fagranesi fór orð af göldrum hans, enda urðu þar mikil málaferli útaf viður- eignuim hans við ýms sóknarbörnin, en þótt guðsmaðurinn væri göldróttur og (harðsnúinn, þótti þó madama Ingiibjörg enn verri viðureignar. Skal nú sögð ein gaMrasagan frá Fagranesi: Eyjólfur hét maður Grímólfsson og bjó á Fossárteigi á Reykjaströnd, mynd- ax bóndi, var fjórkvæntur og átti 7 börn með hverri konu, sem verða 28 börn atls, en það þykir, að minnsta kosti nú á döguim ekki lítill dugnaður, útaif fyrir * sig, að geta eignast slíkan barnahóp. Eyjólfur þessi var þannig barnmargur í meira lagd, en hann var þó lí'ka margfróður ekki síður en prests- hjónin í Fagranesi. Deila varð út af ýmsu milli Eyjólfs og prestshjónanna, en einkum þótti þeim ’hann ýtinn í því að beita búpening sínum á land prests- setursins, og útaf þessu urðu ýfingar, sem nú skal að nokkru getið. E inu sinni fór Eyjólfur til kirkju með heimilisfólki sínu og var með því hundur, sem rann inn veginn, en Eyj- óifur bað fólkið að ganga neðar með sjónum, og kvað það styttra en eftir veginuim. En þegar minnst varði, sýnd- ist fóllkinu koma blá gufa á móti hund- inum, og þeyttist hann í loft upp og datt svo dauður niður. Eyjólfur sagði þá fólíki sinu, að því hefði verið ætlaður þessi dauðdagi. — Það er sagt, að madama Imba hafi sagt þegar hún sá til þeirra Eyjólfs: „Bölivaður fari hann Eyjólfur! Nú kemur hann utan með sjó“. — Eyj- ólfur var við messu, og er þess ekki getið ,að hann hafi átt neitt samtal við prestshjónin, en á mánudagsmorguninn, þegar komið var í fjósið í Fagranesi, lá beata kýrin dauð á básnum, og kenndi madaman það Eyjólfi, en hann taldi kúna aðeins litlar hundsbætur, því að rakkinn hefði verið sér mikils virði. Margt fleira ábtust þau við, madaman í Fagranesi og Eyjólfur á Fossárteigi, sem þó verður ekki sagt frá hér, en Eyjólfur reyndist einn skæðasti mótstöðu maður síra Árna, eftir hann komst í hin miklu galdramál, sem siðar getur. E flaust hefur síra Árni í Fagra- nesi verið farið að leiðast deilurnar við sóknarbörnin á Reykjaströndinni, því að 4. apríl 1673 fókk hann samþykki herra Gisla Þortákssonar Hólabiskups til þess að hafa brauðskipti við síra Þorstein Jónsson á Hiofi á Skagaströnd, og flubtist hann þangað sama vorið. Fyrstu 5 árin, sem síra Árni var á Hofi, fóru litlar sögur af göLdrum þeirra hjóna og fjölkyngi, en vorið 1678 er orðið svo órólegt í kringum þau, að prófasturinn í Húnavatnssýslu tilkynnir herra biskupinum á Hólum „hið magn- aða galdrarikti", sem fari af Árna presti á Hofi og madömu hans. — Herra bisk- upinn, sem var víst stjórnsamur vand- lætari fyrir hönd kirkju sinnar, brást fljótt við, og fyrirskipaði prófasti að rannsaka málið, sem hann og gjörði eft- ir því sem efni stóðu til á því stigi þess, og gaf hans herradómi skýrslur um það. Það vildi nú svo til, að halda átti prestastefnu Hólastiftis á Flugumýri í Skagafirði, í september um haustið, og skyldi galdramál þetta takast þar fyrir, en af þessum fundi guðsþjónanna varð ekki vegna óveðurs. Svo var þessi sam- koma haldin í Spákonufelli vorið eftir, eða 5. maí 1679, og var síra Árna dæmd þar „undanfærsla, tylftareiður, og að hann útvegi sér sönnunarmann", þ.e.a.s. að hann skyldi sýkn af galdra-ákærunni, ef hann gæti fengið tylft (12) manna til þess að sverja með sér sakleysi sitt, en þetta voru nú bæði landslög og lög kirkjunnar í þá daga, þó að oss mundi nú þykja slíkar sannanir fyrir sakleysi manna harla kátlegir hlutir. P restastefnan í Spákonufelli var sett „með heilagri bæn og ákalli til Drottins", um náð sína og miskunn, líkt eins og prelátar landsins gjöra enn í dag, við slík tækifæri. Þar var að sjálf- sögðu mættur „virðuglegur stiftisins superintendent“ herra Gísli biskup Þor- láksson, og auk þess 3 prófastar og 9 prestar, þ.e. „heiðarlegir kennimenn Hólastiftis". — Fyrsta málið, sem stefna þessi tók til meðferðar, var galdramál síra Árna, eins og í gjörðabókinni stendur, „að yfirvega og tractera, sem og fullnaðardóms atkvæði á að leggja, eftir lögum og góðri samvizku, á það vandasama stórmæli og fjölkyngis- áburð, sem presturinn, síra Árni Jóns- son á Hofi á Skagaströnd hafði borinn verið“. — Kærendurnir voru fjórir megtarmenn, þrír voru lögréttumenn, sem svara, sem næst til alþingismanna nú á tímum. Þeir hétu, Jón Egilsson, Halldór Jónsson og Sigurður Jónsson, en fjórði kærandinn var réttur og slétt- ur bóndi, ívar Ormsson, en talinn „heiðarlegur búandmaður“. — Allir voru