Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1971, Qupperneq 6
JAPANIR
MYNDA
ÍSLAND
Herðubreið. Myndin er tekin xír lofti og sést líklega
til vestnrs. Nœrri forgrunni myndarinnar er hóll eða
hnjúkur. Einhvern tínia liefur hann staðið einn upp
úr g-ífurleg-u liráunflóði.
Að neðan til vinstri: Þannig niynd kusu Japanir að
birta af Þingvöllum: Gjársvæðið vestara, sem sýn
ir svo vel, hvernig hraunskorpan rifnaði, þegar land
spildan milli gjánna seig. Og þarna við vatnið er
sú sanna gullströnd, þar allir mundu sumarbústað
eiga vilja. I baksýn er Ármannsfell, en Japön-
um hefur ekki þótt taka því að láta sjást meira en
upp í miðjar hlíðar.
Að neðan til liægri: Hrikaleg fjöll, gilskorningar og
berar skriður. En handan við íjallsöxlina sést íit yfir
viðáttumikið liérað. Hvað japanski textinn segir, vit-
um við ekki, en glöggur maður hefur bent á, að
fjallið í baksýn muni vera Tindastóll og grillir í
Sauðárkrók við bugtina, ef vel er að gáð og mynd-
in prentast vel. Eftir því að dæma er myndin tekin
úr lofti yfir fjöllunum milli Skagafjarðar og Eyja-
fjarðar. En kannski er það rangt og þá eru vafa-
laust margir, sem þekkja þessi fjöll eins og hend-
urnar á sér og geta frætt okkur imi það rétta.