Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1964, Blaðsíða 9
fl :fl &6s&£iviýi> RANNSÚKNARSKIPID SEM STEND- UR UPP fl ENDANN Enda þótt hafaldan sé ein- hver mesti kraftur, sem um getur, og geti mölvað -hús, étið úr sjávarströndinni og þeytt stórum skipum til og frá, ná ekki áhrif hennar nema nokk- ur fet niður fyrir hafflötinn. Sterkur stormur getur ókyrrt haf ið á nokkur þúsund fermílna svæði, en nokkur fet_ niður frá hinum æstu öldum er ilölulega kyrrt belti. Kafbátar hafa fariö um þetta belti í meira en hálfa öld. -En nú er kom- inn þangað nýr gestur, sem „stendur upp á endann“, þannig að mestur hluti hinnar geysilegu lengdar hans er í kyrra sjónum undir öldunum. Þar af leiðir, að þetta far er næst- um jafnstöðugt og stólpi, rekinn í jörð, og býður haffræðingunum tæki færi til miklu nákvæmari mælinga en þeir hafa hingað til getað fram- ið. Þetta óvenjulega skiþ — sem er 355 fet á lengd og mestur hluti þess arar miklu lengdar aðeins 12.5 fet á breidd — er kallað Flip (Floating Instrument Platform) — og var fundið upp af haffræðistofnun há- skólans í Kaliforníu. FURÐULEGUR SXÖÐUGLEIKI. í fyrsta vísindaleiðangri sínum, sem FLIP er nýkominn úr til heima- hafnar sinnar, San Diego, sannaði hann, að hann hafði allan þann stöð- ugleika til að bera, sem vænzt hafði verið. Hann þoldi þrjátíu og fimm feta öldur og störm, sem var 50 míl- ur á klukkustund, í næstum heilan mánuð, án þess að hallast meira en eitt fet, og allan þennan tíma rak hann ekki meira en 55 sjómílur. í framtíðinni mun FLIP gegna merku hlutverki við hljóðrannsókn- ir neðansjávar, en stofnunin, sem gerir hann út er þegar heimsfræg fyrir slíkar rannsóknir. Sérfræðingar í sjávarhljóðum hafa lengi þráð einhverja fasta stöð, sem mælingar yrðu gerðar frá, án þess að „hávaðans*1 frá öldunum gætti, til truflunar. Stúndum er hægt að nota kafbát til þess arna, en á því er samt ýmis konar hængur, þar með talinn kostnaðurinn. Rekstrarkostnaðurinn við FLIP er hreinustu smámunir í samanburði við kafbát. FLIP var í 27 daga, marandi lóð- réttur, á stað u.þ.b. 1500 mílum norð- ur af Hayyai, á 2800 faðma dýpi, og framdi þar mælingar á hita og haf- öldum. Dvöl hans á þessum stað' var einn þáttur í rannsóknum á sunnan- flóðöldunni og minnkandi krafti hennar — frá séx stöðvum. Hinar fimm stöðvarnar voru á eyjum. Sunnan-flóðöldurnar, sem stafa frá stormum á suðurhvelinu orsaka að miklu leyti sumarbrimið við strend- ur Suður-Kaliforníu. FLIP mældi flóðöldur frá storm- um, sem voru næstum í hálfs hnatt- hrings fjarlægð, lengst suður á suð- urhvelinu. Öldurnar voru mjög lang- ar, en ekki nema 1-3 þumlungar á dýpt. FLIP gengur ekki fyrir eigin krafti heldur er hann dreginn í láréttri stellingu á staðinn þar sem hann á að starfa. Þá er dráttartauginni kast- að og skipshöfnin fyllir barlestar- geymana, sem eru 85% af lengdinni. Eftir því sem þeir fyllast, tekur stefn ið að rísa úr sjó. í stundarfjórðung eða þar um bil, sést sáralítil hreyf- ing. Stefnið stígur smám saman og skuturinn sígur. En svo þegar geym- arnir fyllast, rís 50 feta langa stefn- ið snögglega upp frá haffletinuim, á nokkrum sekúndum. FLIP er nú kom inn í lóðrétta stellingu og -lóðrétt hreyfing hans takmarkast við tíunda eða tuttugasta hluta ölduhæðarinn- ar. Um borð í skipinu verður lóðréttu hreyfingarinnar mjög lítið vart og skipshöfnin getur gengið að vísinda- störfum sínum þægilega og ótrufl- að. Þegar verkinu er lokið snúa menn Frúin er í eldhúsinu, fjölskyldan í borðstofunni — frísklegt fólk og glaðværL þetta batnað mikið og ekki að vita cema hafizt yrði handa í garðyrkjunni. Hún sagðist a.m.k. ekki hafa áhuga á reinu húsdýrahaldi, því slíkt kæmi allt- af Á veg fyrir að hægt væri að gera lóðina fallega. „Við höfðum einu sinni 25 hænur. Fálkinn drap þrjár hér fyrir framan eldhúsgluggann hjá mér og af- ganginn gáfum við smiði einum, sem vann dálítið fyrir okkur.