Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1967, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1967, Side 2
 I [ I f var eldiur, brennisteinn, bókfell og strý. Hætt er samt við að hinn verð- a.ncL b.skup hafi ekki fengið að vita a"an sannleikann. Brennisteinn varð við komu púðursins eitt mii'kil- vægasta eíni til hernaðar, fékkst hann e.nkum í eidfjalLalöndum eins og Ítalíu og ísiandi og varð ísland því hernaðarlega mikilvægt um leið enda fóru Noregskonungar og erkibisk- upar i Niðarósi að bítast um einkarétt á útflutningi hans héðan. Var hér efa- laus* um mjög dýrmætt efni að ræða. Ekki er nú kunnugt, frekar en um uppruria púðursins, hvenær mönnum datt í hug að nota orku þess til þess að kr.ýja skeyti og byssan varð til. Elztu mynd sem til er af byssu er að finna í har.driti kennslubókar eftir de Mil- rr.ete, kennara Játvarðar III Engiands- konungs. Játvarður er kunnur fyrir að ha,fa átt upptökin að 100 ára stríðinu svonefnda, sem stóð milli Englendinga og Frakka á árunum 1327—1453, svo kóngi þeim, sem byrjaði svo langvinnan ófrið. veitti ekki af einhverju dugmiklu vopni. Það urðu samt enskar bogskytt- ur sem unnu í fyrstu mestu hernaðar- afrek í þessum ófriði, unz heilög Jó- har.na skakkaði leikinn. í orustunni við Creey í Flandern, skutu enskir bogmenn niður blómann =f franska r.ddaraliðinu. Erakkar báru reyndar síðar fyrir sig þá afsökun að Englendingar hefðu sýnt þann d nahá t að fæla hesta frönsku riddaranna með fallbyssmm og er það víI mögulegt. Eftir 1350 er algengt að heimi:dir ge;. um púður og byssur og um 1400 voru hin nýju skotvopn orðin þáttur í öllum meirilháttar hernaðarað- geiðum. Ó! djöfuls vél Oliver Winehester, hinn alkiunni ame- ríski byssusmiður 19. aldarinnar, skil- greindi byssuna eitt sinn þannig, að hún væri ekki annað en vél til þess að þeyta kúlum. Helztu hlutir venjulegrar hand- byssu eru, sem alkunnugt er, hlaupið sem púðurhleðslunni er komið fyrir í, lásútbúnaðurinn sem gegnir því hlut- veiki að tendra bleðsluna og á aftan- hlæðum að auðvelda hleðskina — og skeftið, sem skyttan heldur um er hann miðar og hleypir af. Púðrið, sem kornið er fyrir í hlaupinu, er mjög eldnæmt brennsluefni sem er sjálfu sér nóg um sú.-efni og við bruna þess myndast gló- andi iofttegund sem er hundruðföld að rúmtaki miðað við óbrunnið púður og leitpst því við að ryðja sér braut í allar áltir. en þar sem hlaupið heldur að henni, þeytist hleðslan sem er léttust fyi’r, með ógnarhraða út úr hlaupinu. Hið tæknilega vandamál sem byssu- smið.r frá upphafi hafa átt við að striða, er að finna aðferð til þess að koma hleðslunni fyrir í hlaupinu á sam fljót- v.rkastan hátt og tendra hana á sem öruggastan máta. Þetta var ekki hægt með þeirrar tíðar tækni nema með því að bera eld að hleðslunm á einhvern hátt. því tundurhettan eða hvellhettan kom ekki tiil sögunnar fyrr en í byrjun 19. aldar. En hún er sem kunnugt er, lítil, skálarlaga h-etta úr mjúkuim málmi, sem er fyllt svo eldnæmu efni að það kv knar i því við minnsta hita. Þarf því ekki annað en lítið högg svo að það logi. Hinar fyrstu byssur, bæði handíbyssur