Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1970, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1970, Qupperneq 4
Þorsteinn Matthíasson GLÓKOLLUR AÐ NORÐAN Halldór Sigurðsson segir frá Hallðór með sr. Rjariia .Innssyni. Ekki er langt síðan leið mín lá niður Skuggasund að stórhýsi því sem tilheyrir prent smiðjunni Eddu. Þar eru um- svif mikil og meðal antnars prentuð tvö íslenzku dagblað- anna dagblaðið Tíminn og dag- blaðið Vísir. Ekki er annað að sjá og heyra en að þama fari allt vel og skipulega fram, enda þótt ýmsum sýnist að lesefnið á síð- um þessara tveggja blaða, sem ég áður mefndi, sé ekki fullkom lega með sama sniði. Ekki hef ég lengi svipazt um þama innan dyra, fyrr en á vegi mínum verður vörpuleg- ur eldri ma-ður vel á sig kom- inn, ljós í andliti og bjartur á hár. Þarna er á ferð Halldór Síg- urðsson, húsvörður í prent- smiðjuhúsinu. Þessi aldni höfðingsTnaður hefur á sér snið fyrirmanna, án þess þó að gefa með því til kynna að honum sé móti skapi að eiga orðaekipti við venjulegt fólk. Og nú sit ég í vinalegri stofu, sem Halldór hefur tii umráða og íbúðar á efsta lofti þeirrar mi'klu byggingar, er honum er falið að gæta, og heyri hann rekja nokkra minningaþræði, frá því að hann ungur man sig heima í Vestur-Húnavatnssýslu til þess tíma að hann aldinn að árum lítur á lífið frá sjónar- hóli hins margreynda manns. Ég heiti Halldór og er Sig- urðsson. Foreldrar mínir voru Sigurður Halidórsson og Kristín Þorsteinsdóttir. Hún var ættuð frá Laxnesi í Kjós. Halldór, afi minn, kom sunnan af Kjaliarnesi, gerðist vinnumað ur hjá Sigurði bónda á Lækja- móti og kvæntist heimasætunni, Sigríði dóttur hans. Hún varð mikil merkiskona. Þau fluttust seinna suður á Kjalarnes, bjuggu víða, lentu meðal arai- ars í Króki og Lykkju, eignuð- ust 12 börn og brá hvergi. Sigurður faðir minn, var fæddur áður en þau fóru að norðan>, varrð hann þar eftir og ólst upp hjá afa sínum á Lækja móti. Þaðan kvæntist hann fyrri konu sinni, Sigurlaugu dóttur Bjarna sterka í Gilhaiga í VatnsdaL Hana missti hann eftir stutta sambúð og kvæntist þá seinna móður minni. Þegar ég fæddist, bjuggu foreldrar mínir á Skarfhóli í Miðfirði, en fluttust að Torfu- stöðtum þegar ég var 5 ára og þar ólst ég upp til fermingar- aldurs. — Hvernig var Húnaþing á þínum uppvaxtarárum? — Landslagið það sama og nú er, en tún lítil og ill- vinnandi vegna þýfis. Á því fé-kk ég að kenna þegar ég var að læra að slá. Oddurinn vildi rekast í og ljárinn bogna eða brotn.a. Flest voru túnin ógirt, enda gaddavír þá ekki þekktur þar. Og fyrst eftir að hann kam, litu ýmsir þessa nýjiung illum augum og töldu að um dráps- tæki væri .að ræða, sem gæti arðið skepnum að grandi. — Urugur vakti ég því yfir túná. Margir voru fátækir, en þó voru nokkrir, sem upp úr þeim arnaóði risu og höfðu góð bú, trvö — þrjú hundruð fjár og þrjár kýr. Allir áttu eitthvað af stóði. Þegar ég fermdist, fékk ég vet- urgamalt trippi. Það þótti nokkuð þá, og er eitt af því fáa, sem ekki hefur minna verð- gldi nú. Eftir ferminguna hugðist ég leggja leið mína til mennfa o.g innritaðist í Flensborgarskóla. Auðvitað var ekkert vit í þessu, ég átti