Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Qupperneq 10
ísland í Miö- Evrópu Linderhof, ein af höllum Lúðvíks II. Richard Wagner-ieikhúsið í Bayreuth. „Tainnihauser und der Saing- erkrieg .ajuí Wartburg", hin mikla og rómantíska ópera Wagners, var fullgerð 1845 og flutt í Dresden sama ár. Hún á rætur í griskri goðafræði. „Lohengrin" var fullgerð 1848 og frumflutt í Weimar, tveimur árum siðar. Óperan var framlaig skáldsins til bylt- ingarinnar 1848. Efnið er sótt til rómantískrar fortíðar germ- anskrar menningar: háþýzks sagnabállks seim ortur er á mið- aldaþýzku á síðasta fjórðungi 13. aldar í Bæjem, eins og fyrr getur, og fjallar um „Svana- riddarann", sem hafði meiri áhrif á hirðir Bæjarakonung- anna en flest annað, eins og bezt má sjá á málverkum og veggskreytingum í höUum' þeirra, og gaf þeim jafnvel nöfn: Svanurinn er tákn engils sem Guð sendi til jarðar; sem sagt: enn goðsögulegar, róman- tískar forsendur og fyrirmynd- ir. Richard Wagner lauk við „Tristan und Isolde" 1859 og var óperan fyrst gefin út sama ár 3 Leipzig, frumsýnd í Miinch en 1865. Efniviður hennar er „Tristan und Isolde", sagnaljóð eða hirðkvæði eftir Gottfried von Strassburg, frá þvi um 1200, en frjálslega er með efn- ið farið, eins og oftast í óper- um Wagners. Reynsla Wagners leynir sér ekki í þessu verki. Sagnaljóðið forna var þýtt á nútima þýzku 1875, en Wagner hefur ekki éittazt illsikiljanLeg- an frumtexta, ef áhuginn var á annað borð fyrir hendi. Ljóða- bálkurinn, sem er um 20.000 lín ur, eða álíka langur og Nifl- ungaljóð, byggir á flökkusögu, líklega keltneskri að uppruna, en Tómas von Britanje fjallar einnig um þetta sama efni í sín um verkum. Hetjukvæði höfðu einnig verið ort á fornensku, eins og kunnugt er, og ætti að næ.gja að nefna „Bewulf", eða Bjólfskviðu, fornt enskt hetju- ljóð frá fy.rra hluta 8. aldar og fjallar m.a. um Hróðgar, Dana konung, Gota sem mjög koma við sögu germanskrar menning ar eins og kunnugt er, og svo auðvitað Bjólf. 1 þessum ljóða- flokki er germönsk heiðni ríkj- andi þáttur eins og í íslenzku hetj ukvæðunum. Ljóð Gottfried von Strass- burg er talið hátindur Ijóðlist- ar af þessu tagi, ásamt „Parzi- val“, hirðkvæði Woilfram von Eschenbach, einnig frá því um 1200. Eilhart von Oberge samdi einnig söguljóð um Tristan 1170—’80, „Tristran und Isalde", og hafði frönsk sagna ljóð að fyrirmynd, stíl sinum, rími og formi. Er þefcta eitt frægasta harmsögulegt ástar- ljóð miðalda — og kannski allra alda. 1 þessu ljóði koma fyrir tvær Isaidir, en ást Tristrans og þeirrar „réttu" Is- aldar bar fyrst ávöxt eftir dauða þeirra. Þetta Ijóð og fyr irmyndir þess virðast standa næst þvi ijóði um ást Tristans og Isoldar, sem alkunnugt er úr islenzkum ibókmenntum. „Die Meistersinger von Niimiberg", sem Wa.gner lauk við 1867, á rætur I sama jarð- vegi og önnur fyrmefnd verk hans. Veggmyndiir úr þessu vcirki prýða ekki sizt hallir Lúðviks II. Þar eru líka fyrir- ferðarmikil málverk úr „Parzi- val“ Wolframs von Eschen- bachs, sem var Dranki að ætt og uppruna, þ.e. Bæjari. Talið er að hann hafi kynnzt Walter von der Vogelweide, frægasta flökkuskáldi miðalda, 1204. Verka Vogelweides sér stað í íslenzkum nútímabókmenntum eins og kunnugt er: Ijóðræn fyndni, beizkt háð og .trúarleg lotning