Lesbók Morgunblaðsins - 29.06.1969, Page 15
ERLENDAR
BÆKUR
kennslunni í bókmenntagagnrýni
í stað þess, að leiðbeina og út-
skýra listaverkin á uppbyggilegan
hátt og laða menn þannig til þess
að lesa þau og njóta þeirra. Höf-
undur er málsvari uppbyggilegrar
gagnrýni og leitast við að tjá
hana með þeim dæmum sem
hann rekur í ritinu. Gagnrýni
hans verður fermur rýni, útlistun
til skilningsauka á verkunum.
Höfundur er skýr og gagnorður
og ritið gagnsamlegt.
A Taste of Ireland. Irish Tradi-
tional Food. Theodora Fitzgibbon.
Period photographs specially pre-
pared by George Morrison. J. M.
Dent & Sons Ltd. 1968. 42s.
Þeir, sem gaman hafa af göml-
um Ijósmyndum og sérstæðum
mataruppskriftum ættu að fá sér
þessa bók og vitaskuld allir þeir,
sem áhuga hafa á írlandi og irsk-
um lifnaðarháttum. Bókin er
smekklega gefin út og myndirnar
eru skemmtilegar. Margar upp-
skriftirnar hafa ekki birzt áður á
prenti, höfundur hefur viðað þeim
að sér frá einkaaðilum, og sama
er að segja um myndirnar. Prent-
un er ágæt og myndirnar skýrar,
en á þvi vill oft verða misbrestur.
The Tremor of Forgery. Patricia
Highsmith. Heinemann 1969. 30 s.
Inqham kemur til Túnis til þess
að safna efni í kvikmynd og
væntir samstarfsmanns síns eftir
nokkra daga, en hann kemur ekki.
Þá tekur Ingham að skrifa skáld-
sögu, sem verður saga innan
þeirrar sögu sem höfundur skrif-
ar. Inntak sögunnar eru fjölmiðl-
unartæki og samband manns við
mann. Þetta er ágæt saga, vel
skrifuð og dálítið meira en af-
þreyingarefni. Höfundur hefur
sett saman ágæta reyfara og læsi-
legar skáldsögur og heldur sinu
striki.
Robert Musil. Helmut Gumtau.
Köpfe des XX. Jahrhunderts —
Band 45. Colloquium Verlag —
Berlin 1967. DM 5.80.
Musil lézt fordildarlaust árið
1942, þá flóttamaður í Sviss. Síð-
an hefur hann orðið frægari flest-
um austurrískum rithöfundum.
„Der Mann ohne Eigenschaften"
og önnur rit. hans eru talin meðal
þess merkasta sem ritað hefur
verið það sem af er þessari öld.
1 þessu kveri er ævisaga hans og
inntak verka hans rakið og ástæð-
an til þeirra. Höfundurinn hefur
lagt sig mjög eftir verkum Musils
og er meðal færustu manna til
þess að tjá þau og þýðingu þeirra.
Þetta er ein þeirra bóka sem
koma út í bókaflokknum „Köpfe
des XX. Jahrhunderts", þar sem
fjallað er um þá menn, sem mót-
að hafa tímabilið á jákvæðan hátt
með verkum stnum og lífi.
The Pratice of Criticism. D. H.
Rawlinson Cambridge University
Press 1968. 15/—
Sumir segja, að nú á timum
hafi gagnrýni og bókmenntasaga
tekið hásætið frá bókmenntun-
um. Fjöldi manna lætur bók-
menntasöguna nægja, les um
höfuðatriðin, en les þau sjálf
aldrei. Höfundur segir í formála,
að hann hafi sett saman bókina
vegna þeirrar áráttu í bók-
menntakennslu að myndbreyta
Ferdinand including It Was.
Louis Zukofsky. Jonathan Cape.
Cape Editions 25. 1968. 7/6.
Zukofsky er meðal merkari
framúrstefnu skálda í Bandaríkj-
unum. Hann hefur auk þess ritað
prósa og er í þessu kveri að finna
eftirtektarverðustu verk hans í
þeirra grein. Hann ágætist fyrir
nákvæmt orðaval og stuttleika
í framsetningu.
