Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Blaðsíða 8
Giiðniuiida Jónsdóttir, húsfreyja í Kjörvog-i, með barnabarn sitt. I>au Guðjón og Giiðmunda áttu 12 börn, en nú er enginn í Kjörvogi yfir veturinn. Brött fjöll og veðruð handan fjarðarins, en berum melum hallar niður til sjávar- ins og nokkur hús á ströndinni. Þannig er umhorfs á Gjögri. I þeirri fornfrægu veiðistöð er nú dauflegt iim að litast. Guðjón í Kjörvogi við sjóbúðina og há- karlahjailinn, sem þar eru við lendinguna. Tuttugu börn á tveimur bæjum . . . og brekkan hvíldi á hon- um eins og farg: Tvilyft stein- hús frá 1926, dálítið minnis- merki um ódrepandi seiglu. Frá Naustvík er haldið sneið inga út með firðinum og hvergi svo mikið sem rimi af undir- lendi. Á einum stað niðri við sjóinn er smáskrýtinn staður með smáskrýtnu nafni; þar heita Ónar. Þar hófst hin raunalega píslarganga Spán- verjanna, sem rak á land und- an óveðri og ís árið 1615; þeir voru hvalveiðimenn. Enginn skildi þá og allir voru hrædd- ir við þá, vesæla, sjóhrakta menn, komna fyrir slys uppá annarlega strönd úti á verald- arhjara. Fyrir fáeinum árum kom ég að Hvallátrum við Látrabjarg og Ásgeir vitavörður Erlends- son gerðist leiðsögumaður útá bjarg. Leiðin liggur um svo- nefnda Brunna; þar var út- ræði og enn sjást þar sjóbúð- ir. Og annað heldur leiðinlegra minnismerki er þar líka: Spán- verjahaugur. Þeir flæktust alla leið þangað yfir fjöllin, trú- lega orðnir örvæntingarfull- ir af hungri og vosbúð. En í þessari hrjóstugu vík, þar sem Evrópa teygist lengst í vestur, þar urðu leiðarlok hjá Spán- verjum. Garpskapur var ekki með öllu liðinn undir lok hjá Is- lendingum um þetta leyti og sáu hraustir drengir vestur á Fjörðum, að nú var hægt að vinna frægðarverk; sanna að þeir væru ekki síðri en Þor- valdur i Vatnsfirði og aðrir hugprúðir höfðingjar. f>eir mættu hinum langhröktu, spönsku skipbrotsmönnum í Brunnum skammt frá Látra- bjargi og hjuggu þá niður sem sprek. Svo sem liðlega klukku- stundar lestagang frá Naust- vik er komið að Kjörvogi. Það er reisulegur bær á brattri brekkubrún, sem verður uppaf ströndinni. í vörinni niður af bænum þótti betri lending en víðast annarsstaðar hér um slóðir; þar stendur enn uppi hákarlahjallur og veggir af stæðilegri sjóbúð. Hjónin í Kjörvogi, Guðmunda Jónsdótt- ir og Guðjón Magnússon, hafa búið þar í 37 ár og þau eiga 12 börn á lífi. Þar fyrir er al- sendis óvíst, hvað framtiðin ber í skauti sínu i Kjörvogi. Líkt og í Naustvik eru börn- in öll upp komin og horfin á tvist og bast; flest búa þau i Reykjavík og Hafnarfirði. Þau Guðmunda og Guðjón eru líka hætt að vera í Kjörvogi yfir veturinn: þetta er annar vetur- inn þeirra syðra. En þegar vorar og snjóa leysir, halda þau aftur heim líkt og farfugl- arnir. Og kannski verður eitt og eitt barnabarn með í för: inni. Það er naumast um bú- skap að ræða, en Guðjón er verkstjóri í vegavinnu og þar að auki oddviti í Árneshreppi. Hann er reffilegur maður, sem gengur með hálstau hvunndags og hefur yfir sér þann brag, sem löngum hefur einkennt stórbændur og fyrirmenn í sveitum. Það verður heldur ekki séð á húsfreyjunni, að hún hafi