Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 13
Eftir Willa Petchek ók hún honum yfir þver Bandaríkin, en hann hripaði bókina niður á leiðinni Endrum og eins stönzuðu þau og veiddu fiðrildi. Það er til marks um það hve mikil hjálp Nabókoff er að konu sinni, að hann gefur henni þennan vitnisburð í skáldsög- unni ,,Ada", sem kom út árið 1 962: „Til eru þeir, sem geta brotið saman vegakort En þá á ekki við um höfund þessarar bókar"; > Nabókoff hjónin halda martreiðslumann og borða ekki niðri í matsal hótelsins heldur uppi í íbúð sinni. Þau eru heima við mestan hluta árs og fara einungis við og við í fiðrildaveiðar. Nabókoff kvaðst una sér bezt i hótelum og leiguíbúðum. Hann hefur aldrei eignazt hús. ,,Það hefði orðið að vera nákvæm eftirmynd bernskuheimilis míns", segir hann. ,,Minna hefði ekki dugað. Ég léti mér ekki nægja hús, sem líktist því bara." Nabókoff rekur ættir sinar til stórmenna. Sagð- ist hann geta rakið þær allt til hellisbúans, sem fyrstur tók upp á því að mála dýramyndir. Síðan taldi hann upp ta'rtaraprins og nokkra þýzka baróna í kaupbæti. Sjálfur fæddist Mabókoff í Sankti Pétursborg árið 1899 og ólst upp i Rúss- landi fram að byltingu. í hinum hugstæðu endur- minningum sínum, „Speak, Memory", segir hann m.a. frá bernskuheimili sínu, stóru „bleiku granít- húsi, með veggmyndum og margskonar skrauti öðru", og ennfremur „sumarbústað, þar sem var 50 manna þjónustulið og ég gat farið minu fram i einu og öllu". Foreldrar Nabókoffs voru tignar- menn, gáfað og auðugt fólk. Faðir hans var mikils metinn afbrotafræðingur og stjórnmálamaður. Hann dáði Breta og brezka siði mjög og hélt brezkar barnfóstrur. Nabókoff varð enda læs á ensku fyrr en rússnesku. Hann byrjaði snemma að fást við yrkingar. Móðir hans hvatti hann til skáldskapar og kenndi honum einnig frönsku. „Ég var fullkomlega eðlilegt barn, mælt á þrjár þjóð- tungur", segir Nabókoff. Kennara hafði hann og, sem kenndu honum hnefaleik og tennis. En skemmtilegast þótti honum að eltast við fiðrildi. Á fiðrildaveiðunum lærðist honum að hafa má „óhagnýtt gaman" af náttúrunni og gamanið í bókum hans er líka alveg „óhagnýtt". í augum Nabókoffs eru bæði skriftirnar og fiðrildaveiðarnar flóknir og heillandi leikir, nokkurs konar galdrar, ef svo má að orði komast. „Þetta er algleymi", segir hann einhvers staðar um það, er hann stendur úti á víðavangi og sjaldséð fiðrildi flögra i kringum hann. „Og handan algleymisins er eitt- hvað, sem erfitt er að útskýra; það er líkt og skammvinnt tóm, sem gleypir allt, sem ég ann. Ég finn til einingar með sól og steinum. Til fagnaðar og þakklætis í garð allra, sem hlut eiga að máli, í garð mannlegra örlaga eða mildra anda, sem gera lánsömum, dauðlegum manni til geðs." Nabókoff var fróðleiksfús með afbrigðum og varð hin mesta fróðleiksnáma, er hann óx úr grasi. „Kennarar mínir kvörtuðu yfir þvi, að ég léti fullmikið bera á fróðleik mínum og einkum, að ég sletti enskum og frönskum orðatiltækjum i rúss- neskum stílum. En þessi erlendu orðatiltæki voru mér töm frá barnæsku. Fleira vakti reiði manna en þessar slettur. Ég fór t.d í skólann og úr honum í einkabíl. Hinir strákarnir voru þægir, litlir lýðræð- issinnar. Einu sinni ofbauð einum kennaranum og hann spurði mig, hvort ég gæti nú ekki að minnsta kosti farið úr bílnum svona tveimur eða þremur húslengdum frá skólanum, svo að skóla- bræður minir þyrftu ekki að horfa á einkennis- klæddan bílstjórann lyfta fyrir mér húfunni" Nabókoff erfði jafnvirði tveggja milljóna dollara eftir frænda sinn einn, en varð að láta þann fjársjóð eftir, þegar hann og fjölskylda hans flúðu land í byltingunni. Þau höfðu fátt með sér úr landi nema þá skyldugu skjóðu með gimsteinum, sem er i öllum slikum sögum. En „fornar deilur minar við sovézku einræðisherrana eiga ekkert skylt við þetta", ritar hann á einum stað. „Ég fyrirlit þá útlaga, sem leggja hatur á rauðliða af þvi, að þeir „stálu" fjármunum þeirra og landareignum. Sjálf- ur