Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Síða 12
Um kosningarétt og kjörgengi Vjyy* íslenzkra kvenna Eftir Gísla Jónsson, menntaskólakennara 6. hluti ý*'/ /** Elínborg Jakobscn, fyrsta konan á Islancli scm tók stúdentspróf. Meiri hluti nefndarinnar vék ekkert að einstökum atrið- um frumvarpsins, en taldi, að slíkt frumvarp væri í heild sinni ótímabært vegna þeirra samningaviðræðna við Dani, sem þá voru framundan um ný sambandslög. Lagði því meiri hlutinn til, að málinu væri vís- að frá með rökstuddri dagskrá. 1 umræðunum var síðan varla minnzt á kosningarétt kvenna sérstaklega, en rökstudda dag- skráin samþykkt með 16 atkv. gegn 7. Hinn 31. ágúst 1908 birtir kvennablaðið áskorun frá Carry Chapman Catt til is- lenzkra kvenna um að gerast aðilar að alþjóðakosningarétt- arsambandinu, I.W.S.A., og senda fulltrúa á næsta ársþing í London, en úr þvi varð þó ekki. En fyrr þetta ár, eða 1. febrúar, var haldinn kvenna- fundur í Reykjavík að tilhlut- an Kvenréttindafélags íslands. Var Bárubúð fullsetin og m.a. fundargesta margir þingmenn. Bríet setti fundinn, en fundar- stjóri var Sigriður Hjaltadótt- ir, kona Jóns Jenssonar yfir- dómara, en fundarritari Guð- rún J. Briem. Fyrir fundinum lágu þessar tillögur: „Fundurinn skorar á alþingi, a) að samþykkja sem fyrst þá breytingu á stjórnarskrá lands ins, að konur geti öðlazt kosn- ingarétt og kjörgengi til al- þingis með sömu skilyrðum og karlmenn, b) að taka upp á þessu þingi almenn lög um kosningarétt og kjörgengi kvenna í sveitarmálum öllum og héraðsmálum jafnt karl- mönnum, og c)að veita konum jafnrétti við karlmenn við all- ar æðri menntastofnanir lands- ins og til allra embætta og op- inberra sýslna hér á landi.“ Sr. Ólafur Ólafsson frí- kirkjuprestur studdi þetta ein dregið. í>á töluðu þrjár konur, Laufey Vilhjálmsdóttir, Gunn- þórunn Halidórsdóttir og Kristín Simonardóttir. Bæði þær og fundarstjóri óskuðu að heyra álit þingmanna, og eink- um skoraði fundarstjóri á 1. þm. Reykvikinga, dr. Jón Þor- kelsson, i þessu efni. Þá talaði 2. þm. Reykvíkinga, Magnús Sigfússon Blöndal, og lýsti yf- ir þvi, að hann hefði jafnan verið með þessu máli og væri enn. Síðan segir: „Eftir ítrekaðar áskoranir fundarstjóra stóð dr. Jón Þor- kelsson upp; ráðlagði hann fyrst konum að hafa hægt um sig. Sjálfur kvaðst hann ekk- ert þekkja þetta mál og aldrei hafa um það hugsað, en nú ætl aði hann að fara til þess. Taldi ekkert á móti, að konur fengju sveitarstjórnarréttindi almennt, fyrst það hefði verið upplýst, að þær hefðu fengið það að fullu í tveim hreppum landsins (hann á við Reykja- vík og Hafnarfjörð). Þá talaði Björn Sigfússon á Kornsá, bróðir Magnúsar Blöndals, 1. þm. Hún., og var eindregið með málinu, enda hefði áskorun um að fylgja þvi fram, undirskrifuð af um 250 konum, verið borin upp á báð- um þingmálafundunum í hans kjördæmi og samþykkt með öll um atkvæðum, Hefði kona flutt áskorunina á öðrum fundinum, og var henni boðinn þar bæði atkvæðisréttur og málfrelsi. Fleiri þingmenn töluðu ekki þrátt fyrir ítrekuð tilmæli kvenna, en tillagan var sam- þykkt lið fyrir lið með öllum atkvæðum. Bríet deildi