Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Síða 4
Meðan vi8 hér á Suðurlandi biðum hverja vikuna af annarri i
þeirri von að sólin sæist, leituðu Evrópubúar á baðstrendur til
þess að fá ögn af hressandi svala. Á Frakklandsströnd
Miðjarðarhafsins var haldin rokkhátfð með tilheyrandi frjáls-
lyndi i klæðaburði sem og öðru og eru meðfylgjandi myndir
þaðan.
Fullkoinið frelsi I klæðaburði er grundvallarforsenda þess a8 hægt sé að
halda sæmilega vel heppnaða popphátlS. Þar voru sumir kappklæddir
þrátt fyrir hitann og sólskinið, en aðrir léttklæddir eins og stúlkan hér á
myndinni.
Meðal hippanna, sem sóttu hátlðina I Castellet, voru Citroén-braggar vinsæl farartæki. Á staðnum var þeim
breytt I hótelherbergi — að visu ekki með baði. Og sé maður leggjalangur, er ekki annað en fjarlægja
afturrúðuna og láta lappirnar lafa út.
SUMARIÐ
Meðan regnskýin lógðu leið sina yfir Island I sumar. var haldin svonefnd Jass-rokkhátið á þeim stað á
Miðjarðarhafsströnd Frakklands. sem heitir Castellet. Michaél Lang er maður nefndur og hafði hann á sinum
tlma staðið fyrir hinni frægu hippahátlð, sem kennd er við Woodstock. Nú átti að endurtaka allt ballið og stóð
mikið til: Nýtt „sánd", sagði Lang. uppsuða úr rokki hvita mannsins og dansmúsik svörtu Afriku. Engum sögum
fer af þvi, hvort það lukkaðist. En þarna var mikil stemmning þótt aðeins kæmu 35 þúsund hippar af þeim 1 00
þúsundum, sem Lang vonaðist eftir. Og á sama hátt og Woodstock, var allt saman fest á marga kilómetra af
kvikmyndafilmum.
Hvar sefur maður á popphátið? Svar: Þar sem maður lognast útaf.
hvort heldur það er inni i tjaldi eða bara á mótorhjólinu sinu. Eins og
kunnugt er, verða mótorhjólamenn að vera mjög leðurklæddir og geta
varla leyft sér þann munað að f ækka fötum.