Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Qupperneq 14
Pablo Picasso
Þessi kona skapar sinn eigin heim.
Hendi hennar sýnir góðar gáfur og
auðugt hugmyndaflug. Hún er per-
sóna, sem er ákaflega næm fyrir
umhverfi sinu, og hin ofurspenntu
andsvör hennar við utanaðkomandi
áhrifum hafa i för með sér merkilegar
skynjanir. Allt, sem hún nemur í
kringum sig, virðist endurspeglast í
henni, og hún virðist taka á sig hinn
siðferðilega, tilfinningalega og likam-
lega svip og blæ umhverfisins...
Hana skortir hæfileika til að samlag-
ast hinu eðlilega lífi umhverfis hana,
og þess vegna leiðist hún til sjúklegar
imyndunar og stundum ótæks skiln-
ings á lífinu. Hendur hennar sýna, að
hún leitar fróunar og útrásar i málara-
list. Hún málar þó ekki til skreytingar,
þar sem hún notar tjáningarmeðalið
fremur sem vopn til að ráðast á
..óvininn" eða til að verja „fórnar-
lambið", því að á þann hátt fær hún
útrás fyrir sínar eigin tilfinninningar
gagnvart lifinu umhverfis hana. Hún
er róleg og sterk að eðlisfari, þó að
ýmis konar öryggisleysi þrúgi hana.
Hún býr yfir mikilli vizku, þó að hún
sé einnig mjög hégómleg. Hönd
hennar sýnir, að um marga elskhuga
gæti verið að ræða. Hvers konar
hjúskaparsambönd yrðu stormasöm
.. þar sem hún er ótrúlega happasæl,
hvað snertir peninga, sem hún er fær
um að njóta sjálf. Húh þarf tíma til að
hugsa og álykta og skilja vandamál
sin og leitast við að beita reglu,
samræmi og rökvísi i öllu, sem hún
tekur sér fyrir hendur.
Henri Mattisse
Þessi kona gæti vel stjórnað
kappakstursbifreið. Hendi hennar
sýnir persónu, sem er góðum gáfum
gædd, dómgreind og viðsýni... Hún
er greinilega sannfærð um eigin vits-
muni og er í hæsta máta tortryggin á
hugarhræringar og mikilvægi
annarra Hún segir nákvæmlega frá
staðreyndum og hefur mikla skipu-
lagsgáfu, er skarpskyggn og frumleg
i hugsun Hún gæti verið skapandi,
en vegna andríki sins er hún senni-
lega önnum kafin i orðræðum. Hún er
orðheppin, spurul og forvitin og hefur
því þörf á að umgangast fólk, þó að
tilhneiging hennar til að leita að spak-
legum sannleika geri hana svolítið
tilgerðarlega. Henni er það ekki
metnaður en hún vill gjarna eiga
hluti. Hún virðist hafa verið
„mömmustúlka" og augljóst virðist,
að hún hafi ekki þroskað andlega
hæfileika sína, sjálfstraust eða sjálf-
virðingu fyrr en seint á ævinni Hend-
ur hennar sýna mikið tilfinninganæmi
og jafnmikið traust á eigin hæfileik-
um Ef til vill varðar hana meira um
góðan hug annarra vegna þess, hve
mikillar umhyggju hún naut i æsku.
Viðurkenning annarra skiptir hana
miklu máli, og hún lifir i stöðugri þrá
eftir velgengni og sigrum... Hjartalína
hennar sýnir frjálslyndi og hleypi-
dómaleysi. Hún virðist ekki njóta
neinnar ánægju i ástalífi sinu, en
örlagalína hennar gefur i skyn, að
hún muni ná framúrskarandi árangri
á öðrum sviðum lifsins. Bilin milli
fingra Apollos og Merkúrs og Júpiters
og Satúrnusar ... benda til þess, að
viðkomandi sé ekki einungis frjáls-
lynd manneskja, heldur og sérstak-
lega framsækin, framfarasinnuð og
framsýn i lífi og starfi.
Það er stórfróðlegt að fylgjast með
þvi, hve nærri barónessan kemst
sannleikanum, og i raun og veru er
þetta ævisaga snillinganna í stuttu
Lðfi Henri Matisse.
máli — að hún nefnir konur í upphafi
er annað tveggja til komið, að
greinarhöfundur hefur ætlað að rugla
hana í riminu eða að hér kemur fram
hin alþekkta staðreynd, að hendur
myndlistarmanna eru ósjaldan mjög
kvenlegar — jafnvel þótt þeir séu að
öðru leyti risar að vexti — undan-
tekningar frá reglunni finnast þó og
ekki svo fáar. Hér er um svo þekkta
listamenn að ræða, að óþarfi er að
fara út i nánari skilgreiningar — allir,
sem eitthvað eru þeim kunnir, skynja
undireins sannleikann i lófalestrinum,
en þeim er minna þekkja til, skal bent
á hinn ótölulega grúa bóka, sem til er
um þá — mynda og upplýsinga i
uppsláttarbókum.
Bragi Ásgeirsson.