Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1970, Síða 15
vangi hefur Lennon verið æði aðsópsmikill. í friðarbaráttu sinni notar hann sennilega ein hverjar þær frumlegustu að- ferðir sem um getur. Hann hóf baráttuna rnieð því að gefa út hljómplötu eina furðulega og á umslagi plötunn'ar gat að líta þau skötuhjú eins og guð skap aði þau. Nekt mannskepnunn- ar er í sjálfu sér ekkert athuga verð og ef að þau John og Yoko finna hvöt hjá sér til að sýna heiminum kynfæri sín er það þeirra mál. John sagði að fyrsta skrefið væri að vekja athygli á málinu og það yrði ekki gert nema með róttækum aðgerðum sem þessum. En þetta var aðeins byrjunin. Óþarfi er að rifja upp vikurúmlegurnar í Hollandi og Kanada, eða sýn- inguna sem byggð var upp á samfaramyndum af þeim hjón- um en þetta og margt fleira hafa þau hjón lagt á sig í þágu friðarins. í fyrstu var þetta allt gott og blessað en síendurtek- inn og yfirdrifinn fíflaskapur kann að orka tvímælis og hef- Berrassaður vegna friðarins Þegar John Lennon og Yoko Ono létu klippa sig hér á dög- unuim, ruku rakarar upp til handa og fóta, brýndu skærin og biðu í viðbragðsstellingu eft ir aðdáendum bítilsins, sem fylgja myndu fordæmi hans. Hafi rakarar vonazt eftir aufen um fjölda viðskiptavina vegna þessara aðgerða Lennons hafa þær vonir að ölluim lík- indum brugðizt. Sann- John og Yoko í rúminu. Umsjón: Sveinn Guðjónsson leikurinn er sá að John Lenn- on hefur ekki nein afgerandi áhrif lengur og skal engan undra svo „gáfuleg“ sem mörg hans uppátæki að undanförnu hafa verið. Æðsta takmark allra núlifandi manna er frið- ur. Við stefnum að því að all- ar þjóðir geti lifað saman í sátt og samlyndi og á þessum vett- Lennon og Ono eftir klippmguna. Hver tekur mark á honum nú? ur reynslan orðið sú hér. Þau hjón eru nú þegar orðin við- undur í augum heimsins. f viku blaði einu í Frakklandi var John útnefndur frægasti vit- leysingurinn í heimi og í ensku dagblaði var hann kosinn „trúð ur ársins 1969“ (Clown of the year). Þetta er ef til vill hart fyrir mann, sem notið hefur virðingar og aðdáunar milljóna manna, en Lennon lætur það ekki á sig fá. Sumir segja að hann sé séní, langt á undan sinni samtíð og vel er það hugsanlegur möguleiki. Aðrir, og þeir eru margir, halda því fram að hann sé ekki með öll- um mjalla, hreinlega genginn af vitinu. Og til eru þeir sem halda því fram að Lennon sé einungis að spila með meðbræð ur sína. Hann sé einungis að ganga úr skugga um hversu langt sé hægt að ganga í skjóli nafns síns. Ekki verður felld- ur neinn dómur um þetta hér, en víst er um það, að John Lennon bætir ekki heiminn með því að hlaupa um berrassaður eða afhjúpa blygðunarparta líkama síns frammi fyrir al- heimi. Hann hefur gengið of langt og einmitt þess vegna misstu rakarar af feita bitan- um. IM!° 1 (2) 2 (1) 3 (3) 4 (14) 5 (5) 6 (8) 7 (17) 8 (9) 9 (4) 10 (19) 11 (6) 12 (10) 13 (7) 14 (18) 15 (13) 16 (12) 17 (26) 18 (16) 19 (11) 20 (15) 21 (22) 22 (—) 23 (27) 24 (20) 25 (—) 26 (24) 27 (21) 28 (28) 29 (—) 30 (—) BRIDGE OVER TROUBLED WATER Simon and Garfunkel WAND’RIN1 STAR Lee Marvin LET IT BE Beatles CAN‘T IIELP FALLING IN LOVE Andy Williams THAT SAME OLD FEELING Fickettywitch NA NA HEY IIEY — KISS HIM GOODBYE Steam YOl’NG GIFTED AND BLAOK Bob Andy and Marcia Griffiths DON‘T CRY DADDY EIvis Presley I WANT YOU BACK Jackson Five EVERYBODY GET TOGETIIER Dave Clark Five INSTANT KARMA Plastic Ono Band YEARS MAY COME, YEARS MAY GO Herman‘s Hermits LET‘S WORK TOGETHER Canned Heat SOMETHING'S BURNING Kenny Rogers and the First Edition RAINDROPS KEEP FALI.TNG ON MY IIEAD Sacha Distel UNITED WE STAND Brothcrhood Of Man FAREWELL IS A LONELY SOIIND Jimmy Ruffin LF.AVING ON A JF.T PLANF, Peter, Paul and Mary LOVE GROWS Edison Lisrhthouse MY BABY LOVES LOVIN‘ White Plains ELIZARETH REGGAE Roris Gardner KNOCK, KNOCK. WHO‘S THEPE Marv Honkin YOU'RE SUCII A GOOD LOOKING WOMAN Jo-í Dolan VENUS SPIRIT TN THE SKY SYMPATHY TEMMA HARBOUR JOY OF LIVING WIIO DO YOU LOVE I f!AN‘T HELP MYSELF Shocking Blue Norman Greenbaum Rare Bird Mary Honkin Cliff and Hank .Tricy IiUcy Fonr Tops 1’2. aipríl 1970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.