Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 13
Lófi Marc Chagall
Marc Chagall
„í þessum förum geturðu séð hendi
fágaðrar konu ... við fyrstu sýn virð-
ast þessar hendur ekki sterkar ... en
með þvi að líta á báðar hendurnar
saman, virðast þær vera sterkar
vinnuhendur. Þessi hendi hefur hæfi-
leika til að hrífa aðra. Þessi för.greina
frá persónu, sem getur fengið fólk til
að treysta henni, trúa á hugsjónir
hennar og fyrirætlanir. Þó að hún geti
verið mjög viðskotaill, þegar henni er
gert eða mælt á móti eða þegar henni
mistekst að ná einhverju marki, sem
hún hefur sett sér. Hún hefur hæfi-
leika, sem jaðra við snilli og gera
henni kleift að halda vináttu fólks og
jafnvægi i lifi og störfum... Hún getur
verið mjög þolinmóð kona ... kona,
Hér sjáum við Picasso vi8 veggskreytingu sfna þar sem hendur sem tákn eru
einn aSalveigur myndbyggingarinnar.
sem talar mjög litið, en þegar hún
aftur á móti finnur hjá sér þörf til að
tala, getur hún verið mjög mælsk..
Hún er óvenjuleg mótsnúin breyting-
um. Með einbeitni sinni hefur henni
tekizt að sigrast á mörgum vandamál-
um sínum. (Apalína hennar er skýr og
bendir til mikils skaps, sem gæti
komið fram ( tilhneigingu til oftstopa
eða sköpunarstarfsemi.) Línurnar í
hægri hendi sýna, að hún hafi orðið
fyrir miklum áhrifum á bernskuheimili
sínu og að þau áhrif hafi haldið áfram
að ráða hugsununum hennar og til-
finningum, löngu eftir að hún braut
sér leið staðfastlega burt frá sinu fyrra
umhverfi. Höfuðlínurnar sýna, að
hún tók snemma að hugsa sjálfstætt
og þroskaðist að andlegri hæfni og
hugarflugi, jafnvel þótt hún yrði á
tímabili greinilega að gæta vel að
jarðbundnum smámunum i daglegu
lífi. Eitt sinn brauzt hún úr þessum
viðjum, hendi hennar sýnir, að hún
gat gefið sig alla á vald gleðinni við
vinnu sina og leiki og lifað frjálslega
án tímatöflu. Þó sýnir hendi hennar,
að hún liti á ástúð og blíðu sem eins
konar leik, sem hún skilji ekki og hafi
ekki áhuga á að leika. Einnig má sjá,
að hún hafi næmar tilfinningar fyrir
hljómlist, litum og einnig gróðrinum
umhverfis hana... Hún sinnir verk-
efnum sínum af barnslegri gleði, frá-
bærum gáfum og frjóu ímyndunar-
afli.
Hendur konunnar skipta miklu
máli t myndbyggingu þessa
þokkafulla verks Henri Matisse.