Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Qupperneq 10
r . u 'h
£_ /
verði sem minnst þá
bráðnar minna af þeim og
þeir verða léttari f drætti.
Þeir verða skornir
með heitum vfr og dreg- ,
inn utan um þá einangrunarhjúp-
ur úr gervivfr.
IGervitungl leitar uppi hentuga ísjaka.
Svo flýgur þyrla yfir með hljóðmæli
og leitar traustra staða fyrir festingar.
2Festingarnar minna á hringborð. Fæturnir verða
hitaðir og þeim þrýst á kaf niður f ísinn. Þegar þeir
kólna frýs ísinn að þeim og þeir verða blýfastir í jakanum.
5Hér er búið að sníða stefni á jaka og pakka honum
inn. Jakarnir verða dregnir krókaleiðir norður haf-
ið — vegna andstreymis við Rauðahaf verða þeir skorn-
ir f meðfærilegri sneiðarog þær síðan dregnar til lands.
6Jakasneiðunum verður lagt undan ströndinni.
Svo bráðnar ofan af þeim og vatninu verður dælt
jafnóðum upp á land til notkunar.
eftir
Erwin
Lausch
BORGARÍSJAKAR
TIL ARABÍU
í Saudiarabíu eru oliulindir
hvarvetna og olían streymir upp i
stíðum flaumi án afláts. Aftur á
móti er þar minna um vatn, og
þaó svo, að sífelldur vatnsskortur
er í landinu. í Suðurheimsskauts-
landinu, einum 8000 kílómetrum
sunnan við Saudiarabíu, er hins
vegar nóg vatn. Er þar saman
komið meira en helmingur alls
ferskvatns á jörðinni, bundið
klakaböndum. Nú á að fara aó
bæta úr þessu landfræðilega
ranglæti: skera sneiðar af Suður-
heimskautsísnum, draga þær til
Saudiarabíu, láta þær bráðna i
sólinni þar og dæla leysingarvatn-
inu í land.
Hin þekkti, franski heimskauta-
frömuður, Paul-Emile Victor, hef-
ur haft meira af ís að segja um
dagana en aðrir menn. Hann hef-
ur verið á ís í 15 ár alis, bæði á
Grænlandi og Suðurskautsland-
inu. Hann fór 40 heimskautaleið-
angra og ferðaðist eina 300 þús-
und kílómetra á hundasleðum.
Victor stendur nú á sjötugu. En
hann lætur það ekki aftra sér. Er
hann í þann veginn að ráðast i
stórkostlegar framkvæmdir af því
tagi, sem menn dreymir stundum
um en nærri aldrei verður af.
Fram að þessu hefur Victor jafn-
an skilið ísinn eftir, þegar hanh
hélt heim ú könnunarferðum sín-
um. Nú ætlar hann að fara að
brytja hann nióur og draga þang-
að, þar sem hann má aó gagni
koma...
Saudiarabar, sem alltaf eru
vatnslausir, hentu þessa hug-
mynd á lofti. Fór frændi Khalids
konungs, Mohammed Feisal,
prins og yfirmaður vatnsmála í
landinu, þess á leit við Victor, að
hann reyndi með einhverjum ráð-
um að koma nokkrum ísjökum til
Saudiarabiu. Yrði isinn þá
væntanlega dreginn einhverjar
krókaleiðir norður eftir hafi og
norður að Rauðahafi. Þar yrði
hann látin bráðna í sólinni og
vatninu dælt í land.
í báðum heimsskautslöndun-
um. en einkum þá á Suðurskauts-
landinu, eru gríðarlegar birðir
fersks vatns og engum að gagni. Á
Suðurskautslandinu einu er
meira en helmingur alls fersk
vatns jarðar. íshellan á Suður-
skautslandinu er sums staðar
3000 metra þykk. Hún teygir sig
til allra átta og sífellt bætist við
hana. Alltaf endrum og eins
brotna „molar" utan af jöðrum
hennar og fljóta burt. Þessir mol-
ar eru ferskvatn í klakaböndum
og það eru þeir, sem Victor hyggst
draga til Saudiarabíu. ísjakarnir
eru ekki beinlínis meðfærilegir á
að líta. Þeir eru oft nokkrir kíló-
metrar að þvermáli og 300 metrar
á hæðina — jafnháir Effelturnin-
um í París. En sex sjöundu hlutar
jakanna eru í sjó. Aðeins einn
sjöundi stendur upp úr.
Hafstraumar hrífa jakana og
bera þá burt. Bráðnar æ meir af
þeim er norðar dregur, og fæstir
komast í nokkurn námunda við
þau lönd þar, sem þeir gætu kom-
ió að notum. Þeir bráðna áður.
Vfsindamenn hafa þó um skeið
Velt því fyrir sér, hvort ekki
mætti nýta jakana einhvern veg-
inn. Hafa vísindamenn frá
Ástralíu, Chile og Bandaríkjun-
um reynt að finna til þess ráð.
Víða í öllum þeim löndum er
vatnslítið.
Árið 1972 stungu John Hult og
Neill Ostrander, vísindamenn í
Rand Corporation í Kaliforníu,
upp á því, að bundnir yrðu saman
nokkrir fsjakar undan ströndum
Suðurskautslandsins og dregnir
norður upp að stöndum Suður-
kaliforníu.
í Suðurkaliforníu kemur varla
dropi úr lofti og vantar alltaf
vatn. En þeim Hult og Ostrander
reiknaðist svo, að isjakana mætti
draga tæpa tveggja kílómetra leið
á klukkutfma og tæki þá ferðin öll