einkenna söngva hans. Wagner notaði efnið úr „Parzi val“ í samnefnda óperu sina „Parsifal", sem hann lauk 1882. Þetta sagnaljóð er góð lýsing á iriddaramenningu síns tíma, en sækir einnig efnivið i keltn eskar bókmenntir, austur- lenzka igoðafræði og kristna (Gral), en auðvitað víkur Wagner frá efni heimildanna eins og hans var vandi. Fyrst skýtur efni Parzivals rótum í frönskum miðaldabók- menntum, sbr. „Perceval" Chrestien de Troyes, sem var aðalheimild Wolframs von Esc- henbachs, sem kunni góð skil á frönskum riddaraskáldskap eins og „Chanson de igeste", enda lærður maður. Ljóðið fjállar um ferð Parzivals til Gralsburg, þar s,em hamn lieitar sér trausts og halds í kristnu umhverfi leyndardómsins mikia, Grals. Gral var sögð skálin sem Kristur notaði við kvöldmáltiðina og blóð hans rann i úr krosssárum hans. Eft ir margvísteg ævintýri, þjáning ar og þrautir finnur Parzival kristinni trú sinni fótfestu, þó auðvitað án Grals. Leyndardóm urinn er ekki ætlaður mennsk- um micmmuim, þótt ýmisir imyndi sér að þeir hafi hann í hendi sér. XXX Enn eru þessar sagnir upp- spretta nýrra verka eins og frá sögnin um Antúr kcmung, ®em kemur við sögu í leikriti John Ardens „The Island of the Mighty", sem hefur verið sýnt í Lundúnum undanfarið. Chauc- er, höfundur „Canterbury Tal- es“ frá seinni hluta 14. aldar, þekkti áreiðanlega til þessarar fornu ljóðlistar. Margar pers ónur hennar koma við sögu í Kantarabofgarljóðunum, sem fjalla um samtíma Chaucers, eins og kunnugt er. Chaucer var menntaður, fór bæði til Frakklands og ítalíu í erindum Bretakonungs, kynnti sér franskan og italskan skáld skaip og surnlt i „The Camter- bury Tales" eru ábrif frá „De- kamar.om:“ Boccaccios, sem hann kynntist, ásamt Petrairca, í It- alíuferð, en Italirnir voru eldri en Chaueer. Um þessi áhrif og kynningu er þó deilt. „Divina Komedia" Dantes hefur hann einnig þekkt. Kantaæaborigarljóðin mætti kalila enska „guðdómlega kóme diu“, þótt skáldið fari með les- anda sinn um hulda heima mannlegs breyzkleika, hræsni, ótta og lotningar, en ekki á þær slóðir, sem kölluðu skáld- gáfu Dantes á sinn fund. í Kantaraborgarlj óðinu er t.a.m. sagt um Atla Húnakon- unig: „Loke, Attila, ithe grete conquerour, Deyde in his sleep, with shame and dishonour, Bledinge ay at his nose in dironkenesse; A capitayn shoulde llive in sobrenesse... “ Og um Artúr konung: „In th'olde dayes of the king Arthour, Of wich that Britons speken grete honour...“ XXX I VI kafla „Nibelungenlied" er sagt frá því, að Gunther heyrir af fegurð Priinhilt (eða Brynhildair) á íslandi: „Wie Gunther gén íslande nách Prun ihiillt fui?,r.“ 1 VII k.a'ffla saima ljóðs, þ.e. Niflungaljóðs, er saigt frá för Gunthers og fé- laga hans iti-1 Isenstein, kastala Brynhildar á Islandi og „Wie Gunther Prúnhilte ,gewan.“ En „íslendingar" verja Brynhildi sína, jafnvel Siegfried fer er- indisleysu og verður að sækja liðslauka. I 418. erindi segir svo: „Dá mite giengen degene die Prúnhilde recken: dá úz IsOlamt, die truogen swert enhant.. “ Og í X. kafla ar m.a. sagt frá Prúnhilt (Brynhildi) og Krím- hildi og þar er þetta erindi: „Dá die von íslande unt ouch vori Nibelunigen si igáhten zuo dem lande dá mam des kúniges vriaind. . .