Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 10
 LEO KROPIVINZKI (f. 1922 I Tjumen): Framför. Olía á léreft, 80x1 00 cm. — Eftir að hafa stundað nám í stofnun fyrir listiðnað og dekoratlva list í Moskva var Kropivinzki handtekinn og sendur í vinnubúðir (á Stallnstfmabilinu). JEWGENI RUCHIN (f. 1943 f Saratow): Myndbygging. 1969. Olía og blönduð tækni, 65x80 cm. Ruchin nam jarðfræði við háskólann í Leningrad og sem óreglulegur nemandi við Muchina listiðnaðarskólann þar. VANDRÆÐABÖRN sæmi“, svo og að hún „afmynd- aði hinn sovðzka veruleika". Hefndarráðstafanir þær er slfk- ir menn geta átt f vændum eru m.a. að þeir verði sendir á af- skekktan stað, bannað að búa í Moskvu og útilokaðir úr sam- tökum listamanna. Slfkt þýðir að þeir njóti ekki lengur vernd- ar sem viðurkenndir lista- menn, og er þá hægt samkvæmt lagaboði að skikka þá til hvers konar vinnu sem „sníkjudýr" þjððfélagsins, — svo sem iðju- leysingja, alkohólisla og þar fram eftir götum. Málum lauk með því að Gles- er var tekinn fastur, yfirheyrð- ur og loks vfsað úr landi í febrúar á fyrra ári. Ilonum tókst, svipað og Solschenizin, að taka með sér persónuleg minnisblöð, og auk þess 80 myndir vegna þess að óttast var að meiri hætta stafaði af tilvist þessa safns innan Sovétríkj- anna en utan þeirra. Tilhneigingin til að standa utan lögboðins sósfalrealisma verður stöðugt meira áberandi innan Rússlands, og á óopin- berum neðanjarðarsýningum á vinnustofum ýmissa Moskvu- listamanna hafa tekið þátt listamenn frá Georgfu, Armen- fu, Ukraínu og Eystrasaltslönd- unum. — Farandsýning safns Glesers ásamt rússneska safn- arans Dr. Arsen Pohribny, hef- ur gengið um Evrópu undir nafninu „Framsæknir straum- ar í Moskvu 1967 — 70“ og eru þar sýnd c.a. 300 verk rúmlega 50 Iistamanna. Þannig má slá föstu að frjáls listsköpun leitar f vaxandi mæli útrásar meðal sovézkra listamanna, og að hinn rúss- neski listamaður lætur ekki kúgast þrátt fyrir allar hættur og skelfilegar sem honum eru búnar f hans heimalandi. — Og fyrir það hlýtur hann óskipta virðingu starfsbræðra sinna f lýðræðisríkjum vestursins. Bragi Ásgeirsson. Þegar islenzkir bílakaup- endur uppgötvuðu um síðir, að Audi er einn hinna vönd- uðustu meðal þýzkra bíla — og þá er mikið sagt — hefur ekki staðið á vinsældum hans, enda er hann rúmgóður og tæknilega vel út færður, t.d. með framhjóladrifi. Mikill uppgangur er hjá Audi og nú hefur verið hleypt af stokkun- um nýju flaggskipi, sem hef- ur samkvæmt þýzkum heim- ildum „Mercedes gefúhl", sem á íslenzku bítiamáli út- leggst: Maður fílar hann eins og Benz". Það telst óvenju- legt, að þessi nýi Audi er búinn 5 strokka vél, sem tryggir enn þýðari gang. Sterkasta gerð hennar er 1 50 hestöfl og vinnslan þar eftir: Viðbragðið í 100 km hraða er 9.5 sek. og hámarkshraðinn 190 km á klst. Þessi gerð er með framhjóladrifi eins og aðrar gerðir af Audi, lengdin er 4.68 m og breiddin 177 cm. Um verðið hér er ekki vitað, en trúlega er það eitt- hvað nærri þremur milljón- um. Nýr 5 strokka AvdilOO BÍLAR

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.