Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1975, Blaðsíða 4
Nú sést Sigrlður Ragna ekki lengur á sjónvarpsskerminum, enda nóg að gera við þennan einarðlega unga mann, son þeirra hjóna, sem hún heldur á. Að neðan er Sigríður Ragna við heimilisstörf. FÆR ÁKVEÐIÐ KAUP FYRIR HEIMILIS- 1 Guðrún Egilsson ræðir við Sigríði Rögnu Sigurðardóttur sem landsmenn þekkja af sjónvarps- skerminum og nú er húsmóðir í Skerjafirði — Ég hef nú heldur stutta reynslu sem heimakona, bara tæpt ár. En þaó er mjög góð og skemmtileg reynsla, og mig lang- ar ekki vitund út að vinna aftur, a.m.k. ekki í bráð, — sagði Sigrfð- ur Ragna Sigurðardóttir f viðtali við Lesbókina. Hún var um langt skeið sjónvarpsþulur, en hafði kennslu að aðalstarfi, þar til hún tók að helga heimilinu alla krafta sfna. Hún er gift Hákoni Ölafs- syni verkfræðingi, og eiga þau cina dóttur, Kristfnu Mörthu, tæpra tveggja ára. — Mér fannst alveg sjálfsagt að vinna úti meðan við vorum barn- laus, — heldur hún áfram, — og eftir aðdóttirin fæddist, þótti mér ástæðulaust að hætta, enda hafði ég mjög góða gæzlu fyrir hana. En þetta var erfiður timi. Eg var allt- af á hlaupum, sá draslið hrúgast upp á heimilinu og hafði ekki tíma til að laga til, og mér fannst ég heldur ekki geta sinnt starfinu eins og áður. Allt sem ég gerði fannst mér hálfkák, og ég var oft þreytt, en verst þötti mér að geta ekki verið meira með barninu, sem ég hafði allan hugann við. Það lá þá beint við, að ég hætti að kenna, enda hrukku tekjur Há- konar alveg til að framfleyta heimilinu. Og ég hef setið heima frá þvi i fyrravor, alsæl með lifið og tilveruna, og hvort sem nokkur trúir þvi, hef ég meira en nóg að gera með þetta litla heimili. Ef ekkert sérstakt kallar að þá finn ég mér bara eitthvað skemmtilegt til að gera. fer i göngutúra með barnið, lit í góða bók, sauma eða prjóna, eða hvað sem mér dettur i hug. Ég ræð mínum vinnutima, sjálf og get lífgað upp á heimilis- verkin með svo ótal mörgu, sem ég hef gaman af. — Þér finnst þú ekki verða neitt andlaus á því að sitja heima yfir einu barni? — Ég held, að þau störf sem maður getur sótt anda í, séu ákaf- lega fá, því að flest verða þau vélræn og tilbreytingalaus, þegar fram i sækir. Kennsla er áreiðan- lega rneð lifrænni störfum, en bar er samt talsverð hætta á, að maður festist i sömu skorðum. Sumum virðist falla það bezt að vinna vélræn störf, en ég er ekki þannig gerð, og það er einmitt kosturinn við heimilisstörf og barnauppeldi, að þau bjóða upp á mikla tilbreyt- ingu og jafnvel skemmtun. Ef maður er andríkur á annað borð, getur það ekki sízt notið sin heima, þar sem maður er sjálfs sins herra. Ég efast hins vegar um, að það auki mjög andriki að vinna i búð eða skrifstofu, Nei, nei.mér finnst ég alls ekkert and- laus, og ef mig vantar félagsskap, þá fer ég bara og heimsæki vin- konur mínar. — Eru þær ekki allar úti að vinna? — Sumar, og aðrar hafa brugð- ið sér í Háskólann. Það er eigin- lega það eina, sem gæti freistað mín að svo stöddu, og það getur vel verið að ég láti freistast, ef það kemur ekki of mikið niður á heimilinu. Öllum er nauðsynlegt að bæta við sig þekkingu, og slikt er alveg kjörið fyrir húsmæður, svo framarlega sem þær geta sam- ræmt það heimilisstörfunum. En við megum ekki vera svo eigin- gjarnar og sjálfselskar að láta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.