Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1965, Qupperneq 8
ADALSTRÆTI
Aðalstræti 1901. Myndin tekin frá Bry&gjuhúsinu. Frá vinstri Vörugeymsla (áður Norska samlagið). Vesturhluti Hótel ís-
lands í smíðum. Stafninn á húsi Brynjólfs H. Bjarnasonar, Pre ntsmiðjupósturinn, Bæjarfógetagarðurinn, Herkastalinn (áður
spítali og Hótel Scandinavia) fyrir enda götunnar. Vestan Aðalstrætis, talið frá hægri: Fischershús (síðar Duus), Fischers-
port, hús Sigurðar járnsmiðs Jónsonar, hús Valgarðs Ó. Breiðfjörðs: Fjalakötturinn, hús Helga Zöega (áður Biskupsstofan
og hús Jens Sigurðssonar hróður Jóns forseta, nú Silla og Valda), hús Matthíasar kaupmanns Johannessens (siar hús
Ágústu Svendsens), Verzlunarhús Sturlubræðra og hús Hans Andersens klæðskera og kaupmanns.
„Reykjavík um aldamótin 1900“
nefnist grein í öðru bindi ritsafns
Benedikts Gröndals. Hér fer á eftir
kaflinn um Aðalstræti.
m á höldum vér í vestur og norður
frá þessum húsum og út að sjónum, þar
er „Bryggjuhúsið“, mikil bygging með
porti gegnum allt húsið, og liggur
bryggja þar í gegnum og í sjó út; þetta
hús var fyrrum byggt handa póstgufu-
skipunum og átti að aka öllum hinum
útlenzku gæðum og sendingum með
makt og miklu veldi upp í höfuðborg-
ina; líklega hefur þetta verið gert á
kostnað gufuskipafélagsins, svona á
morgunstundu framfaranna, en þetta
hefur ekki staðið lengi, því að nú er
húsið eign Fischers verzlunar. Þá er vér
stöndum þar i portinu, sjáum vér eftir
endilöngu Aðalstræti, og er „Herkast-
alinn“ við hinn endann. Þá er fyrst til
hægri handar og á horninu á Aðalstraeti
og Hafnarstræti lágt hús, óálitlegt, sem
áður var kennt við Sunckenbergs verzl-
ur,, en varð seinna eign Eggerts Waage
kaupmanns; seinna verzlaði Matthias
Johannessen þar og bætti húsið allmik-
ið; en síðan keypti Brydes verzlun það
og var þar ruslaverzlun um tíma, eða
er enn. Þar gagnvart er allmikið hús
tvíloftað, sem Tærgesen kaupmaður lét
byggja upp úr gömlu húsi, og þótti það
þá einna mikilhæfast hér í bænum; nú
er þar hin alkunna Fischers verzlun, og
hefur verið þar um mörg ár. Þetta hús
snýr að Aðalstræti, og er á horninu
þeirrar götu og Fioherssunds, en hinu-
Aðalstræti 1965 (seð ur norðri)
megin eru vörugeymsluhús verzlunar-
innar, þar á horninu var áður íbúðar-
hús Vellejusar kaupmanns, og seinna
Sveinbjarnar Jacobsens, en nú er það
hús rifið og skíðgarður kominn i stað-
inn; þetta svæði er líka eign Ficshera
verzlunar. — Þaðan í röðinni til hægri
handar er hús það, er Þórður Jónas-
sen átti, háyfirdómari, og bjó hann þar
langa ævi; þar andaðist hann; var húsið
þá einloftað, en allsnoturt og vel byggt;
síðan keypti Sigurður Jónsson það, járn
smiður, og byggði ofan á það og svo
annað hús í garðinum, og setti þar mikla
járnsmiðju. Frá íveruhúsi Sigurðar
sést eftir endilöngu Austurstræti og upp
á Bankastíg. Þar gagnvart er „Hótel
ísland" og útbyggingar þess, og þar
yzt lítið hús, sem áður var sölukompa,
en hefur orðið „heimsfræg", af því þar
bjó John Coghill, sá nafnfrægi hrossa-
kaupmaður, sem öldurnar sungu yfir á
Atlantshafi.
