Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 3
Þetta er síðasta rit- smíð Bjarna Guð- mundssonar, fyrrum blaðafulltrúa utanrík- isráðuneytis. Hún fjallar um þátt úr æskuminningum hans í tilefni af láti aldraðr- ar vinkonu móður hans og fjölskyldu. Bjarni lauk greininni síðla dags 24. jan 1975, en lézt aðfararnótt þriðjudags 28. janú- ar. umst. En hendurnar stórar ög beinaberar, voru jafnhlýjar viö- komu og þegar hann lyfti mér á bak honum Skjóna. Stundum leyfði hann mér lika að sitja fyrir framan sig á hnakkpútunni, og stundum teymdi hann undir mér. Þá var til alsæll drengur úr aust- urbænum. Benni andaðist rétt fyrir jólin 1917, öllum harmdauði. Þá höfðu þau Imba búið saman í sjö ár og eignast dæturnar Sigríði og Guð- rúnu, auk Óla sem ég nefndi áður. Margir vinir hafa sýnt mér þá vinsemd og bjartsýni að skora á mig að skrifa einhverjar endur- minningar. Nú, hér er þá dálítið brot, sem ég gæti með nokkrum sannleika nefnt „frá „Hlíð- arhúsum til Bjarmalands" og stælt þar með kunna bók eftir horfinn vin og starfsbróður, nágranna Ölafs- húss, Hendrik Ottósson. En þetta verður styttri saga um sömu Hlíð- arhús en annað bjarmaland. Bjarminn stafar af olíulömpum og gullbrúnu rökkri, þar sem ljós- ið náði naumast til. Það var rauð- ur lampahjálmur í anddyrinu yfir stiganum og húsið var á einhvern hátt stærra að innan en utan og miklu varmara en önnur hús. Eg var ástfanginn af Kristínu, yngstu systurinni, sem kunni ekki einungis að leika á gítar og píanó, heldur líka latínu og frönsku. Það var samt María, sú næst-elzta, sem ég átti aó heita trúlofaður, að minnsta kosti að hennar sögn. En ég sagði henni síðar upp, þegar ég komst að því, að hún var opinber- lega trúlofuó jafnaldra sínum en ekki mínum. Þrátt fyrir það var alltaf ákaflega hlýtt á milli okkar fyrstu unnustu minnar. Soffía var ákaflega hress og glaðvær og þótti afburðasölumaóur hjá Jónatani á Laugaveginum. Hún giftist siðar Kristni Sveinssyni húsgagna- bólstrara. Bjuggu þau lengi í Ólafshúsi þar sem Kristinn hafði einnig vinnustofu, og eignuðust son, Egil, og dóttur, Guðrúnu. Soffia var skörulega máli farin, gaf sig talsvert að stjórnmálum og var í mörg ár í stjórn Hvatar. Emilíu (Millu) missti ég snemma sjónar á til annars en að heils- ast ljúflega á götu. Hún var hlé- dræg, þokkafull kona, giftist ekki. Og svo var það öðlingurinn hann Þorkell (Tolli)/ sem rak verk- stæðið áfram til dauðadags þó að hann yrði af skiljanlegum ástæð- um að hætta að smíða hnakka og söðla en snúa sér að annarri leð- uriðju. Hann kvæntist Hansínu Hansdóttur, sem lifir hann, og áttu þau soninn Gunnar. Ég skrifaði nokkrar línur um Ingibjörgu mina þegar hún kvaddi síðust sinna systkina. Þótti mér það heldur fátæklegt skrif og mestmegnis um sjálfan mig, svo sem títt er um eftirmæli. Réðst ég þá í að skrifa þetta „of ið sama far“, koma grímulaust fram sem sagnamaður og minnast þá ekki síður foreldranna og systkin- anna. Vona ég, að það hafi komið skýrt fram, hverjar mætur ég hafði á þessu svipmikla fólki, og ekki þykir mér skaða, að yngstu afkomendurnir