og failbyssur, voru æði frumstæð tæki og mmna í fáu á hin fullkomnu skotvopn núi'mans. Þetta voru einfaldir hóflkar úr íré og málimi, lokaðir í annan endann þar sem hleðskmni var komið fyrir. Þar var gert örlítið gat með skál umihverf- is og kamið fyrir fáeinum púðurkorn- um í henni og borið að logandi blys eða kveikur þegar hleypa skyldi af. Barst þá loginn inn í aðalhleðsluna og kveikti í her.ni. Óhjákvæmilegt var að einhver hluti sprengingarinnar kæmi út um þetía, gat, en þa-r eð það var svo örlítið ruddi sprengingin hleðslunni fram úr. Þar sem máimsmíði var stutt á veg komin, var þessi útbúnaður ærið vara- samur og áttu byssur því oft til að springa í höndum hermannanna og slasa þá eða drepa í stað þess að verða óvininum að bana. Með aukinni tækni urðu byssur samt fljótt öruggari og furðu snernma komust menn upp á lagið með að steypa stór failbyssuhlaup, oftast úr kopar, og járnvarin. Jafnvel á fyrstu öidum skotvopnanna voru smíðaðar feiknastórar fallbyssoir sem vógu mörg tor.n. Þær voru auðvitað gríðar þungar í vöfum og ófært að fllytja þær með þeirrar tíðar flutningatækni, enda var oftast gripið til þess ráðs að flytja efnið í þær á staðinn þar sem átti að nota þær og steypa þær þar. Að umsátri og ó'riði loknum, voru þær svo bræddar upp og efnið flutt á nýjan stað. Sem dæmi um hvílíkri stærð byssur þessar náðu má nefna eina slíka sem nefnd var fl'iagga vitla-usa og er enn til í Ghent. Hún vegur aðeins lítil 15 tonn og hefur 33 þumiunga hlaupvídd. Úr henni var skotið steimum sem vógu 390 kg. Önn- ur enn stærri ófreskja er varðveitt í I.ur.óúnakasta’.a og var smíðuð handa Ty; kj-asoldáni 1464. Hún á að hafa get- r: ó skotið kúlum eða steinum, sem vógu hálft tonn nærri eins kílómetra veg. Margir íslendingar hafa eflaust séð eina frægu-stu fallbyssu frá þessum tíma Mons Meg, sem varðveitt er í Ed- inborgarkastala. Hún var smíðuð fyrir Jakot II Skotakonung á miðri 15. öld. Þessi byssa er smíðuð úr járni og á um margt litrika sögu. Sem daemi uim hlaup- vídd hennar má tilfæra þá sögn Skota, að b:rn hafi verið getið inni í hlaupi henn- ar og sannast þar bezt hið forna mál- tæki, að ástin er sterkari en Hel. Hversu fýsilegt það var að kljást við þessi skrimsli, má marka af því, að dæmdir glæpamenn máttu stundum ve!ja milli gálgans og þess að gerast ía’ibyssuliðar. T-Tandbyssur voru á þessum fyrstu ár- um byssusmíðinnar býsna ófullkomin tæki. í fyrstu þurfti tvo hermenn við hverja byssu, annan sem bar byssuna t gaffallaga fót til þess að styðj-a hana við er skjóta skyldi og hinn sem bar eld að púðurpönniunni og hleypti af. Miðunartæki voru nær engin og létu m-’nnirnir sér nægja að beina hlaup- inu að óvinunum og vona hið bezta. En þessar stut’thleyptu og víðu byssur, oft með trektlaga hlaupi voru fljótlega end- urbættar. Komið var fyrir hægbrenn- andj kveik á byssunni sem skyttan gat sjálf borið að tundurpönnunni m-eð því " aka í handflang, hlaupin urðu lengri og útbúin miðunartækjum og skyttun- um óx leikni að hæfa skotspæni sína. Konungar og herstjórar þeirra tíma sýndu byssusmíði hinn mesta áhuga, konungsvaldi’ð var í sókn