alltof litla pen- inga. Svo fékk ég mislinga tmi veturinn og upp úr þeim tauga- veiki. Líkiega hef ég verið líf- seigur því ég skrimti en 11—12 nemendur skólans tóku tauga- veikina. Við lágum þarna í heimavistinni eins og hundar. — Það var ljóta sjúkrabúsiviist- in. — Þegar þetta loks var yfirstaðið var ég orðirm ærið aumur og fór heim seinfnd part vetrar. Ég hafð- enga hjálp og engin efni á því að halda áfram. — Naesta vetur fór ég þó suður, ekki samt til náms í Flensborg. Ég fór að læra á orgel hjá Hallgrími Þorsteins- syni og síðar Jóni Pálssyni banikaritara. Það var góðiur karl, þótt sturiidum væri hann napur í tiisvörum. Einnig fékk ég tilsögn í glímu og þar var lærifaðir minn himn mæti mað- ur, Halligrímur Benedikbsson, faðir G-eirs borgarstjóra. — Það gerðist margt þennan vet- ur, meðal annars fór ég í dans- skóla. Við vorum fjórir sarnan Norðlingar. Auk mín þeir Sveinn Jónisson, sem kaliaður var skáldi, Tryggvi Svörfuður Sveirnbjörnsson, konungsribari síðar, oig Hilmar Steifánsson er varð bankastjóri Búma'ðarbaink ans. Þeir Sveinn og Tryggvi voru framámenn. Hilmar var d'áilítið hlédrægu'r, en auðvitað viar ég minmsti bógurinn. Dansæfingarnar fóru fram í Iðnó. Kennarar voru þær Stefanía Guðmundsdótt.'r og Guðrún Imdriðadóttir. Stefanía var leikkona af guðs náð, eng- in hefur náð þvíilífcuim tökum á hlutverki Höllu í Fjiaiia-Ey- vindL Já, hún va.r fluggáfuð og yndisieg kona. Hún var vön að segja þegar við komum á æfing ar. — rrKomdu hérna glókoll- ur minn að norðan." Þetta mis- líkaði hínum, sérstaklega Tryggve.. Homim fannst hún gefa mér óverðugum meiri gaum en þeim. Ég hiaut að vera illa búlnin og fákun.nandi miðað við þá memn, sem setztir voru í Lærða skólann. Mér þótt ivænt um Stefarúu og bar virðirLgu fyrir hennd. Hún var í minum augum engill ljóss'ns og hana hef ég dáð adlt mitt lif. Gló- kollurinn að norðan, hefur alla tíð búið að kynnum við þessa konu. Mér fa>nn®t hún geta ver- ið móðir mín, vinur og uninusta. Þetta var hrein og barnisleig t’I- finning. Ég hraktist um hér í Reykja- vík og endaði með þvi að ráða mig á sfcúturua Esther. Hún var eign Duusverzktnar og sklp- stjórinn var Sigurður Móeses- son. Ég hafði aldrei koimið á sjó og þekkti ekkert til þeirra verka er þar voru unnin, Við fórum austur á baLnka. En þeg- ar Lðnir voru 5 dagar bafði ég etkiki enmþá risið úr kioju, sök- um sjóveiki. Skipstjórinn kom þá til <mjín og sagði að a-nnað hvort yrði ég að koma upp á dekk og draga >að mér hreimt loft eða hann yrði að sigla með mig til Reykjavíkur. Ég staui- aðisf upp með aðstoð félaga minna og sm.áskánaði þeasi óþverri, en það sagði ég skip- stjóra, að aldrei murndi ég sjó- maður verða. Ég fékk aldrei fisk, þó ég hémgi við dráttinn. Féiagar ■miinir sögðu að ég væri með allan hugamn hjá stelpumum í landi. Þegar við komium úr túrmun reyndist óg hiafa lagt af mér 17 pund á hafi útL Ég draslaði þó með skipstjóra til vertíðarloka. Þá var emga pen- inga að hafa í sveitimni, fremur en vant er. — Annars hefur það adila tíð Halldór Sigurðsson 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26- júlí 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.