fræðist ögn um þann jarðveg menningar og þroska, sem þau eru vaxin úr. Framhald á bls. 15 Ingibjörg Ólafsdóttir á sjötugsaldri. Erik Knudsen KIKIR GALILEOS Sagt, er, að kenningar Galileós yllu fólki þvílíkum óróa, að sumir veigruðu sér við að horfa i sjón- auka hans af ótta við að að sjá i honum eitthvað það, sem koll- varpaði fernum kenningum kirkju og heimspeki. Við vitum einnig, að Úrban páfi heiðraði hinn mikla eðlisfræðing með fangeisisvist og bækur hans voru settar á bann- lista, eins og bækur allra annarra, sem héldu fram sólmiðjukenning- unni. Loks er svo athyglisverð umsögn um málið; sú yfirlýsing Grimbergers kristmunks, að „ef Galílei hefði kunnað að vinna sér samúð Jesúíta hefði hann getað skrifað um hvað sem var, og einnig snúningur jarðar". Við sem nú erum uppi höfum ágæt skilyrði til þess að skilja og lifa þennan sígilda harmleik. Við þekkjum fullvel leikarana: Grim- berger hinn herkæna, Úrban páfa með ofurmannlega ábyrgð sina og ógurlegt vald, Galilei trúð og hetju sannleiksástarinnar — og alla hina, þetta litla og lafhrædda hvunndagsfólk. — Horfizt I augu við raunveru- leikann! hrópum við hvert til ann- ars; en við óttumst raunveruleik- ann, óttumst, að hann muni koll- varpa grundvelli okkar, trúarleg- um, siðferðilegum og pólitiskum trúargreinum okkar, siðum okkar og þægindum. Þess vegna skerð- um við veruleikann, setjum tak- mörk — hingað og ekki lengra! Við afsölum okkur hinum og þessum sjónarhornum til þess að við megum halda fótfestu, og við hummum fram af okkur margar spurningar til þess að við getum haft nokkurt frelsi i gjörðum okk- ar. í stuttu máli sagt reynum við að halda jafnvægi, verða bæði við kröfum hins ytri og hins innri veruleika. Líf er breyting, hæfileikinn til þroska, til þess að uppgötva ný verðmæti og sía burt það sem gamalt er og komið úr gagni. Þvi fjörugri sem þessi breyting er, þeim mun meiri verður orkufram- leiðslan. Andlegt og pólitiskt ástand okkar má skoða frá mörgum ólik- um sjónarhornum; en mér finnst ég alltaf koma aftur að þessu: við erum þreytt, okkur brestur afl. Þess vegna hengjum við okkur i hið kyrrstæða, i kennisetningar og stofnanir, sem allt líf er fjarað úr, eða er að fjara úr. Við höldum dauðahaldi í það, sem er. Við lokum. Steingerum. Má ég reyna að færa fram dæmi. í nóvember árið 1949 var ég i Suður-Þýzkalandi í nokkrar vikúr ásamt nokkrum blaða- mönnum og heimsótti flótta- mannabúðir, Giessen, Dachau, Furth im Walde og fleiri. Skömmu eftir heimkomu heim- sótti mig kunningi minn, komm- únisti, og það fór svo, eins og áður, að talið barst að pólitík. Ég rakti honum viðtöl, sem ég hafði átt viðaustur-þýzka og tékkneska flóttamenn. Vitnisburðir þeirra voru eftirtakanlega samhljóða — og þeir voru yfirþyrmandi. Viðbrögð hans voru til fyrir- myndar. Frásagnir minar voru lygi eða gróf afbökun — ég var spilltur fyrirfram, auðveld bráð illgjörnum áróðri — ég sá aðeins það, sem ég vildi sjá, og heyrði aðeins það, sem ég vildi heyra. Varnarkerfið verkaði. Og það verkar ekki aðeins I kommúnist- um. Hversu oft er ekki gagnrýni á „hin lýðfrjálsu lönd" visað á bug sem „raúðum" áróðri, visvitandi eða ómeðvitað. Sagt er, að menn gangi erinda Stalins, þegar þeir ráðast á kynþáttaofsóknir, bandariska utanrikisstefnu, franska og enska heimsvalda- stefnu, húsnæðisleysi o.s.frv. í einfeldni okkar getum við ósköp vel hlegið að þeim, sem ekki þorðu að horfa í kiki Galileis. Fjöllin á tunglinu, hringur Satúrnusar og sólbelttirnir — var einhver ástæða til að óttast þau! En við erum bara hrædd sjálf, og hræðsla okkar við kíkinn snýst einnig um nýjan, framandi veru- leika, svo yfirþyrmandi og knýj- andi, að við verðum að endur- skoða allt og byrja á nýjan leik. Þorum við það? Höfum við mátt til þess að breyta til? Við drögum það i efa, og þess vegna streit- umst viðgegn þeim veruleik, sem er utan, fyrir aftan, eða framan okkar eigin veruleika. Við neitum að lita i kikinn. og erum jafnvel enn slungnari — neitum að viðurkenna kíkinn. Hann er rang- ur, hér er áróður á ferðinni. Þessi huglægni er skelfileg. Kapitalistinn lýgur af þvi hann er kapitalisti. Kommúnistinn lýgur af því hann er kommúnisti. Heið- ur sé sannleikanum, en hann þrifst bezt i gróðurhúsinu eða setustofunni. Úti á vígvellinum, meðal manna, reynist herkænsk- an betur. „Ef Galíleí hefði kunnað að vinna sér samúð jesúita hefði hann getað skrifað um hvað sem var og einnig snúning jarðar". Svo mælti faðir Grimberger. Þannig mæla lærisveinar hans bæði hér og þar: við höfum ekk- ert á móti þvi, að þú berir fram gagnrýni, en þú verður að kunna að bera hana fram á réttan hátt. Gleymdu ekki helgisiðunum! Fyrst friðþægingarfórn til guð- anna, þá sveiga á grafir dauðra, þá innvortis og útvortis hreinsun, loks tiu djúpar hnébeygjur — og þá verðurðu vonandi búinn að gleyma þvi, sem þú hafðir I öyggju. Jesúitinn er útsmoginn. Rök- semdum hans verður ekki vísað á bug oraðlaust. Gagnrýni er örð- ugt mál i þessum örðuga heimi. Ekki má hnika römmunum; hver einstaklingur verður að þekkja sinn stað í hinni miklu heild. Mannskeppnan er merkileg. Majór trúarinnar er fyrr en varir orðinn hershöfðingi trúleysisins, og hinn eigingjarni heimsborgari endar ævi sína I formannssæti landeigendafélagsins. Öll erum við grunsamleg, erum öll haldin undirhyggju, gjörðir okkar stjórn- ast af ástæðum, sem við getum ekki skýrt til fulls. Enginn meinar það, sem hann segir, a.m.k. aldrei til fulla, — við meinum næstum þvi alltaf eitthvað ann- að. Frið! (frið fyrir mig) — Fram- tið mannkynsins! (flokks mins). Á hverju leiti eru gildrur, leyndar fallgryfjur, sprengjubelti. Þvi striðinu linnir ekki. Og enginn situr hjá, ekki einu sinni Galíleí hinn hlutlausi með sannleiksást- ina og kikinn sinn. Hinn herkæni segir: þið verðið að velja! En valið er okkar. Ef ennþá er á nokkru völ skul- um við kjósa jafnvægið. Við skul- um kjósa að lifa lifandi. Við látum hið skamma sjónarmið ekki þrúga okkur, köstum ekki trúnni á umbreytinguna, neitum að skerða frekar þann skika veru- leiks, sem enn er eftir. Það er margt nú á dögum, sem við verð- Framhald á bls. 16

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.