á þing- menn og aðra karlmenn fyrir að láta ekki í ljós skoðanir sínar á málinu. Við munum, að Jón Magnús- son og Bjöm M. Ólsen höfðu 1907 vakið máls á því misræmi, er varð um kosningaréttinn til sveitarstjóma, er giftar konur í aðeins tveimur kaupstöðum fengu þann rétt, en aðrar ekki. Þar hafði líka gamla klausan um rétt kvenna til að skorast undan verið upp tekin. Á næsta þingi, 1909, fer Skúli Thoroddsen af stað með frum- varp þess efnis, að þessi réttur nái til kvenna alls staðar á landinu með þeim takmörkun- um, sem lögin tiltóku. Ennfrem ur var lagt til, að vinnuhjú hefðu bæði kosningarétt og kjörgengi í sveitarstjórnarmál- um, ef þau fullnægðu sömu skilyrðum og þeir karlar og konur, sem ekki séu öðrum háð sem hjú. 1 framsögu gat flutn- ingsmaður þess, að þar sem kosningarétturinn og kjör gengið væri í lögunum bundið við gjald til sveitarsjóðs, þá kæmu þessi réttindi hjúum lítt að notum, því að óviða gyldu þau til sveitar, en heimilt væri þó í lögum að leggja útsvör á vinnuhjú, og sú mundi vera tízkan í sumum sveitum að ein- hverju leyti, enda taldi hann víst, að mörg vinnuhjú myndu vilja vinna það til þessara rétt- inda, að gjalda litilræði í sveitarsjóð. Þetta frumvarp fór umræðu- laust að kalla og andspyrnu- laust með öllu gegnum neðri deild. 1 efri deild var kosin í það þriggja manna nefnd: Júlíus Havstein (1. konkj.), Jósef Björnsson (2. þm. Skag.) og sr. Sigurður Stefánsson í í Vigur (þm. Isafj.). 1 áliti þeirra sagði, að nefndin væri sammála neðri deild um það, að frumvarpið ætti að ná fram að ganga, í fyrsta iagi vegna þess, að nokkrar af konum landsins hefðu þegar feng- ið þennan rétt, er frumvarpið veitti, og skapaðist því ella óhæft misrétti, og i öðru lagi vegna þess, að það væri óheppi legt og ranglátt, að nokkur missti kosningarétt og kjör gengi til sveitarstjórnar, að- eins af því að hann væri árs- vistarhjú hjá vinnuveitanda, þegar sá hefði kosningarétt- inn, sem réði sig styttri tíma eða væri lausamaður eða lausa kona. Með þessu lægi rétt indamissir við því að ráða sig í ársvist, og væri slikt allt annað en heppilegt, jafn erfitt og væri að fá nauðsynlegustu hjú vistráðin. Nefndin var því efnislega samþykk frumvarpinu, en gerði á því orðalagsbreytingar. Eins og i lögunum um Reykja- vík og Hafnarfjörð var tekin upp klausan um, að konum skyldi heimilað að skorast und an kosningu, og lagt til, að lög- in tækju gildi 1. janúar 1910. Jósef Björnsson hafði stutta framsögu af nefndarinnar hálfu og taldi hér stigið rétt- mætt spor í áttina til fulls jafn réttis karla og kvenna. Steingrímur Jónsson sýslu- maður (4. konkj.) sagðist sam þykkur frumvarpinu í aðal- atriðinu, þ.e. kosningarétti giftra kvenna, en taldi vafa- samt að veita hjúum kosninga- rétt og kjörgengi í sveitarmál- um, meðan ekki væri búið að leysa vistarbandið. Slík rétt- indi væru raunar ósamrýman- Ieg vistarskyldunni, eins og hún væri. Húsbóndi gæti eftir hjúalögunum neitað hjúum sín um um að notfæra sér kosn- ingaréttinn. Þá taldi hann stór athugavert að gera hjúum að skyldu að taka við kosningu, þau yrðu að hafa, eins og gert væri ráð fyrir um konur