Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1971, Side 7
1 .. 1,1,1 ^ SVIPMYND CHOU EN-LAI Fljótur að gTeina aðal atriðin frá aukaatriðunum. Þcgar viðraeður Kínverja og Bandaríkjanianna liofjast í Pelting verður það Chou En- lai, forsœtisráðherra Kína, sem situr andspænis Nixon Banda- ríkjaforseta við samningaborð- ið. Chou hefur annazt allar slíkar viðræður, fyrir hönd Mao formanns, síðan árið 1936. Chou er að því leyti ólíkur ýmsum æðstu mönnum kín- verskra kommúnista, að liann ■er fra.múrskarandi sjarmerandi og viðfelidinn maður, gæddur ríkri kímnigáfu og skörpum gáfum. Minnt lians er með ein- dæmum og hann er fljótur að átta sig og skilja hismið frá kjarnanum. Sjaldan skrifar hann nokkuð niður á slíkurn funduni ok aldrei þarf hann að leita á náðir uppsláttar- hóka; hann geymir alla vitn- eskjuna í licilabúinu. Hann er þolinmóður í slíkuni samninga- viðræðum, svo að af ber, hann lieldur sínu máli óspart fram og þumbast við stöðugt, þangað til Iiann fær sínu máli fram- gengt. Jafnvel þótt fjúki í hann, sóst það lítt; eina merk- ið er að augabriinirnar mjak- ast þá ögu upp á við. Chang Chih-chung, aðalsamn ingamaður Formósustjórnar í viðræðiimiin við kínverska komniúnista á árununi kringum 1940 sagði einliverju sinni: „Ekkert er auðveldara en vera ósammála Chou En-lai, en það er nánast óhugsandi að láta sér líka illa við liann. Hann er svo fastur fyrir í viðræðum, að stiindum livarflar að manni sú hugstin, livort ekki væri skynsamlegra að snúast á hans sveif.“ I>\1 er ekki að leyna að ytri persónutöfrar og rólyndi Cliou En-lais geta verið blekkj andi. I þeim samningaviðræð- um, sem liann hefur tekið þátt í, virðist liann liafa fengið því framgengt, sem Mao æskti, ella livíldi ekki á honum slík ábyrgð og raun ber vitni. Einn af mörgum kostum Chous er að honum er lagið að koma liugmyndafræðilegiini komnuin ískum orðtökum þannig til skila, að aðgengriiegt er og skiljanlegt vestrænu eyra. En Chou En-Iai ræðir við unga stúlku úr- bandarískri sendinefnd. þar með er engan veginn sagt að hann víki í nokkru út af þeirri línu, sem Mao formaður hefur dregið upp styrkri hendi. Mao er hugsuðurinn, Chou er sá sem mælir orð hans af munni fram. Nixon Bandaríkjaforseti er að sönnu þrautreyndur stjórn- málamaður og þekkir vel til al þjóðamála af öllu tagi, en ekki er vafi á að erfiðari viðsemj- andi hefur ekki fyiæ orðið á hans vegi, og liann nmn jmrfa á öllu sínu að lialda til að vel fari. Á Vesturlöndum hefur stöðu Clious oft verið líkt við að- stöðu Mikojans í Sovétríkjun- uni. En ef vel er að gáð og ferill lians og störf könnuð til hlítar freistast niaður til að setja hann skör ofar en Mikoj- an, þrátt fyrir alla hans rússn- esku kænsku. Chou hefur verið einn æðsti maður kín- verskra komnnínista allar göt- ur síðan 1949. Og það sem meira er, hann hefur lifað af liarð- vítugri v'aldastreitúr í kín- verska komnuinistaflokknurii en Mikojan gerði innan sov- ézka kommúnistaflokksins. Meira og niinna ghesilegan og athyglisverðan feril Chous má rekja áratugi aftur í tímann og hefur á liann horið fáa um- talsverða skugga. ' I>egar Chou En-lai var að hefja frafnaferií sinn, varð honum það reyndar á að veðja á rangan liest. Á árununi upp úr 1920 skipaði liann sér við hlið Li Li-san, sem var sérstakur skjólstæðingur Moskvuvaldsins. Sú stefna sem hann mælti með að flokk- urinn fylgdi varð honuni næst- um til sundrungar og flokks- þingið árið 1930 fordæmdi þessa stefnu harðlega og með nokkrum rétti að margra dómi. Margir voru þá sviptir ábyrgð