Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Blaðsíða 13
Sögur af ÁSA-ÞÓR. Úr Eddu Snorra Sturlusonar — Teikninqar eftir Harald Guöbergsson OK Tlt FJÖRU/WíWUI? VflNW HMH &IR- RÖei THARH ÍÍVlDI KoM/» ÞÖR í GEM'ÓÐAftWflPA, PA FOR ÞORRTIL niRAR, ERVIMUR HEITIR. ALLRfl 'fl MEST. ÞA SPENdTl ViflMAJ ÍIK MEGINCJÖRtHJM. borðið næst útgöngudyrunum. Annars heldur yíirleitt allt, sem er að ske um- hverfis þau, athygli þekra glaðvakandi. Hversvegna þau eru allt í einu komin í gestahópinn öfugu megin landamerkj- anna, er nolckuð sem þjónusturnar botna ekki í. Gömlu hjónin hafa setið við þetta borð öll undanfarin kvöld, þögul og hógvær. Þau koma mjög tímanlega, oft upp úr miðjum degi, og biðja þá um kaffi, sem gamli maðurinn laumar ein- hverju út í. Þegar nokkuð er áliðið, biðja þau um súpu. Og svo kemur þjón- ustan með ábót á kaffið. Langt er liðið á matmálstímann, þegar gömlu hjónin eru aftur orðin svöng og biðja þá um fullan kvöldverðarskammt. Á þessu tímabili, sem hjónin staldra við, bregð- ur gamli maðurinn sér stundum út og felur svo eitthvað undir borðinn þegar hann kemur aftur. Og þjónustan læzt ekki sjá ásigkomulag gamalla hjóna sem byggt hafa borgina og eru nú að hvila sig á sinn hátt eftir erfiðan vinnu- dag.... Klukkan er tekin að halla I níu, þegar allt í einu er eins og kvikni í tundri í neðra plássi. Það er röddin í Kiddu Kiðlingi sem glymur svona í: Vítisbúar! æpir hún. Skottur og skarf- ar! Rútan er komin á stæðið. Takið út! Striðsmenn atómstöðvarinnar eru fyrstir til að gegna skipuninni, enda þaulvanir eftir allar heræfingarnar suð- ur frá. Og þeir risa tafarlaust á fætur. Glös eru tæmd á öllum borðum með misjafnlega skjótum hætti — það fer eftir magastyrk hvers og eins. Og fén- aðurinn heldur út meir og minna reikull í spori, undir Ieiðsögn og eftirliti síns góða fjárhirðis, Kiddu Kiðlings. Hurðin smellur í falsið á eftir þeim síðasta úr hópnum. Þögn flæðir um alla ganga — síðasti matargesturinn er lika farinn sína leið. Og þessi þagnarstraum- ur kallar á vettvang þjónusturnar tvær úr afdrepinu við buffið. Þær byrja að hreinsa til í rústum neðra salar — taka burt flöskur og glös, tæma öskubakka, skipta um dúka og raða stólum. Kaffi- gestir tínast að upp úr tíu. Það er ekkert að sjá hér meir, segja talandi augu gömlu hjónanna við gluggaborðið, sem sitja ein eftir. Eigum við ekki að koma? segir mað- urinn. Það drafar lítillega í honum. Okkur liggur sosum ekkert á, segir konan. Hún er líka seinmælt. Þó tygjar hún sig. Nei, segir hann, okkur liggur ekkert á; það bíður ekkert eftir okkur. Nei, segir hún, við eigum engu ólokið. Og hjónin sem byggt hafa borgina reika út í nóttina. Þjónusturnar leggja siðustu hönd á tiltektirnar og halda að því loknu til sætis síns og varpa öndinnL Það versta er afstaðið á laugardagskvöldi. Eldri þjónustan nær í prjónana sína úr hillunni, en sú yngri tekur blöðin til bandargagns. Þá heyra þær að gengið er um niðri og haldið upp í skot. Þær líta ergilega hvor á aðra. Og án minnstu orðaskipta leggja þær frá sér viðfangsefnin