yfir- leitt, rétt til að skorast und- an kjöri, því að þau væru bundin og gætu ekki tekið við kosningunni nema með leyfi húsbónda síns. Lárus H. Bjarnason (5. konkj.) taldi enga ástæðu til að meina hjúum kosningarétt. því að þau væru útsvarsskyld og sjálfsagt, að þau hefðu þá einhver áhrif á það, hvernig fénu væri varið. Hitt væri ann að mál, hvort veita ætti þeim kjörgengi að svo stöddu, og væri hann sammála Steingrími Jónssyni í því, að þau ættu að hafa rétt til að skorast und- an kosningu. Jósef Björnsson taldi nefnd- ina mundu taka það til sér- stakrar athugunar. Sigurður Stefánsson sagðist hafa verið þvi meðmæltur að leysa vistarbandið, en bænd- ur teldu þó varhugavert að leysa það til fulls, það gæti valdið enn meiri vinnufólkís- eklu, sem ekki væri á bætandi. Hann bjóst ekki við, að það skipti miklu máli, þótt hjú fengju að skorast undan kosn- ingu, því að þau mundu fyrst um sinn litt kosin í sveitar- stjórnir. Auk þess væri vegur- inn tiL lausamennsku svo auð- farinn nú, að engum vel vinn- andi manni ætti að vera ókleyft að leysa sig undan vist arbandinu, ef hann sæktist eft- ir þessum réttindum. Hann taldi sárafáa húsbændur mundu synja hjúum sínum um að neyta kosningaréttar, ef til kæmi. Þau væru ekki lengur skoðuð sem ófrjálsir menn, sem húsbændurnir hefðu allt vald yfir. Steingrimur Jónsson ítrek- aði, að húsbóndi hefði eftir hjúalögunum, réttinn, og myndi ef til vill beita honum við hjúin, ef þau væru í öðrum flokki en hann. Sigurður Hjör- leifsson læknir (þm. Ak.) vildi þá, að sett yrði i lögin ákvæði, er bannaði húsbónda að koma í veg fyrir, að hjú hans neytti réttarins. Lárus H. Bjarnason taldi slíkt ákvæði óþarft; ef þeim yrði veittur þessi réttur í lögunum, fælist í því, að hús- bændur gætu ekki meinað þeim að neyta hans. Síðan voru tillögur nefndar- innar samþykktar að mestu samhljóða og frumvarpinu vís- að til 3. umræðu. Þá lágu fyrir ýmsar breyt- ingartillögur. Fyrst frá Stefáni skólakennara Stefánssyni (6. konkj.), Ágústi Flygenring og Lárusi H. Bjamasyni þess efn- is, að vistráðin hjú hefðu ekki kjörgengi, þótt hafa skyldu þau kosningarétt, og í annan stað að fella burt ákvæðið, þar sem konum var heimilað að skorast undan kosningu. En frá nefndinni var sú viðbótar- tillaga við þetta ákvæði, sem þremenningarnir vildu fella niður, að vistráðnir karl- ar gætu og skorazt und- an kjöri. Þá var tillaga frá Steingrími Jónssyni og Stefáni Stefánssyni, sem fól í sér að fella alveg niður kosningarétt vinnuhjúa auk kjörgengisins. Framsögumaður nefndarinn- ar, Jósef Björnsson, sagði nefndina algerlega mótfallna hinni síðastnefndu tillögu. Slíkt væri ófært miðað við lausafólk. Ekki mætti varða réttindamissi að ráða sig í árs- vist. Hins vegar féllst nefndin á fyrri breytingartillögu þre- menninganna, þ.e. að fella nið- ur kjörgengi hjúa, og dró því sína tillögu til baka. Hins veg- ar - féílst nefndin ekki á þa breýtingartillögu að fella niðíir ákvæðið um heimild kvenria til að skorast undan kosningu. Þó segja mætti, að 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. janúar 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.