og áhrifum, en Chou var svo raunsær maður, að liann gerði sér ljós mistök sín og játaði þau i lieyranda hljóði. Hann snerist á sveif með Mao Tse- tung og liðsmönnuni hans, sem liöfðu þá komið á fót Kiangsi- ráðinu sem aðalmiðstöð sinni. Hægt og bítandi tókst Chou að afia sér trausts og vinna sig í álit hjá Mao og varð þriðji æðsti maður flokksins á eftir Mao og Cliu Teh, marskálki. Það var þó ekki fyrr en árið 1936, að Ciiou kom frain sem alþjóðlegur samningamaðiir fyrir iiönd flokksins. Hann stýrði liiniim ótryggu og erfiðu samningaviðræðum milli |»jóö- ernissinna og konimúnista við upphaf styrjaldarinnar milli Kínverja og Japana árið 1937. Um þessar niundir voru kín- verskir komnninistar í veikri samningsaðstöðu eftir mikla hlóðtöku í Görigunni niiklu. Engú að síður tókst Chou En-lai að stuðla að því að flókkurinn gat fyíkt liði að nýju og geyst fram til næstu átaka. Hann átti drjúgan lilut að þvi að brúa hilið milli þeirra Maos og Lin Piaris —- sem er opinber arftaki Maos — og fyrir niilligöngú Clious sagði Lin Piao skilið við fyrri stöðv- ar sínar í Suður Sliansi og hélt til Yenan til að ganga í lið með Mao. I ljósi þeirrar þróunar, sem hefur orðið, hlýtur að verða að líta á þetta sem eitt mesta þrekvirki Clious í þá átt að efla einingu innan flokks- ins. En velg>engni og ábyrgð stigu ekki Chou til höfuðs. Pegar Liu Sliao-chi lióf að auka álirif sín í flokknum ár- ið 1939, var Chou En-lai orð- inn varaformaður miðstjórnar- innar. Ýmsum hefur komið á óvart undanlátssemi Chous við Liu, en sá síðamefndi hafði eft irlit með allri neðanjarð- arstarfsemi konuminista á yf- irráðasvæðum þjóðernis- sinna og liafði einnig á hendi skipulagsstörf í Yenaiistöðviin um. Hugsanlegt cr að CIiou liafi skilið að aðstaða Lius var ]>að sterk innan flokksins, að hyggilegra var fyrir hann að beygja sig undir vald hans til að gera lífið léttara fyrir Mao. Hvað sem þ\1 líður gat Chou að minnsta kosti stært sig af því að hafa sannfært Mao um að hann væri reiðubúinn að spila aðra fiðlu. I>ví hefur Mao Tse-tung aldrei litið á Chou sem keppinaut sinn um æðstu yöld.og það hefiir með árunum orðið bæði flokknum, fórmanninum og . sennilega Chou En-lai sjálfum til góðs. Ekki ber þó að álykta að Cliou En-lai sé ónænmr fyrir sætteika valdsins; hann er met orðagjarn og afskiptasamur, en sennilega raunsærri og ívið greindari en flestir ráðamenn konimúnistaflokksins. Kannski má rekja ýmsar hans náttúrur til uppruna hans. Hann fæddist árið 1898 í Kiangsu og voru foreldrar hans miðstéttarfólk. Hann hlaut menntun í Tientsin og siðan hélt liann til Frakk- lands. Hann er fágaður maður í franikomu, klæðist khakiföt- um að sið kínverskra ráða- manna en ber þann fábrotna fatnað af ólikt meiri reisn en ýmsir aðrir. Hann er að vísu fljótur að greina aðalatriði og aukaatriði, en liann i-asar aldrei um ráð frani og tekur ekki ákvarðanir nema að vand lega yfirveguðu ráði. Hann er sjálfsagt þeirrar skoðunar, að sú staða sem liaiin hefur inn- an flokksins henti þeim báðum bezt og þótt liann hafi ekki uppi mlkil ærsl veit hann ugg- laust að mikilvægi lians innan æðstu stjórnar landsins er ótvírætt. Af ölluin kínversku leiðtog- unum er hann liklega sá, sem mestrar virðingar nýtur. Ilann er kvæntur Ten Ying-chao og hefur hún verið í fararbroddi kínverskra kvenna. Einkalíf lians liefur alla tið verið far- sælt og liann liefur aldrei ver- ið flæktur í nein hneykslismál, hvorki í sínu einkalífi né i Framh. á bl.s 12 22. ágúst 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.