sakna ég ekki gamalla peningaseðla. Það er glötuð barnæskan, sem ég sakna. Sá söknuður er í huga mér líkt og ofvöxtur i likamshluta". Nabókoff hefur orðið mikið úr endurminning- unni. Enda segir hann á einum stað, að allir menn eigi heima í fortiðinni. Ég spurði, hvort honum litist illa á framtiðina og nútiðina. Nabókoff hugs- aði sig um andartak, en svaraði svo: „Það, sem við köllum nútíð er ekkert annað en hvítfextur öldu- faldurinn á sívaxandi fortíð og það, sem við nefnum framtíð er aðeins yfirvofandi, óhlutstæð hugmynd, sem verður hlutstæð á hverju andar- taki Ég ann nútíðinni og virði hana. Samband mitt við fortíðina er öllu flóknara, það er allt frá yndislegu þukli til vonzkulegra fangbragða í heimullegri dagbók hef ég lýst sjálfum mér svo, að ég væri „langrækinn maður með lélegt minni". Á næstu síðu er þessi fyrirsögn: „Hýenur og grasasnar, sem ekki má gleyma", og undir henni listi með nöfnum rógsmanna minna, að því er bezt verður séð. Brougham, Condor, Croker, Jeffrey, Lockhard, Roberts, Thorn. „Ég man því miðurekki lengur hvaða þvætting þeir skrifuðu um bækurnar minar, eða hvar og hvenær hann birtist,", sagði Nabókoff og spurði mig, hvort ég kannaðist við þessa náunga. Ekki kom ég þeim fyrir mig. Nabókoff sagði, að það væri e.t.v. ekki von. „Þetta voru gagnrýnendur Byrons og Keats", sagði hann glottandi og rak svo upp hrossahlátur. Hann hefur gaman af því að leggja slíkar bók- menntagildrur. í bókum hans úir og grúir af þessháttar gátum. Segja má, að hann fáist við það að semja gátur. I bókum hans er varla sú setning, að hún leyni ekki á sér. „Allt, sem ég skrifa jaðrar við skopstælingu", segir hann. „En undir niðri er hins vegar hyldýpi alvöru Ég verð svo að reyna að þræða slóðann eftir brúninni, milli sannleikans og skopmyndar hans". Nabókoff gerir lesendum sín- um lesturinn heldur erfiðan Þeir verða að vinna til skilnings á verkum hans. „List er erfið", segir hann. „Það er svo sem nóg af auðveldri list; það er þetta dót, sem menn geta séð á nýtízku listsýning- um. En sönn list er erfið; það er lesendum hollast að þurfa að hafa nokkuð fyrir skilningnum”. 19 ára gamall fór Nabókoff í Trinity College í Cambridge. En skólinn og Bretland ollu honum vonbrigðum. "Ég varði skólaárum mínum i Bret- landi til þess að búa mig undir ritstörf í Rússlandi. Og Cambridgeskóli, gömlu álmtrén í görðunum, gluggarnir skreyttir skjaldarmerkjum og gjallandi turnklukkurnar skiptu mig engu máli og höfðu ekki önnur áhrif á mig en kynda undir heimþrá minni og söknuði, sem voru þó kappnóg fyrir". Einhvern tima sagði vinur Nabókoffs þetta um hann: „Nabókoff á hvergi heima nema i sjálfum sér. Styrkur hans er i útlegðinni og hann er eini útlaginn, sem hefur getað snúið útlegð i sigur". Árið 1 922 fór Nabókoff til Berlínar, þar sem faðir hans var þá. Nótt eina vaknaði Nabókoff við simhringingu. Sá sem hringdi flutti váleg tiðindi. Nabókoff eldri hafði verið skotinn. Hann hafði verið i einhverri mótmælagöngu og reynt að verja annan mann skoti úr byssu rússnesks afturhalds- manns. Þessi atburður hefur gengið aftur í sögum Nabókoffs og birzt i ýmsum myndum Frá þvi um tvitugt og fram um þritugt flakkaði Nabókoff á milli Parisar og Berlínar, „þeirra tveggja höfuðborga útlaga" Og i þessum borgum gerast margar sögur hans. Hann kvæntist Veru Evssevnu Slonim, dóttur rússnesks iðnrekanda af Gyðingaættum. Þeim hjónum varð auðið eins sonar, sem heitinn var Dimitri. Svo kom þar, að fjölskyldunni varð ekki vært fyrir nasistum og hún flúði Þýzkaland. Nabókoff var ágætur skákmaður (ein skáldsaga hans, „The Defense”, fjallar um rússneskan skák- snilling) og hann fór nú að semja skákdæmi fyrir blað rússneskra útlaga. H:nn samdi einnig fyrstu rússnesku krossgátuna Hann þýddi og „Lísu í Undralandi" á rússnesku — og fékk tvö sterlings- pund fyrir. Hann hélt lika uppteknum hætti að skrifa leikrit, smásögur, yrkja Ijóð og semja skáld- sögur. Þær voru allar um lif rússneskra útl.aga og