“ Þeim þykir sem sagt nóg að hafa hestana og þetta eru orðnar stilltustu Bkepnur. Þær raska ekki svefnró fjöl- skyldunnar, a.m.k. vill enginn gera neitt Úr ónæðinu. Kristján Tómas sagði samt, að eitt sinn hefðu hestarnir vakið hann með einhverjum látum. Fór hann þá út í hesthús á nálbfötunum, skammaði dýr- in eins og hunda — og síðan heyrðist ekki meira í þeim. Að jafnaði eru þetta allt beztu vinir, Hallgrímur Tómas get- ur jafnvel gælt við hestana í hlaðvarp- anum. Yfirleitt er farið í reiðtúr um helgar — og á sumrin fer Ragnar með fjölskyld una í einn meiriháttar útreiðartúr — og er þá gjarnan gist einhvers staðar fyrir austan fjall. Annars aka hjónin lika mikið með börnin á sumrin, þykir skemmtilegast að hafa allan hópinn með sér, þótt ekki sé það alltaf hægt. — Kristján Tómas hefur t.d. unnið í Hval- firði undanfarin. sumur og því ekki ferð azt mikið með fjölskyldunni. Og í vetur trúlofaðist hann hjúkrunarnema svo að úr þessu fer hann eigin leiðir. Ekki svo að skilja, að þessum atburði hafi ekki verið fagnað í fjölskyldunni. Allir eru í sjöunda himni yfir þessu — nema þá helzt þegar þörf er fyrir bíl- irm — og hann týndur einhvers staðar vestur í bæ, en það er einmitt í Vestur- bænum, sem hjúkrunarneminn Hrafn- hildur Ágústsdóttir á heima. h.j.h. hana; háþrýstiloft blæs sjónum út úr geymunum og skipið kemst aftur í lárétta-stellingu. Við lárétta kjölinn er steinsteypufarg, sem tryggir það, að skipið komi rétt niður í láréttu stellinguna. Efri hluti FLIP, eða vinnurýmið er hólfað í fjögur rúm, hvert um 14x 25 fet að flatarmáli. í því neðsta sem er næst sjávaryfirborði, eru vélarnar, sem reka áhöldin. Þar eru tveir 60 kw og einn 10 kw rafall, knúðir af díselvél, allir hreyfanlegir, svo að þeir geti gengið hvort sem vera vill í lóðréttri eða láréttri stell- ingu skipsins. Uppi yfir vélarúminu eru íbúðirn- ar, þatf sem minnst 12 menn geta hafst við, í að minnsta kosti hálfan mánuð, án þess að hafa samband við umheiminn. Þessar íbúðir er hægt að nota, hvort sem skipið er í lóðrétti eða lárétti stellingu, þar sem öll hús- gögn, kojur o.þ.h. eru hreyfanleg. Aðalrannsóknastofan er uppi yfir íbúðinni. Þar’ eru öll rafmagnstæki. Uti fyrir rannsóknastofunni, sem næst 30 fetum yfir sjó, er opinn grindapallur, þar sem minnst tveir menn eru á verði meðan unnið er. Efsta hæðin er enn ein rannsókna- stofa, einnig með grindapalli úti fyr- ir. í þessari rannsóknastofu eru tveir loftþrýstar, sem fylla geymsluflösk- urnar, sem hafa 4000 teningsfeta rúmtak með 250 punda þrýstingi á ferþumlung. I allmörg ár hafa haffræðingar vit- að um þörfina' fyrir svona byggt skip Það var Hafeðlisfræði-rannsókna- stofnunin, sem ruddi brautina og kom fram með teikningu, sem gaf til kynna, að þetta skip yrði nothæft Nú, þegar það hefur sannazt, að svo er, verður það líklegt, að FLIP verði hið fyrsta í heilli röð neðan sjávar rannsóknastöðva. 8. tölublaS 1964 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.