Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1964, Qupperneq 7
,Hér eru allir svo samtaka'
segir Erlendur Kristjánsson, formabur skólafélags
Gagnfræbaskóla verknáms
TIT ú, þegar skólarnir
I ^ eru teknir til starfa
af fullum krafti, er félags-
starfsemin sem óðast að
komast í fullan gang. Að
ýmsu þarf að hyggja í upp-
hafi skólaársins, kjósa þarf í
nefndir og stjórnir og gera
áætlanir um, hversu félags-
lífinu skuli hagað. Félags-
starfsemin er engu þýðingar
minni þáttur í skólaveru
unglinganna en hið bóklega
nám, og er því mikið í húfi,
að þeir nemendur, sem velj-
ast til að hafa foryztu með
höndum, séu vandanum
vaxnir.
Að okkar hyggju á hlutverk
skólanna ekki eingöngu að vera
■það að troða í nemendur til-
teknum skammti af námsefni,
heldur einnig að vera nemend-
um góður uppalandi. Þá kem-
ur félagsstarfsemin til sögunn-
ar, en af afskipti af félagsmál-
um í skóla er hollara vega-
nesti en margan grunar — það
er í senn lærdómsríkt og þrosk
andi. í ungHngaskólum borgar
innar er aðstaða til félagsstarf-
semi nemenda mjög misgóð. í
hinum nýrri skólum er veg-
leeur samkomusalur með leik-
sviði, og þannig ætti það alls
staðar að vera.
En þótt góð aðstaða sé auð-
vitað æskileg, getur félagslíf
því aðeins þrifizt að nemendur
séu samtaka. Samtaka um að
leysa þau verkefni af hendi,
sem þeim er faiin, eins vel og
samvizkusamlega af hendi og
unnt er. Félagslífið stendur og
feilur með nemendunum sjálf-
um.
★
Lítum til dæmis á Gagn-
íræðaskóla verknáms. Þar er
aðstaða til féiagsstarfsemi frem
ur lakleg, enda skiljanlegt, þar
eð skólahúsnæðið var ekki
reist sem slíkt. Samt sem áður
er félagslíf nemenda þar eins
og bezt verður á kosið, eins og
kom fram, þegar við ræddum
nýlega við Erlend Kristjánsson,
formann skólafélagsins þar í
skóla.
—• Félagsstarfsemin er rétt
að skríða af stað hjá okkur
núna, sagði Erlendur, kosning-
um er lokið og starfsáætlun
vetrarins liggur nú ljós fyrir.
— Og hvernig verður starf-
seminni háttað?
— Á svipaðan hátt og í fyrra.
Dansæfingar, klúbbar og skóla
blað.
— Hvað eru dansæfingar tíð-
ar?
— Það eru venjulega 3 vik-
Nen ondur Gagnfræðaskóla verk náms sýndu leikritið Frænku
Charles á árshátíð sinni í fyrra. Einnig var foreldrum nemenda
gefinn kcistur á að sjá sýninguna á foreldramóti í skólanum. Þá
var þessi mynd tekin, sem sýnir Prip kammeráð sem Bjarni Sív
ertsen lék, gera sér títt við „frænkuna", en „hún“ var leikin af
Emil Ágústissyni.
Erlendur Kristjánsson, formaður
skólafélags Gagnfræðaskóla
verknáms.
ur á milli þeirra, — eða sem
svarar einu sinni í mánuði.
■— Þú minntist á klúbba?
— Já, það er einn stærsti lið
urinn í félagsstarfseminni. Þeir
verða reknir með sama sniði
og í fyrra, en þá var klúbb-
kvöld á hverju miðvikudags-
kvöldi kl. 9 til 11. Þessir klúbb
ar eru 8 talsins, — tveir hljóm
leikaklúbbar, spilaklúbbur,
þjóðdansaklúbbur, taflklúbbur,
málfundaklúbbur, kvikmynda-
klúbbur og klúbbur, sem nefn-
ist spurningar, leikþættir og
leikir.
— Hvaða klúbbur nýtur
mestra vinsælda?
— Hljómleikaklúbburinn.
Þá eru leikin vinsælustu dæg-
urlögin af plötum, en nemend-
ur geta sent með þeim kveðjur.
Þessum klúbbi þurfti að skipta
í tvennt, þar eð aðsókn var svo
mikil.
— Hvað eru anngrs margir
nemendur í skólanum Erlend-
ur?