Knaurs Stilkunde I—II. Heraus-
gegeben von Ursula Hatje. Droem
er Knaur — Munchen/Zurich
1968. DM 9.60.
Sjö listfræðingar skrifa þessa
bók. Þeir segja sögu listarinnar á
Vesturlöndum frá fornöld og
fram á okkar daga. Höfundar
leggja mikla áherzlu á . liststíl
hvers tíma og tengja hann þjóð-
félagslegum forsendum. Mynd-
irnar tengjast textanum og eru
valdar með það fyrir augum.
Höfundar leggja meiri áherzlu á
byggingarlist og listiðnað en
oftast tíðkast í bókum sem þess-
ari. Bækur af þessu tagi gefast
margar og virðast nú á dögum
eftirsóttar og auðveld söluvara,
margar þessara bóka eru upp-
tugga úr öðrum eða samsuða úr
ýmsum verkum og gera mynd-
irnar sitt til þess að auðvelda
söluna. i þessu riti er stílsagan
rakin í stórum dráttum og öllum
ætluð, sem eru á annað borð
læsir. Bókalisti fylgir, efnisyfirlit
og myndaskrá.
Was auf der Hand lag. Gedichte.
Dieter Fringeli. Mit einem Nach-
worth von Karl Krolow. Walter-
Verlag 1968.
Krolow segir í eftirmála, að nú
sé ekki lengur hægt að fela lé-
lega lyrik í skrúðgarði rímsins,
sýndarmennskan í rími útlæg hjá
þeim nútímaskáldum, sem bezt
yrki.
Fringeli er ungur maður, fædd-
ur 1942. Ljóð hans eru mjög ein-
föld að gerð og sum virðast við
fyrstu sýn fremur billeg, en
þegar betur er lesið sigrar tærleiki
þeirra. Höfundur fer mjög varlega
með orð og óhófleg orðanotkun
finnst ekki á srðum bókar hans.
Sum þessara kvæða bera í sér
eðli málsháttarins, stuttaraleg,
knöpp og minnisstæð. Walter
forlagrð gefur út í útgáfunni
Walter-Drucke valin rit yngri og
eldri höfunda, útgáfan er smekk-
leg og upplag takmarkað. Sam-
tals eru nú komin út 15 bindi
frá 1964.
The Mind and Work of Paul
Klee. Werner Haftmann. Faber
and Faber 1968. 16/—
Klee er mesti galdramaður
meðal listmálara það sem er af
þessari öld. Hann lézt 1940 og
síðan hefur hróður hans farið sí-
vaxandi. Hann reyndi að tjá
frumdrætti þess sem býr í sálar-
djúpum hvers einstaklings. Ný
heimssýn hans lauk upp veru-
leika, sem hafði ekki verið tjáð-
ur áður, þess vegna er Klee einn
þeirra, sem hefur víkkað og
stækkað veröldina og jafnframt
aukið skynjun mannsins. Haft-
mann rekur skoðanir og hug-
myndir listamannsins i ellefu
köf'um, allt frá dvöl hans í
Múnchen og til þess að hann
hveríur til Sviss. Ritið er eitt
þeirra, sem allir dáendur Klees
hljóta að lesa. Myndir fylgja. Bók-
in er einnig gefin út bundin.
The Works of Shakespeare.
Edited by John Dover Wilson.
King Lear ed. by George lan Dut-
hie and John Dover Wilson.
The Winter’s Tale ed. by Sir Art-
hur Quiller-Couch and John
Dover Wilson. Cambridge Uni-
versity Press 1968. 10/—
„The Paperback New Shakes-
peare" Cambridge útgáfunnar er
Ijósprentuð óbreytt eftir útgáf-
unni, sem hófst 1921. I
hverju bindi er texti leikritsins
prentaður, athugagreinar og skýr-
ingar fylgja, útgefendur eða út-
efandi ritar ýtarlegan inngang og
leiksaga leikritsins er rakin og auk
þessa er orðalisti með skýringum
sjaldgæfra orða eða erfiðra setn-
inga. Leikritin eru einnig til á
hljómplötum frá Argo í Lundún-
um.
