Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1973, Blaðsíða 12
LITAZT UM
Á INNLENDUM
HÚSGAGNA-
MARKAÐI
ENN göngriun við á vit hús-
gagnaframleiðenda og í þetta
sinn verða fyrir valinu Hús-
gagnaverzlunin Valhúsgögn og
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur.
Eigendur Valhúsgagna eru
þeir Árni L. Jónsson og Har-
aldur Sigurgeirsson. Árni verð-
ur fyrir svörum, þegar við inn-
um hann eftir nýjungum í
f ramleiðslunni:
„Eiginlega má segja, að við
höfum sérhæft okkur í smíði
sófasetta. Við erum með 11
Valhúsgrögrn: Kölnar-sófasett með
pluss-áklæði. Armar eru skiptan-
leeir og púðar lausir i baki og
setu. 3ja sæta sófi — 2ja sæta sófi
ogr stóll. Verð kr. 129.000.00.
manns í vinnu, bæði í sambandi
vi ðverziunina og framleiðsluna
og allt eru það fagmenn á sínu
sviði. Framleiðslu okkar fylgir
ábyrgðarskirteini frá Hús-
gagnasmíðameistarafél. Reykja
víkur og Félagi húsgagrnabóistr
ara Reykjavíkur og er það m.a.
trygging fyrir því að viður sá,
sem smiðað er úr, sé vel þurr.
Við seljum mest okar eigin
framleiðslu en þó alltaf svolítið
af innfluttum húsgögnum.
„Verðið þið nokkuð varir við
breytingar varðandi smekk
fólks við húsgagnaval?“
„Okkur finnst fólk kaupa yf-
irleitt vandaðri húsgögn og það
hefur meira auga fyrir því,
hvað sé góð framleiðsla. Og
þyngri húsgögn virðast vinsælii
nú en áður.
Einnig leggur fólk mikið upp
úr praktísku hliðinni, t.d. að
góð nýting komi á áklæði, að
armar og púðar séu snúanlegir
Við framleiðum töluvert af
ákveðinni gerð húsgagna með
leðuráklæði og ef dæma má eft-
ir því hve stutt þau stoppa í
verzluninni, eiga þau vaxandi
vinsældum að fagna,“ sagði
Árni að lokum.
Húsgagnaverzlun Reykjavík-
ur var stofnuð árið 1930 og er
því ein elzta húsgagnaverzlun-
in hér í borg. Hún er nú til
húsa í Brautarholti 2 og núver-
and'. eigendur hennar eru þeir
Guflmundur Jóhannsson og
Gísli Ásmundsson. Fyrir hálfu
ári stækkuðu þeir við sig hús-
næðið og er verzlunin nú á
tveimur hæðum.
„Við leggjum áherzlu á að
fylgjast með nýjungum," segir
Guðmundur, „bæði á innlend-
um og erlendum vettvangi og
reynum að hafa húsgögn á boð-
stólnum við sem flestra hæfi.
Hvað smekk fólks við hús-
gagnaval varðar, finnst okkur
hann hafa breytzt mikið á síð-
ustu árum. Með vaxandi úrvali
gerir fólk meiri kröfur til gæða
og kaupir jafnvel dýrari hús-
ffögn.
Við höfum orðið varir við að
vinsældir furuhúsgagna hafa
sífellt aukizt og Ieggjum því
áherzlu á að vera ávallt með
furu-sófasett og furu-borðstofu
húsgögn, því nú virðast furu-
húsgögn, sem áður voru nær
eingöngu notuð í sumarbústaði,
vera líka vinsæl á heimilum.“
Valhúseögn: — Spánsk-
ur ruggustóll. Grindin
er úr harðviði og
áklæði úr leðri, rauðu
eða brúnu. Verð kr.
36.000.00. Sama gerð er
einnig til sem hvíldar-
stóll (ekki ruggustóll)
með samsvarandi
skemli. Verð á honum
er það sama.
Húsgagnaverzlun Bcykjavikur: — Myndin að neðan: Hjónarúm,
hálfgert „ömmurúm“, sem nýtur vaxandi vinsælda. l»að er rennt
úr brenni — bæsað og lakkað. Verð með náttborðum og „spring“-
dýnu kr. 39.800.00.
mm
Húsgagnaverzlun Reykjavikur: — Uorðstofuhúsgögn úr „massifri"-íuru S Sslenzk-norskum bændastil. Verð
á. borði og fjórum stðium kr. 31.550.00. Stakur stóll kostar kr. 4.900.00 en borðið Icr. 11.950.00.