— Þeir munu vera um 400 í
3. og 4. bekk — og hafa aldrei
verið fleiri.
•— Hvað heitir skólablaðið
ykkar?
— Það heitir Völundur — og
kom út í fyrsta sinn í fyrra,
tvö tölublöð. Útgáfu þess verð-
ur auðvitað haldið áfram í vet-
ur, því að mér finnst það ómiss
ándi þáttur í félagslífinu.
— Hvenær hefst undirbún-
ingur árshátiðarinnar?
— Strax eftir áramótin, en
hún er yfirleitt haldin í marz-
byrjun.
— Er ekki mikið um dýrðir
þá?
— Jú, það má nú segja —
og mikil vinna, sem liggur að
baki. En það er líka skemmti-
legasta vinna sem hugsast get-
ur. í fyrra sýndum við t.d.
„Svo komu Hljómar og spilúðu
en ekki að skapa f jör... “
fyrir dansinum og tókst heldur
leikritið Frænka Charles,
skólahljómsveitin skemmti, en
hún heitir Strengir og er vist
farin að láta heyra í sér opin-
berlega núna, nú, og svo var
leikfimisýning pilta og ekki má
gleyma „hinum syngjandi nunn
um,“ sem komu fram í viðeig-
andi búningum og sungu
Dominique. Svo komu Hljóm-
ar og spiluðu fyrir dansinum
og tókst heldur en ekki að
skapa fjör. Þú hefðir átt að sjá
kennarana hoppa í dansinum.
— Hvernig lízt þér nú á, Er-
lendur, að gegna æðsta embætti
félagsstarfseminnar?
— Ég þarf engu að kvíða,
því að hér eru allir svo sam-
taka. Þátttaka í því, sem hér er
að gerast, er alltaf alveg sér-
staklega góð. Dansæfingar eru
eins vel sóttar og hugsast get-
ur, — klúbbkvöldin njóta líka
mikilla vinsælda, því að þar
finna allir eitthvað við sitt
hæfi, útgáfa skólablaðsins geng
ur fljótt fyrir sig og ritstjórinn
hefur úr nógu að velja. Sam-
starfið við skólastjóra og kenn-
ara er með sérstökum ágætum
— svo að hví skyldi ég kvarta?
Þær skemmtu nemendum með söng og spili og léku „hinai
syngjandi nunnur“ á árshátíöinni — Rósa Ingólfsdóttir, Sigrún
Steinþórsdóttir og Hrefna Þórar inisdóttir. (Myndirnar tók Er-
lcndur Kristjánsson).
BÓKMENNTIR
Framhaid af bls. 5
leikhúsa hefir ekki venð fylgt sem
skyldi í Þjóðleikhúsinu. S' unúum til
ollmikils tjóns fyrir stofnunina. Þesú
opingáttarstefna hefir meira að segja
6tundum gengið svo langt, ab leikendur
og það meira að segja a*aileikendur
hafa á stundum frétt úti í bæ hvaða
hlutverk þeim séu ætluð é ræstunni,
löngu áður en leikstjórinn hefir beðið
þá fyrir hlutverkið.
Þetta vita þeir sem vinna cð leiklist
við Þjóðleikhúsið.
Nýlega birti leikhú -stjóri í út-
varpi og blöðuim langa áætiuu um væ.it
anlegt vetrarstarf á þessu le. kári.
Þar var nú ekki verið að íara í neina
launkiofa með hlutina. Virtist manni þ i
— svona í fljótu bragði — að marg ar
þvi sem nefnt var væri í hinni mestu
óvissu. Læt ég það vera, þó ieikrit leik-
ársins séu nefnd, sem vissa ei fyrir a'l
verði sýi d. Ef vissa er fyrii því.
Reynsla undanfarinna ára hefir oft Og
tiðum sýnt og sannað, að s'íkar yfir-
lýsingar raskast að meira eða mimia
leyti.
Allt var talið upp. Leikr tin, hluc-
verkaskipun, leikstjórn. HvaCa tilgiamgi
þjónar nú þetta?
Hlutverkaskipun mörgum mánuðum
fyrirfram getur sannarlega vrskazt, þó á
styttri tínra sé — og gerir [ < ð.
Leikstjóri getur verið fastur við 5-
lokið viðfangsefni o.s.frv. Ieikur og
leikstjórn útlendinga, sem engu föstu
höfðu svo lofað, er varla til að stæra
sig af fremrni fyrir alþjóð.
Framhald á bls. 14
32. tbl. 1964
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 7