komið upp tólf börnum án þess að hafa átómatísk heimil- istæki í röðum. Guðmunda er tágrönn og fínleg kona, upp- runnin úr afskekktinni norður í Ingólfsfirði. Hún kvaðst vera fædd á Eyri í Ingólfsfirði; þar var byggð síldarverksmiðja og þar bjó Guðjón hreppstjóri, sem lézt nú í haust, rétt eftir að hann fluttist suður. Guðmunda átti líka heima á Seljanesi á tanganum milli Ófeigsfjarð- ar og Ingólfsfjarðar. Þar var búið þangað til í haust en það var ýmsum erfiðleikum bundið, varla jeppavegur þangað, hvað þá aðrar samgöngur á landi. Þegar Guðmunda í Kjörvogi var ung stúlka á Seljanesi, var ólíkt líflegra norður um Strandirnar. Þá var búið í Ófeigsfirði, á Dröngum, í Drangavík og jafnvel norður í Skjaldabjarnarvik. Þá var far- ið fótgangandi um vegleysur á landi og þótti engum mikið, en þetta fór að breytast að marki uppúr 1940 og þá fóru þessir staðir i eyði. Guðmunda virtist ekki gera sér neina rellu útaf þvi að dveljast syðra yfir vet- urinn. Þó hefur hún alla ævi átt heima í Árneshreppnum. Við drukkum kaffi í stofunni í Kjörvogi. Það var heimilisleg og menningarleg stofa og góð- ur andi, sem lá þar i loftinu. Þau hafa haft rafmagn frá dieselstöð síðan 1958 og sími kom að Kjörvogi 1934. Guðjón í Kjörvogi kunni heldur ekki illa við sig fyrir sunnan, þótt hann væri Strandamaður og bóndi af lífi og sál. Hann fékk vinnu hjá símanum; gerði við hjólhýsi því hann er laghentur. Guðjón er frá Kjörvogi, fæddur þar og uppalinn. Þá var blómlegra um að litast í Árneshreppi, engin jörð i eyði. Menn lifðu á því sem landið gaf og einkum og sér i lagi þvi, sem sjórinn gaf. „Kjörvogur er býsna þægi- leg jörð,“ sagði Guðjón; „hér í námunda er silungsvatn, sem mætti rækta upp. Og skínandi aðstaða til grásleppuveiði. Unga fólkið setur samgöngu- leysið fyrir sig. Þá skiptir ekki máli, hvort það fær hátt kaup. En það hefur árað illa, það fer ekki milli mála. Þó er bezta sprettan núna siðan 1968, að mikill grasbrestur varð hér norðurfrá og þá fargaði ég fénu. Ungum manni héðan úr sveitinni seldi ég 35 ær á einu bretti. Hann var að byrja bú- skap á Melum hér í hreppn- um; kvæntur stúlku úr Reykja- vik. Ég held bara að hún kunni vel við sig“. Þegar litið er til heimilda um lifsbaráttu á Ströndum fyrr í timanum, þá sést að menn hafa fyrst og síðast treyst á sjóinn. Magnús í Kjörvogi, fað- ir Guðjóns, hafði eina eða tvær kýr, 35—40 kindur og 2 hesta. En á þessu búi var ekki lifað nema að litlu leyti. Aftur á móti átti Magnús í Kjörvogi þriggja rúma bát með tveim öðrum mönnum. Yf- ir vetrarmánuðina var þá ekki bein úr sjó x fjörðunum, en þorskurinn fór að ganga í maí. Það var líka vaðandi síld; Magnús veiddi I tvö sildarnet. Heimilisfólkið í Kjörvogi borð- aði síld, gjarnan steikta, en að öðru leyti var síldin notuð í beitu. Kúfiskur var Iíka notað ur í beitu og plægt fyrir hann á haústin. „Alltáf fór pabbi- á sjó þeg- ar gaf“ sagði Guðjón. „Hann var á sjó allt sumarið, frameft- ir hausti og .stundaði heyskap- inn í hjáverkum. En uppúr nýárinu fóru þeir að búast í 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. janúar 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.