Dying. John Hinton. Penguin
Books 1967. 3/6.
Höfundur hefur mikla reynslu
í því að sinna og umgangast
sjúklinga, sem þjáðust af ólækn-
andi sjúkdómum. Hann lýsir í
þessu kveri tilfinningum og
reynslu þeirra sem liggja á bana-
beði. Höfundur lýsir afstöðu
sjúklinga gagnvart dauðanum,
óttanum, og gefur góð ráð um
hvernig brugðizt verði við slíku.
Trúin á annað líf og kórrétt
kristni mildaði brodd dauðans
fyrrum og gerir enn, en fyrir þá,
sem eru annarrar skoðunar verð-
ur að hafa önnur ráð. Höfundur
telur að allur feluleikur í sam-
bandi við dauðann hljóti alltaf að
misheppnast, raunsæi, samúð og
skilmngur gildi þá fyrst og fremst.
Ancient & Mediaeval Sculptured
Stones og Islay. W. D. Lamont.
Oliver & Boyd 1968. 30/—
Islay liggur við vestúrströnd
Skotlands og þaðan er skammt
til Irlands. Fyrir sjötíu árum kom
út merkileg bók um grafna og
höggna steina, sem finnast þar
á eynni, höfundurinn var R. C.
Graham Þar eru tíundaðir út-
höggn'r steinar frá fornöld og mið
öldum. Fjöldi þessara steina eru
legsteinar. W. D. Lamont hefur
rannsakað þessa steina að nýju
og flokkað þá og kerfað niður og
hann hefur haft aðgang að síðari
tíma rannsóknum svo að það sem
var ólióst i bók Grahams verður
Ijóst í þessari. Það verður Ijóst að
mikilla áhrifa gætir á gerð stein-
anna frá steinsmiðum og högg-
stíl á irlandi og Norður-Englandi.
I bókarlok eru 35 myndasíður.
Bókaskrá og athugagreinar fylgja.
Selected Poems — Yves
Bonnefoy Translated by Anthony
Rudolf. Cape Editions 24. Jonat
han Cape 1968. 7/6.
Bonnefoy er af flestum talinn
merkastur yngri skálda á Frakk-
landi nú á dögum. Hann hefur
ritaö um listaheimspeki, er gagn-
rýnandi og hefur þýtt nokkur
leikrit Shakespeares með ágæt-
um á frönsku. Skáldið hefur sjálft
valið þau kvæði sín, sem hér
birtast til þýðingar og eykur það
gildi kversins. Ljóð hans lyrískar
hugreriningar um mannlega við-
leitni, ástir og sorgir, tré, strend-
ur, nóttin og festingin eru bak-
grunnur margra Ijóða hans. Hann
byggir sum Ijóð sín upp líkast mál
verki en málsnilli hans er aðall
skáldskapar hans ásamt hófsemi
og næmleika. Útgefendur Cape
Editions birta ýmis rit, sem telja
má tii þeirra merkustu, eða úrvöl
úr ritum erlendra höfunda þýdd á
ensku. i þessu kveri er franski
textinn prentaður við hliðina á
þeim enska.
Bækur
frá
Bonniers
E.IM. Tigerstedt: Dante. Tiden,
Mannen, Verket. Albert Bonniers
Förlag, Stockholm, 1967.
Höfundur þessarar bókar er
prófessor í bókmenntasögu við
Stokkhólmsháskóla og einn af
kunnustu bókmenntafræðingum
lands síns. Enda þótt þessi bók
sé byggð á miklum lærdómi um
skáldskap Dantes og heim-
spekilegu, stjórnmálalegu og
sögulegu inntaki hins guðdóm-
lega gleðileiks, er þetta síður en
svo þurrt fræðirit. Höfundur leit-
ast fyrst og fremst við að kynna
lesandanum helztu niðurstöður
og athuganir Dantefræðinga og þá
fyrst og fremst hvern skilning
nútímafræðimenn ítalskir leggja
í Dante og verk hans; er aftast
í bókinni umfangsmikil bókaskrá
þar sem vísað er til helztu rita
um Danterannsóknir og gerð þar
nokkur grein fyrir efni þeirra.