samdar á rússnesku. Siðar þýddu Nabókoff og Dimitri, sonur hans, þær á ensku Nabókoff gat sér smám saman nokkurn orðstír. En tekjurnar urðu litlar eftir sem áður. Er timar liðu týndu þeir tölunni rússnesku útlagarnir, sem lesið höfðu bækur Nabókoffs, þegar hann var orðinn fertugur sá hann, að ekki mátti lengur við svo búið standa. Hann sagði því skilið við rússneskuna og rússneska menningar- heiminn og fór að rita ensku, eins og ekkert væri „Það var skömmu eftir stríð", segir hann. „Ég varð að velja mér föðurland og mál til frambúðar. Ensku fór ég að lesa barn að aldri. Fyrstu tímarit- in, sem ég las voru á ensku. Ég get nefnt Little Folks, Chatterbox og lítil, frábærlega skemmtileg hefti með gljáprentuðum litmyndum, þar sem Ikornar vöfðu laufblöðum utan um hunangsslettur og réttu strengilegri uglu með mikilli kurteisi. Ég minnist þess með ánægju, að einum íkornanum tókst að gera illfyglið að athlægi. Ég minnist einnig með ánægju bókar um kappakstursbil, sem var áþekkur fiski á hlið að sjá Nú þegar ég varð að skipta um land og tungu þarna fyrir stríðið leitaði ég fyrst til Englands. En hvernig, sem á þvi stóð virtust menn ekki vilja mig í vinnu. Og enginn kærði sig um rússneskukennara Ég leitaði því til Bandaríkjanna. Þau reyndust vinsamlegri Ég þrífst betur i Bandaríkjunum en nokkurs annars staðar i heiminum og vona að ég komist þangað aftur innan skamms, ef mér tekst að vinna bug á letinni í mér. En til ættlands mins fer ég aldrei framar". Og að svo mæltu pantaði Nabókoff annað glas af víni. Árið 1 940 var honum boðið að kenna slavnesk mál i Stanfordháskóla i Kaliforniu og halda fyrir- lestra um bókmenntir í Wellesley College i Massa- chusetts en stunda auk þess fiðrildafræði i Safn- inu til samanburðardýrafræði i Harvard Loks var honum boðin prófessorsstaða i Cornell-háskóla. Alltaf hélt hann áfram að skrifa, og nú helzt á nóttunni „Ég var nærri 40 ár að finna Rússland og Vesturevrópu upp á nýjan leik”, sagði hann „Og nú átti ég fyrir höndum að finna Bandaríkin upp." Hann reit nú þrjár miklar skáldsögur — „Bend Sinister", sögu um lifið i einræðisríki, „Pnin", frásögn af rosknum, útlægum prófessor, og loks „Lolita", grátbroslega sögu af miðaldra prófessor, Humbert Humbert að nafni, sem fær ofurgirnd á 12 ára smámeyju, Lolita Haze. Nabókoff varð frægur af „Lolita" í vetfangi Höfðu þó bandarískir útgefendur ekki þorað að gefa bókina út —- hún þótti fulldjarfleg „Hún er frábær", sagði útgefandi nokkur. „Þetta er snilld- arverk. Nabókoff er frábær rithöfundur En ég get ekki gefið bókina út Haldið þið að ég sé vitlaus, eða hvað?" Nabókoff sendi handritið svo til Parisar og þar kom „Lolita" út á forlag Olympia Press. Ekki löngu seinna kom hún út í Bandarikjunum En þegar fréttist, að Tiún kæmi út i Bretlandi varð uppi fótur og fit þar. Bókin og höfundurinn urðu fyrir árásum í neðri deild þingsins, voru færð til saksóknara og þvi marglýst yfir, að bæði væru klámfengin og úrkynjuð Hins vegar lofuðu ýmsir málsmetandi menn bókina og má telja Bernard Levin, Roy Jenkins, Isaiah Berlin, Graham Greene og Philip Toynbee En mikill styr stóð um bókina eftir sem áður og veltu menn því mjóg fyrir sér, hvernig ætti að lesa hana. Var „Lolita" dæmisaga um sigur nýja heimsins yfir hinum gamla? Eða sigur gamla heimsins yfir þeim nýja? Var höfund- urinn máski siðspillt skepna og brjálaður í viðbót? Nabókoff brosti, er hann minntist þessa „Skemmtilegt," sagði hann, og hló niðri i sér, Hann sagði, að bækur sínar væru bannaðar í austantjaldslöndunum, en „Lolita" væri þó smygl- að þangað stundum Þá sagðist hann hafa heyrt. að leikfangaframleiðandi í Kaliforníu væri farinn að selja Lolitu í líkamsstærð og væri hún búin hinum furðulegustu kostum Ennfremur kæmi bráðlega út myndabók um Lolitu „En hvað get ég svo sem gert við þessu?" spurði hann grafalvarleg- ur. Næst barst talið að þýðingum á bókum Framhald á bls. 16 • ' O' '•

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.