þessir kærendur persónulega mætt- dr á prestastefnunni, sem og hinn á- kærði guðsþjónn, síra Árni prestur „í eigin persónu", enda hafði herra biskup- inn stefnt þeim öllum þangað með gögn sín. — t Jón Egilsson, lögréttumaður í Húna- vatnssýslu, er fyrstur látinn bera fram ákærur sínar fyrir hinum geistlega sakarétti. Hann segist hafa þá, Árna prest ásamt Stefáni nokkrum Gríms- syni, grunaða um, „að hafa skemmt með fjölkyngi kýr á sínu heimili". Jón segist hafa borið þetta á prestinn, en hann hafi harðneitað, og enga sök þótzt eiga á þessu. En svo hafi hann lent f „óeiningu“ eða deilu við guðsmanninn á Hofi, og eftir það hafi skaðinn orðið hvað mestur á kúnum. — Að því búnu lagði Jón Egilsson fram vitnisburð 12 manna, sem allir segjast vera sömu skoðunar og Jón viðvíkjandi grunsemd- inni um galdra síra Árna. Af þessum 12 vitnisburðarmönnum skrifuðu 6 undir skjalið með eigin hendi, en aðrir 6, eða réttur helmingur þeirra var ekki skrif- andi, og urðu því að handsala nöfn sín öðrum mönnum. En máske hafa þeir, þrátt fyrir bága uppfræðslu, verið vitnisbærir um galdur eða yfirnáttúr- lega hluti. — Hsks ber Jón Egilsson það fram, að síra Árni „væri af göldrum og fjölkyngi riktaður“, og hafi það verið staðfest með svardaga tveggja manna, Jóns Gúðmundssonar og Hermanns Þor- bjarnarsonar á Vindhælisþingi þá urn vorið, eða 26. apríl 1679. egar Jón Egilsson hafði boriíl fram ákæru sína, spurði virðuglegur herra biskupinn og prestar hans, hverj- ar varnir síra Árni hefði fyrir sig að bera, gagnvart ákæru Jóns. — En síra Árni kvaðst engar hafa. Þó lagði prest- ur þarna fram vitnisburði nokkurra „frómra manna“, um kynni þeirra af sér, en þessi virðuglega ráðstefna guðs- þjóna, komst að þeirri einkennilegil niðurstöðu, að þeir væru gagnslausir i þessu máli og kæmu því ekki við, með því að sumir þeirra væru fyrir löngu útgefnir, og allir áður en þetta galdra- mál yæri hafið á hendur honum. Það var því sýnilegt, að síra Árni átti við ramman reip að draga, þar sem bræðue hans, guðsmennirnir, voru á aðra hönd. Annar kærandinn, Halldór Jónsson, sem einnig var lögréttumaður í Húna- vatnssýslu, kom nú til skjalanna. Hanu var vel undir búinn, og lagði fram skrif- lega kæru á hendur síra Árna, og þar segir hann m.a.: „að djöfuls ásókn og ónáðun hafi á sitt heimili komið, með ógn og ofboði á sér og sínu heimilis- fólki, að Gunnsteinsstöðum í Laugadal, og grunsemd fengið slíkan djöful sér og sínu heimili sendann af Árna Jónssyni presti, til ótta, ógnunar, tjóns og for- djörfunar, þar til hann með fullurri lagaeiði sig frá því frelsar, hvar til og hvar upp á hann frekari áburð framber svohljóðandi: Eg held og segi, eftir minni fremstu hyggju og vitund, fyrr- téða ónáðun á mitt heimili komið hafri af fjölkyngisvöldum og verkum Árna prests Jónssonar....“ Til stuðning9 þessari ákæru sinni, lagði svo Halldór á Gunnsteinsstöðum fram vitnisburð 3 manna, sem höfðu staðfest þá á mann- talsþingi í Bólstaðahlíð um vorið, og auk þessa lagði hann fram yfirlýsingu 21 manns um það, að Halldór „segi satt í sínum áburði upp á prestinn síra Árna“. — Það var því vissulega enginn viðvanirtgsbragur á málsókninni hjá lögréttumanninum á Gunnsteinsstöðum, á hendur presti, enda hafa lögréttu- menn fyrr á öldum eflaust verið æfðari í málaferlum og lagakrókum en sauð- svartur almúginn, eða jafnvel útvaldir þjónar guðs, sjálfir prestarnir. En þeir sátu líka, samkvæmt stöðu sinni, dóma í lögréttunni á Alþingi, og hafa því, án alls efa, margir þeirra verið slyngir lagamenn. —- egar Halldór lögréttumaður hafði lokið við flutning ákæru sinnar og lagt fram fyrnefnd gögn sín, reis hana herradómur biskupinn ásamt preláturu sínum, úr sætum og bar þá spurningi* fram fyrir séra Árna, hvort hann hefði nokkrar varnir eða gögn fram að færa, á móti þessum áburði Halldórs, er» prestur kvaðst engin hafa, með því að hann væri gjörsamlega saklaus af öll- um galdraáburði. Þriðja ákærandinn, sem fram kom ( réttimim, var „hinn ,heiðarlegi búand- maður“, ívar Ormsson. Hann kvað síra Árna vera valdan „að kvinnu sinnar, Ólafar Jónsdóttur, ósjálfræði, veikleika og vitfirringu," og vísaði hann um þetta til þingvitna, sem hefðu verið tékin og eiðfest þessu til sönnunar. Herra biskupinn og meðdómendur hans, spurðu þá síra Árna hvort hann gæti nokkrar „afbakanir“ borið frarn móti þessum áburði fvars bónda, ea Framhald á bls. 12 g ð. tölublað 1963 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.