Þáer Vallarstræti, og þar á horn-
inu verzlunarhús Brynjólfs Bjarnasonar
kaupmanns, stórt hús tvíloftað og snýr
gaflinn að Aðalstræti, og þar eru dyrn-
ar inntil verzlunarinnar; var þetta húa
byggt af þeim frændum Jóni Vídalin
(nú enskum konsúl) og Fáli Eggerz,
sem dó í Ameríku, og var það þá nefnt
„frændahúsið“ og „frændaverzlunin“.
Þar gagnvart er hið stórkostlegasta
íbúðarhús bæjarins, Breiðfjörðshús, þrí-
loftað, með svölum framan á, og eru
þær bornar af járnbitum, svo ekki þarl
að óttast að þær bili; þar er verz.un
Breiðfjörðs neðst í húsinu og stein-
steypt stétt fyrir framan; en húsið ligg
ur á horninu á Aðalstræti og Bröttu-
götu, og er þar inngangur til leikhúss
þess, er Breiðfjörð hefur látið gera þar,
og er það eindæmi af einstökum manni;
þar hefur oft verið leikið og fundir
haldnir og ýmsar samkomur. Forgarð-
urinn út til Bröttugötu er margar álnir
á hæð og glerþak yfir, og er hvergi
annað eins hér. í þessu húsi eru mörg
herbergi og salir, sem nærri má geta;
en þetta hefur Breiðfjörð byggt sjálfur
(því hann er bæði smiður og kaup-
maður) upp úr hinu gamla „Hákon-
senshúsi“, sem ísleifur etasráð lét
byggja handa systur sinni, sem var gift
Einari Hákonsen hattasmið, og bjuggu
þau hjón þar lengi. Ágætt efni var i
húsinu, eins og annars í þessum gömlu
húsum, en það féll samt meir og meir
og varð óálitlegt með tímanum, þangað
til það fékk upprisunnar dýrð fyrir
Breiðfjörðs kraft. Þar í einni stofu hefur
Jónas Hallgrímsson búið, og þar sneri
hann Úrsíns stjörnufræði og orti „Dag-
rúnarharm" eftir boði Helga biskups, en
Helgi sendi Jónasi tvær portvínsflöskur
fullar til launa. — í þessu húsi uppi á
lofti andaðist Sigurður Breiðfjörð (21.
júlí 1846) og var jarðsettur ræðulaust.
Höfundur þessarar ritgerðar heimsótti
Jónas Hallgrímsson, meðan hann bjó
þarna, og gaf Jónas honum náttúru-
fræðibók; en mörgum árum seinna bjó
höfundurinn í sömu stofunni, sem Jón-
as hafði búið í, það var um sumar.
A hinu horninu á Bröttugötu er
„Biskupshúsið“ eða „Biskupsstofan"
gamla; þar bjó Geir Vídalín biskup og
þar hratt hann Jóhanni „stríðsmanni“
ofan úr götudyrunum (en ekki Jörgen-
sen eins og segir i Jörundar sögu) og
sagði um leið: „Far þú til helvítis“.
Seinna hafa ýmsir búið þar, og þar
mun barnaskólinn einhverntíma hafa
verið í tíð Sveinbjarnar Hallgrímsson-
ar; M. Smith bjó þar nokkur ár, og síð-
an M. Jóhannesen kaupmaður, en nú
er húsið eign Helga Zoega verzlunar-
stjóra. Það er eitt af gömlu húsunum,
einloftað og vel byggt. Þar áfast við
er hið nýjá hús M. Jóhannesens, byg.gt
af Norðmönnum upp á norsku; það er
á horninu á Aðalstræti og Grjótagötu,
tvíloftað og stórt hús. Gagnvart þess-
Framhald á bls. 12
3 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS-
22: tbl. 1965