og halda niður í neðra pláss. Mamma Lisa er komin! Hún er setzt við innsta borðið i skot- inu, búin að draga forláta drykkjar- könnu úr pússi sínu, hella einhverju í hana úr flösku, sem hún felur inni á sér, og dreypir drjúgum á innihaldinu. Og Mamma Lísa horfir fast á þjón- usturnar, sem standa álengdar og virða hana fyrir sér. Hún hefur ekki í hyggju að hopa um svo mikið sem eitt fet nú fremur en endranær — ekki ótilkvödd. Þú verður að fara, Lísa, segir eldri þjónustan og dregur djúpt inn andann. Sú yngri þegir. Ég er að fara, segir Mamma Lísa, ég er bara að hlýja mér svolítið. Hún held- ur fast um könnuna við öllu búin. Þú verður að fara strax, ítrekar eldri þjónustan. Hvert á ég að fara? segir Mamma Lísa aumkunarlega, það bíður enginn eftir mér — nema ég. Þú veizt þú mátt ekki vera hér, segir eldri þjónustan og finnur til. Ég má hvergi vera, segir Mamma Lísa og bætir í könnuna. Farðu nú Lísa, segir yngri þjónustan, annars hringjum við. Skelfing er lífið vont, segir Mamma Lísa, það er alltaf verið að hringja. Ljúktu nú úr könnunni, segir eldri þjónustan. Ég á engan vin, segir Mamma Lisa og heldur báðum höndum um könnuna dauðahaldi. Nú hringi ég, segir yngri þjónustan og sezt á næsta stól. Það er alltaf verið að taka mig, segir Mamma Lísa. Votir taumar brjóta sér leið niður þrútið andlitið. ísland hefur aldrei skilið mig. Hún grætur. Þjónusturnar bera ráð sín saman. Það er ekki um annað úrræði að velja. Fólk má ekki gráta á opinberum veitingastöð- um. Þær hverfa að símanum. Það líður drjúg stund þar til þeir koma. Það er í mörgu að snúast á laug- ardagskvöldi. Þeir eru tveir .sem taka Mömmu Lísu og leiða hana út í biL Sá þriðji dvelur andartak, hann vill ræða smávegis við eldri þjónustuna. Það sækir mikið til ýkkar, útigangs- fólkið, segir lögreglumaðurinn. Hann er farinn að grána í vöngum. Já, segir eldri þjónustan, fólkið kem- ur alltaf aftur. Fólkið á hvergi inni, svarar lögreglu- maðurinn. Hann þagnar við og segir síðan: Ég sá nokkur lík undir borðum þarna niðri. Þú tekur þau burt. Já, segir eldri þjónustan, þetta er von- laust. Já, samþykkir lögreglumaðurinn, í einu þjóðfélagi verður alltaf dáiitið brot útundan — fólk í sárum. Sumt af því hefur fataskipti og hverfur út í lífið á nýjan leik, aðrir komast ekki úr gömlu tötrunum. Það er einmitt það, segir eldri þjón- ustan. Þú hirðir þá líkin, segir lögreglumað- urinn vingjarnlega og labbar burt. Góða nótt. Já, tautar eldri þjónustan og heldur niður í neðra pláss: Við hirðum bæði lík. — Haga’agfiar Þá var líka hyggður menntaskóli Unnið var að smíði latínuskólans allan veturinn og þegar kom fram aS Jónsmessu var smíði hússins komin svo langt, að Alþingi gat komið sam- an í „sal“ hússins, sem þá var full- ger og siðan varð samkomusalur Al- þingis um nærfellt 35 ára skeið. En ýmislegt var enn ógert innanstokks og fyrirsjáanlegt, að því yrði ekki til fulls lokið á því ári. Árbækur Reykjavíkur 1845. -LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13 24. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.