Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1965, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1965, Síða 1
Bréf Matthíasar Jochums- sonar til Tryggva Gunnarss. egar Tryggvi Gunnarsson kvaddi þennan heim, árið 1917, skildi hann eftir sig safn sendi- bréfa, sem honum hafði borizt víðs vegar að á langri og umsvifamikilli starfsævi. Þessari syrpu hafði ekki verið raðað, en var géymd í stór- um trékassa. Svo sem vænta mátti, höfðu þessi bréf að geyma fjölmörg einkamál þeirra, sem bréfin höfðu skrifað, en af því leiddi, að skipta- ráðandinn í búi Tryggva velti því fyrir sér, hvort ekki væri réttast og drengilegast að bera allt þetta bréfasafn á bál. En það var Matthías heitinn Þórðarson þjóðminjavörður sem átti heiðurinn af því að bjarga þessum ritum frá eyðileggingu, en í snertingu við þessi mál hafði hann komizt sökum þess, að á sama tíma var hann að veita viðtöku í Þjóð- minjasafnið ótal eftirlátnum mun- um og minjum úr dánarbúi Tryggva. Allmikil vinna var á næstu árum 1 það lögð, að raða þessu bréfasafni, en því verki varð þó aldrei að fullu lokið sökum ónógrar fjárveitingar, og heild- arskrá um bréfin hefir aidrei verið samin. En þetta kemur allt fyrir eitt, bréfin eru til og vel varðveitt, og það er fyrir öllu. — Þessi bréf sýna bezt, hvilík skæða- drífa af beiðnum og kvabbi hefir dunið á Tryggva Gunnarssyni, ekki sízt á þeim tímum, er hann sat í Kaupmannahöfn, og í almennri fyrirgreiðsiu hefir eng- inn íslendingur komizt í hálfkvisti við við hann að Jóni Sigurðssyni einum vndanskildum. Þau sýna iíka hvílík hjálparhella Tryggvi reyndist ótal mönnum, sem til hans leituðu, og áttu við fótækt og basl að búa. En minning- una um þessa hjálparstarfsemi grefur hann í sand og þegir þunnu hljóði. Undir ævilokin ritaði hann lítið sögu- kver, „Endurminningar“, sem gefið var út eftir hans dag, og endar það með þessum- iátlausu orðum: „Af því, sem ég hefi aðhafzt um dagana, er tvennt, sem mér þykir vænst um. Annað eru afskipti mín af högum Jóns Sigurðssonar. Hitt er það, sem ég hefi skrifað og unnið fyrir dýrin“. E inn þeirra mörgu, sem hér koma við sögu í þessum bréfum, er Matthías Joehumsson. Sonur hans, Steingrímur héraðslæknir á Akureyri, sá um útgáfu á bréfum hans árið 1935 og getur þess í formála, að vitað hafi verið, að séra Matthias hefði áratugum saman staðið í bréfaskiptum við ýmsa merka menn, án þess eitt þeirra bréfa hefði fundizt. Meðal þessara manna nefnir hann Tryggva Gunnarsson. Nú eru þessi bréf Matthíasar hins vegar komin í leitirnar og eru hvorki fleiri né færri en sex tugir. Þau hafa ekki áður komið fyrir almenningssjónir og efni þeirra að engu eða litlu leyti. Matthías skrifaði að vísu sína bráðsnjöllu „Sögukafla", en ævi- sögur hafa að jafnaði fyrst og fremst það að bjóða, sem snýr út. En „hugur einn þat veit“....Hér kemur hitt aft- ur á móti í ijós, sem snýr inn á við. Bréf þessi flest eru skrifuð sem trún- aðarmál trúnaðarvini, en í þeim er ekk- ert, sem þjóðin má ekki fá að vita, og það nú eftir 2—3 aldarfjórðunga. Engin iina þeirra getur varpað nokkrum skugga hvorki á Matthías né Tryggva, heldur sýna bréfin þá bóða að nokkru í nýju ljósi, og sér í lagi hvílíkur holl- vættur Tryggvi hefir reynzt þessum velgerðarmanni islenzku þjóðarinnar þegar mest á reið, og jafnframt