“ (580) Og loks er talað um Bryn- hildi í 607. erindi, sem endar svo: „Dá heime in Islande sach“. Þamnig var ísland (rnafnið er ritað á ýmsan hátt) og menning þess vel þekkt með bæjerskum skáldum og öðrum mennta- mönnum í Evrópu á miðöldum. Island var eins konar ævin- týri, leyndardómur, land guða, elds og ísa, þar sem fegurðin er persónugerð í Brynhildi drottmngu .himnl fögru. íslenzk- ar fornbókmenntir hafa verið alkunnar í Evópu á dögum Ara fróða. Islenzkar konur hafa alla itíð verið betri helmingur þjóðarinn'ar, eins og kunnugt er, enda nutu þær meira freds is og sjálfstæðis en aðrar kon ur fyrr á öldum, t.a.m. forn- ’griskar kvenhetjur, eins og Grimur Thomsen bendir á í einni af ritgerðum sínum. Þarf ekki annað en benda á reisn þeirra kvenna sem koma við sagu í hetjukvæðum og Islend- inga sögum. Bergþóra var, svo að dæmi sé tekið, engin ambátt, heldur húsfreyja á sínu heim- ili, sjálfstæður einstaklingur sem réð húsum sínum, ekki síð- ur en aðnar konur þessara fomu sagna. XXX Þessi fomi arfur hefur hald- izt fram á vora daga. Á fyrstu norrænu hátiðinni, sem haldin var í Kristjaníu 1846, var m.a. sungið: „Yderst mod Narden" eftir A. Munch og þar stendur m.a. að frækom framtíðarinn- ar sé varðveitt á Islandi. Maður hneigist til að halda, að þetta séu ekki einungis orð- in tóm. XXX TvitU'gur að aldri skrifar Lúðvik II vini súnum Riohard Wagner: „Ó, hve tilgangslaus þessi heimur er. — Hve margt fólk er 'grimmt! Allt líf þess snýst um smámuni. Ó, ef aðeins þessi heimur væri að baki!“ Og ævintýrakonungurinn fjarlæg- ist mennina æ meir, hverfur inn í hallir drauma sinna. Sum ir segja inn i veröld síns sjúka heiia. Aðrir: hann flýði inn í fangelsi drauma sinna vegna ástar á Elísabetu, 'keisara- drottninigu í Austurríki. Hann var trúlofaður Soffíu, yngri systur hennar 1867, en hætti við giftingu á síðustu stundu sama ár. Eins og í ævintýri. Sumir segja að hann hafi ver- ið kynvi'lltur, þótt engar sögur fari af þvi. Á slíkt skyldi eng- inn minnast við Bæjara; og að segja við Bæjara: að Lúðvík konungur hafi verið „verrúkt" stappar nærri stríðsyfirlýs- inigu. Lúðvík sagði eitt sinn: „Mér virðist að í iífinu sé aðeins rúm fyrir eina tegund af fólki. Sá, sem vill verða eitthvað, verður að vera ruddalegur, grófur og óáreiðanlegur. Sá sem er öðru- vísi, er kallaðuæ sérvitringur af vinum og óvinum." Eftir að læknir hafði verið sendur á fund hans af fjandsamlegum nirflum .ríkisráðsins, sem timdu aldrei að setja eitt mark í list- ir og menningu, en voru þeim mun fúsari að ausa út fé í her ferðir og manndráp, til að segja honum frá „veikindum" hans, saigði konungur m.a. að mikið af þvi, sem kallað væri 'geðveiki, væri of mikil við- kvæmni: „. . . oft hefur verið iMigirn'islega ymt að því og jafnvel opinberlega -tilkynnt, að ég sé fífl. Kamnski er ég það, en ©faistt þó ium það. . . . Geðveikur maður er venjulega eina persónan, sem sér ekki brjálæði sitt. . . Ef éig væri ijóð skáld, 'gæti ég kannski uppskor ið lof með því að segja 'allt í ljóðum. En gáfa tjáningarinnar var mér ekki gefin. Og þess vegna verð ég að þola, að það sé hlegið að mér, að ég sé hæddur og rægður. Ég er kall- aður fífl. Mun Guð kalla mig fífi, þegar ég verð kallaður fyr ir hann?“ En vel að merkja: það er einnig hlegið að Ijóðskáldum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.