Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Side 3
Piet Hein fjöldasamkomur, bít, þjóð Iagasöngur og s>nfóní«r Nokkur smáljóð Þú herjar á vandann. samt viðbúinn því, að birtist hann aftur og aftnr — á ný. Náttúran veitir af náð sinni hnoss: um nizku má hana ei saka. Kn ríkið tekur þau öll frá oss og ekkert gefur til baka. Hvað varðar það' mann, sem er viss um sinn hag-, þótt veröldin öll sé komin í slag? Sorg finnst ei dýpri né sárari hér en sem við ei skynjum af hverju er. Alvizka heitir það á sinn hátt, ef við skynjum, hvað vitum fátt. . . . og síðast en ekki sízt til að horfa á bíó eða sjónvarp . . . snentingu við það, sem aðrir hafa fyrir stafni, ný sjónarmið opnast og áhugamá'l verða til. Veggir sporöskjulagaðs leik- húss, sem þama er að finna, ná t.d. ekki til lofts svo að op- ið er út í skálann. Sá, sem slæðzt hefur imn tii að fá sér bjórkrús, hitta kærustuna eða horfa á fótibolta á stóra skerm- inum, kann því að heyra óm af hljómleikum eða slitruir úr leikþætti og hinknar e.t.v. leng ur við en ætlunin var. Á hinn bóginn er eins vist, að fastform að frumsýningarsnobb stökkvi upp á nef sér við að heyra skrölt og skvaldur framan úr skála, en það verður 'þá að hafa það. Hér er að finna gagnhrif i öllum blæbrigðum og að þeim vildi van Klingeren einmitt stuðla. 1 blaðaviðtali sagði hann eitt sinn: „Til stóð að hanna fyrir þennan bæ og um- hverfi hans samkomustað, sem lika mætti kalla menningarmið stöð, þar sem mjög margþætt starfsemi 'gæti farið fram. . . . leikhús, ópera, fundarhöld, samkomur, vörusýningar, fjöldasamkomur, bit, þjóðlaga- söngur og sinfóníur, markaður fyrir konumar, (bænda-)kaup höll fyrir karlana, íþróttir fyr- ir félög, leiki-r fyrir alla, stór- ar og smáar sýningar á öllu milli himins og jarðar, kabar- ett og brúðuleikhús, lýðfræðsla kenmsl'u- og framhaldsnámiskeið, þjóðdansar, samkvæmisdansar, skemmtidans eftir stuðinu á mannskapnum, bar, bjórknæpa kaiflfihús, greiðaisöiustaður fyr- ir drykki, smárétti og veizlur, tækifæri til að sýna sig og sjá aðra, til að rápa um, til að hangsa, til að maula bita úr eig in boxi og — síðast en ekki sízt — tii að horfa á bíó eða sjónvarp." Þessi upptalning gefur góða mynd af því hvaða augum van Klingeren og kumpánar hans líta menninguna.- Þeir ein- skorða sig ekki við þá þætti hennar, sem haldið er við af litlum áhugamannahópum, en kostaðir af almenningi eins og oft mætti segja um leikhús, óperur, hljómleikasali og jafn- vel 'kirkjur. Þeir líta svo á, að íbuirðarmiklir menningarkastal a-r í þeirri mynd, sem enn eru reistir víða um Evrópu, heyri til fortiðinni. Þessi lífvana steinbákn eru orðin að tákni sýndarmennsku í stað þess að veita eðlilega aðstöðu og svig rúm til félagslegs þroska. Hins vegar liggur arkitektunum sízt á hjarta að má einstaka þætti út úr heildarmyndirmi. 1 Aigór unni á að vera pláss fyrir allt og alla. Frainik vain Klingeren hefur ekki staðnað i framfaravið- leitni sinni. 1 Lelystad, u.þ.b. 200 þús. íbúa borg ekki ýkja Framh. á bls. 14 I bók þarf Iéttmeti að læðast með fávísum svo að hún falli í geð. Klaufinn reiðir hamar bátt, hittir eigin fingur þrátt. Ef þig meiðir arða í skó eitt þér huggun Ijær: Verra mnndi vera þó væru þær orðnar tvær. Máttug tækni mannsins herra mikil frainför til hins verrs. Fólk er gott, — fer vanans vegi. Vill aðra bæta, en sjálft sig eigi. Fjöldi. allur fólks er það, fæddur virðist til þess að gera engi’ öðru skil en því, sem það neyðist til. Þú ef takmark ekkert átt, aniiar í röð þú verður þrátt. Líðandi stund ef i)ú lifir ei, lifirðu annars? — O, nei, nei, nei! A aurum er sá Ijóður, sem aifar slæmur telst: Þeir eru ekki hjá þe.im, er þarfnast beirra helzt. Vanti í kollinn vitið, bað vitnast mjög greitf, því erfiðast er því að leyna, sem er ekki neitt. Auðunn Bragi Sveinsson sneri í rím.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.