hvarvetna í Evrópu og hin nýju vopn reyndust þeim Eftir að byssan kom til sögunnar varff hún ómissandi hlutur við einvígi. Hér er ein elzta mynd sem til er af einvígi með byssum. Það átti sér stað í Sviss 1659. hið bezta í baráttunni við baldinn léns- aðal. En önnur var sú stétt manna sem ekki fagnaði hinum nýju vopnum hin vígglaða stétt riddaraaðals, serra nær ein hafði fengizt við hermennsku og stríðs- list frá upphafi miðalda. Allt til þessa hafði miðaldariddarinn hlífum klæddur á hestbaki tekið þátt í styrjöldum eins og skemmtilegum æsandi leik. Auðvitað höfðu þeir stungi’ð og höggvið niður vopnlítinn bændalýðinn án allrar mis- kunnar, þegar hrjáðir átthagafjötraðir kvaðabændur gerðu örvæntingarfullar tilraunir til þess að rísa gegn kúgurum sínum. En riddaraorustur miðalda voru fremur vopnaleikur en hættuleg mann- dráp. í orustunni við Bremule 1119 milli Englendinga og Frakka voru 140 franskir riddarar teknir höndum og leystir síðan út með fé en aðeins 3 féllu. Hið vlgða sverð var vopn hins ættgöfuga aðalsmanns. Me’ð því átti hann vopnaviðskipti við jafningja sína sem mátu framar öllu kjark, leikni og karlmennsku. En nú var þetta allt að breytast. Hin rammgerðu kastalavígi, sem til þessa stóðust allar umsátir, hefðu íbú- arnir aðeins nóg að éta reyndust auð- unnin með hinum stóru fallbyssum og fyrirlitlegur bóndastrákur með kveikju- byssu, sem þyrði ekki að líta framan í ættgöfugan riddarann hvað þá að ganga á hólm vfð hann á vígvelli átti nú auð- velt með að skjóta hann til bana eins og hund úr launsátri og binda þannig enda á æviskeið hins ættgöfuga manns. Ridd- arabrynjur, oft hin mesta völundar- smíði, reyndust jafn ónýtar hlífar gegn byssukúlum og tötrar bændanna höfðu verið gegn lensum þeirra sjálfra. Hin forna veröld sérréttinda yfirdrottnunar- aðalsins skrikaði undan fótum þeirra og riddararnir gátu sannarlega tekið und- ir með ítalska skáldinu Aríosto, sem orti svo um hina nýju hernaðartækni, byss- una: Ó! djöfuls vél, sem dauðans markar slóð! Úr djúpi myrkheims hingað komst á jörð! í smi’ðju Satans vígð og hert í haturs- glóð, heiminum send að týna drottins hjörð. En þróun skotvopnanna hélt áfram óstöðvandi, hvað sem tárum riddaranna leið og þórdunur þeirra hófu helsöng sinn á vígvöllum Evrópu og gerðu hina skáldlegu sýn að ægilegum veruleik. Ný tækni Fyrstu aldirnar voru byssur samt hvergi nærri eins fljótvirk skotvopn og langboginn og heldur ekki eins nákvæm eins og hann eða lásboginn. Þessvegna kusu menn heldur hin gömlu tæki til veiða löngu eftir að byssur voru fundn- ar upp. Veiðimenn höfðu auk þess í fyrstu imugust á hávaða byssanna og tö’du hann fæla og trylla veiðidýrin. En þar sem það þurfti þjálfun allt frá bernsku til þess áð verða leikin bog- skytta og lásbogar voru all vandmeð- farnir og dýrir leið ekki á löngu þar til byssan útrýmdi bogunum sem her- Framhald á bls. 12. Nýtízku markriffill notaður í alþjóðlegum slkotkeppnum. Mons Meg fallbyssan fræga á virkisvegg Edin Dorgarkastala. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26. nóvember

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.