I bókaskránni er fylgt sömu að-
greiningu viðfangsefnis og í bók-
inni sjálfri. Eru í fyrsta og öðrum
kafla gerð stuttlega en ýtarlega
grein fyrir samtíma Dantes og per
sónulegri ævisögu hans, en meg-
ináherzla bókarinnar er lögð á
rannsóknir á Gleðileiknum sjálf-
um. Er þar bæði um að ræða bók-
mennlalega greiningu textans svo
og bókmenntasögulega stöðu
verksins. Bókin er prýdd fjölda
mynda af listaverkum sem allar
snerta á einhvern hátt skáldið
Dante og sögu hans.
Agne Hamrin: Italiens lev-
ande landskap. Albert Bonn-
iers Förlag, Stockholm, 1967.
Agne Hamrin, sænskur
menintamaður og fréttaritari m.
a. fyrir dagblaðið Dagens Ny-
heter í Stokkhólmi, hefur ver-
ið búsettur á Ítalíu í fjölda ára
og sikrifað þaðan margar bælk-
ur. Hanin er gagnikuniniugur róm
verskri og ítalskri sögu og
memningu, og í þessari bók
greinir hann skemimtilega frá
ferðalögum í ýmsar sögufræg-
ar byggðir lan-dsins m.a. fetar
hann í fótspor Hórasar í ferð
til Brindisi og kan-nar þá ítal-
íu sem Dante þekkti og notaði
sem umihverfislýsimgu í hinitim
mikla Gleðileik síinium. Þekk-
inig höfundar á skáldskap og
sögu landsi'ns gæðir nútíma-
lýsinigar hans á þessuim héruð-
um óvenjulegum þokka.
Johannes Edfelt: Votivtavl-
or. Bonniers, Stockholm,
1967.
Ljóðskáldið Johanines Edfelt
nýtur aðdáuinar fyrir ljóðaþýð-
ingar sínar á sænsku, og eru
afköst hans á því sviði orðin
ærin. Ei-nfcum hefur hann lagt
sig eftir þýzkri Ijóðagerð enda
þótt hann hafi einnig femgizt
við þýðingar á engkum og ame-
ríSkum ljóðum. Votivtavlor er
safn ljóðaþýðiniga úr ýmsum
áttum og Skipa þar þýzk ljóð-
skáld mest rúm, Schiller,
Goethe og Hölderlin eiga hér
ljóð í sæmskum búningi Edfelts
ásamt mörgum fleiri þýzkum
skáldum, bæði liðntum og lífs.
Einndg eru ljóð eftir t.d. Ez-ra
Pound og fleiri endkumælandi
Skáld. Þetta er stranigpersóniu-
legt úrval Edfelts sjálfs á er-
lendurn ljóðum og munu engin
önnu-r isjónarmið hafa ráðið
ljóðavali, að því er hann
segir í eftirmála. Öll bera þessi
ljóð vott um listrænt hand-
bragð Edfelts og fágaðan ljóða
smekk hans.
Lars Ulvenstam: TV. Dum-
burk eller váckarklocka,
Bonniers, Stockholm, 1967.
Höfundurinn, sem er starfls-
rnaður sænska sjónvarpsins og
fjallar þar aðallega um ýmis
meniningarmál, ræðir í þessari
bók hlutverk sjónvarps í sam-
félagin-u og möguleika þess um
fram önnur fjölmiðlunartseki.
Höfundur flytur mál sitt að
nokkru á grundvelli rannsókna
og viðræðna um sjónvarpsrekst
ur sem átt hafa sér stað í öðr-
um löndum, og samhæfir þau
sænskum sjónarmiðum. Ulven-
stam hefur trú á sjónvai'pi til
eflingar lýðræðislegs verð-
mætamats á sviði félagsmála og
menningarmála, og ræðir um
afleiðinigar þessa og ábyrgðina
sem á herðum sjó-nvarpsstjórn-
enda hvílir.
sv. j.
29. júnií 1969
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15