það, við hve kröpp kjör, áhyggjur og erfið- leika Matthías átti að etja, á sama tíma sem hann samdi þau ljóð og rit, sem jafnan munu skarta í íslenzkum bók- menntum. — Bréf þessi hafa líka að geyma giögga aldarfarslýsingu liðinna tíma, sem að minnsta kosti yngri kyn- slóðin í landi voru hefði gott af að kynna sér. — Mörgum mun iíka minn- isstæð frásögn sr. Matthíasar af því, þegar sjálfkrafa klukknahringingar tóku að h-eyrast í Reykjavík og enguim kom til hugar að svo einstæður atburður gæti boðað annað en fráfall Jó-ns forseta Sigurðssonar. U rval þessara bréfa mun smám saman birtast hér í Lesbókinni. Þau spenna yfir rúma þrjá áratugi. Þau fyrstu eru frá þeim tíma, er séra Matt- hías hafði <sleppt Kjalarnesþingum og gerzt ritstjóri Þjóðólfs hér í Reykjavík, hin næstu er hann hafði tekið prestskap í Odda, en hin siðustu þeirra eru rituð frá Akureyri. En hér er bezt að gefa þjóðskáldinu sjáilu orðið. Kjarlan Sveinsson. Reykjavík, 9. sept. 1876. Astkæri vinur. Ég er orðinn sá lang ónýtasti slóði á landi voru til bréfaskrifta, en man fífil minn fegri, því forðum þótti mér yndi að hringla við það starf, sem þá var leikur og læti. Ég- sendi þér kveðju aðeins í elsku og ræktarskyni. Þú' ert mér innilega kær, skilur mig og metur, að minnsta kosti eins og ég á skilið. Fyrir það skammast ég mín hvað dugnaðinn snert- ir — ekki hvað andann, viljann og stefn- una snertir. — Ég er eiginlega ekkert annað en brot af póetu, sem í virkileg- leikanum er hjá oss nokkurn veginn sama sem ónytjungur, þó get ég við og við verið það sem menn kalla mein- praktiskur. — Af þjóðmálum hefi ég, eins og þú sérð, aðeins hreyft innan- landsmálum í sumar t.d. um Banka (sem landfógétinn predikar norður og niður í fsafold), um skattamálið og jarða- mál vor — ekki svo vitlaust vona ég —, og svo hljóp ég í Alþingis kostnaðinn, sem hér vakti heilmikla „Opsigt“. Þar ert þú einn af þeim fáu, sem getur svar- að mér fullum hálsi. Nú seinast í 27. tbl. reifst ég í hálfkæringi við Norðl- ing, því það blað þykir mér ærið seyrugt. Mikið fjör vekur Diana í þjóð vorri, eiginlega er hér allt á tjá og tundri, því vand.-æðin, óeirðin, hjartveikin og vantraustið á allri tilverunni hafði nær því sprengt þjóðaraumingjann. Nú smá- réttir hún við. — Ég skrifaði Hansen að hann skuli senda Birni Magnússyni frá Stóruborg Þjóðólf — minnið þið hann á það, því hann er’prettóttur. Próf. Jonstrup ') J) Prófessor í náttúrufræði við Hafn- arháskóla, var hér í rannsóknar- leiðangri sumarið 1876. fór héðan með góðan orðstír — nema af Dr. Hjaltalín, sem líkar afar illa, að hann neiti sinni gömlu kenningu um gull og græna skóga í fjöllum vorum. Páll okkar Ólafsson hefir sagt af sér þingmennsku sinni. Ef þú ræður þar fyrir kosningu og þú sérð fram á að þeir muni ætla að senda á þing jafndýran en litlu snarpari oddvita, — þá máttu út- vega mér þar þingkosningu — ef þú vilt — því sæti ég á þingi ætti ég hægra með að gefa út blað að gagni um þing- tímann sem vantaði í fyrra en er nauð- synlegt — því þá gæti ég sjálfur refer- era, en tekið aðstoðarmann. Annað gengur mér ekki til, en jafnsnjall þeim aumasta ætti ég að geta reynzt. Jón Ólafsson, nú á Eskifirði, kveðst hafa Framlhald á bls. 4 Matíliías Jochumsson á efri árum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.