Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 12
Um frumstæðan Síberíubónda spunnust helgisagn- ir og þjóðsögur. Sumir litu á hann sem dýrling — aðrir sem sjálfan djöfulinn. En Rasputin var naum- ast annað en maður, sem við hjálp hjátrúar og móðursýki notfærði sér á ruddalegan hátt vald sitt yfir rússnesku keisarafjölskyldunni. Morð eru ærið tíð á okkar dög- um. Blöðin fræða okkur um við- bjóðslega atburði víðsvegar um heim. Okkur hryllir við í svip, leggjum blöðin til hliðar og gleymum öllu ofurfljótt. Þau eru fá fórnarlömbin, sem ná því, að þeirra sé minnzt nema nokkra daga. En einstök morð verða þó si- stæð, og af því tagi er morðið, sem framið var f Sankti Pétursborg (Leningrad) 17. desember 1916 — í miðju fyrra heimsstrfði. Það vakti gífurlega athygli, þó að sá, sem myrtur var, væri hvorki keis- ari, konungur né hershöfðingi. Hann var dáður og hataður. Nafn hans var Rasputin. Sjaldan hefur nokkur maður talað svo ákaflega til ímyndunar- afls, hjátrúar og hræðilegrar nýj- ungagirni manna sem þessi Síber- fubóndi. Ekki er vitað svo mikið um ævi hans, allt frá þvf hann kom í heiminn 1871 og þar til hann birtist í Ijósi sögunnar. Sum- ir segja, að faðir hans hafi verið venjulegur bóndi, en aðrir halda því fram, að hann hafi verið drykkfelldur hestaþjófur, og að nafnið Rsputin sé komið af ras- putnik, sem þýðir lastafullur, saurlífur — viðurnefni, er átti það eftir að ná heimsfrægð. Allt frá bernsku bjó Rasputin yfir vissri hneigð til dulhyggju. Þegar hann var fjórtán ára á hann að hafa heyrt „röddina" í fyrsta skipti, en það var fyrir- brigði, sem var engan veginn óvenulegt meðal hjátrúarfullra bænda. Hann dróst mjög að alls- konar sértrúarflokkum, sem rúss- nesk yfirvöld litu óhýru auga. Einkum var það einn sértrúar- flokkur, sem hin heilaga, orþóð oxa kirkja talditilguðlastaraog var því stranglega bannaður og ofsóttur. Hann var kallaður klistij á rússnesku. Félagsmenn lömdu sjálfa sig með svipum og voru kenndir við margskonar ólifnað. Þorpsprestinum fannst það tor- tryggilegt, að Rasputin hafði látið byggja gluggalaust smáhús í hljóð látu horni í garðinum sínum. Það líktist baðstofu. Þegar dimmdi, fóru þar fram leynifundir. Auk þess fór Rasputin oft í heimsóknir til Abalakklausturs, sem var út- legðarstaður fyrir menn, sem voru af ýmsum sértrúarflokkum, og það var á þessum stað, sem hann án efa stofnaði til kunnings- skapar, er síðar kom honum að góðu haldi. En um sama leyti og þorpsprest- urinn fór að fylgjast náið með framferði Rasputins, lét „röddin“ aftur til sín heyra — tuttugu ár- um eftir fyrstu opinberunina — og í þetta skipti fylgdi Rasputin kallinu, yfirgaf börn og buru og lagði upp í pílagrímsferð. Hann komst alla leið til Péturs- borgar. Þar vakti hann athygli sem staretch, heilagur maður, sem ræddi við fólk um trúarleg efni. 1 Abalak hafði hann kynnzt stórfurstafrú einni og vakið áhuga hennar og skriftafaðir frú- arinnar kom honum á framfæri hjá Feofan biskupi. Rasputin var fáfróður og næst- um því ólæs. En á greind hans skorti ekki, og hún var studd met- orðagirnd, lævfsi og drottnunar- sýki. Kænskan kenndi honum að fara að öllu með gát, og honum tókst að sannfæra hinn góðviljaða og guðhrædda biskup, Feofan, að hann væri í raun og veru heilagur maður, eins og hann lézt vera. Feofan var Rasputin þægilegt tæki, þvf að auk þess sem hann var biskup, var hann skriftafaðir hátignanna, Nikolásar II og Alex- öndru Feoðorownu. Þessir tveir virðulegu menn fóru nú að styðja hvor annan — Feofan biskup í góðum tilgangi, og hann iðraðist sárlega síðar, hve dómgreind hans hafði farið villt í mati á þessum röska staretch. — Ástæóunnar að ævintýralegum frama Rasþutins næstu árin er sumpart að Ieita í þeirri þjóðfé- lagsskipan, sem komin var að fót- um fram, en að öðru leyti í dálæti Alexöndru Feoðorownu drottn- ingar á véfréttum, spádómum og „dýrlingum" beggja kynja. Rodzjanko, sem árum saman var forseti Dúmunnar, rússneksa þjóðþingsins, og hafði því per- sónuleg kynni af þeim, sem koma við þessa sögu, ritar svo í endur- minningum sínum: „Það var al- mennt viðurkennt, að drottningin hafði allt frá æsku hneigzt að dulrænni lífsskoðun. Þessi hneigð ágerðist með árum og snerist á Rasputinárunum upp í trúarlega vitfirringu, mér liggur við að segja trúarlegan eldmóð. Hún birtist í trú á spádóma, er blandn- ir voru mikilli hjátrú. Sálarástand drottningarinnar olli þeim, er næst henni stóðu, miklum áhyggjum. Andlega stétt- in óttaðist, að þetta mundi verða hinni rétttrúuðu, rússnesku kirkju til tjóns, og veraldleg yfir- völd höfðu slæman bifur á, að erlendu „spámennirnir", sem fengu aðgang að hirðinni og náðu trúnaði drottningarinnar, hefðu í rauninni annað bak við eyrað heiman frá sér. Hvað þennan grun snerti gat hann ekki verið settur f samband við Rasputin. Feofan biskup var sannfærður um, að hann væri sendur af vinveittum æðri öflum til þess að vfkja til hliðar tor- tryggilegum heimilisspámönnum drottningarinnar. Hann hélt líka, að þessi látlausi, guðhræddi mað- ur alþýðunnar réði yfir krafti til að hafa áhrif á drottninguna með sinni frumstæðu, náttúrlegu heimsskoðun og mundi lækna með því sálsýki hennar. Þessvegna var Rasputin komið á framfæri við hirðina sem staretsch og þjóni kirkjunnar. Hann ræddi við drottninguna um trúarleg efni og bað með henni. Alexandra Feoðorowna vonaði, að þessi heilagi maður mundi fyrir kraft bænarinnar hafa svo sterk áhrif, að henni yrði unnt að ala Rússlandi ríkiserfingja. En fram til þessa hafði hún aðeins alið dætur. Til að byrja með var Rasputin mjög varkár og kom fram sem auðmjúkur sonur rétttrúnaðar-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.