Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1977, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1977, Side 16
JA,ÞE1R HATfl MI6 KANN6KI EKKI, > EN £6 EZ I/ISSUM AtÐ þElRHÁFA HORN ' SÍPU MINNI! Sex sögur... Framhald af bls. 3 gjörist með mér. Ég vil fremur vera einn með nóttinni. Er þú stígur upp til himna þinna síg ég niðrf vfti mitt og jafnvel þá kallarðu yfir óvæð- an flóann sem aðskilur okkur: „Samferðamaður! Félagi!“ Og ég svara þér: „Samferðamað- ur! Félagi!" þvf að ég vil eigi að þú sjáir vfti mitt. Logarnir myndu hlinda þig og reykur- inn kæfa þig. Og ég kann vel við hel mfna. Eg elska hana svo mjög að ég ieyfi þér eigi að heimsækja hana. Ég vil frem- ur vera einn í vfti mfnu. Þú elskar sannieikann, feg- urðina og réttlætið og þér til geðs þá segi ég þetta ágætt og þykist elska þessa hluti en djúpt í hjarta mér hlæ ég að þessum frumreglum þfnum þótt ég láti þig eigi sjá hlátur minn. Ég vil fremur hlæja einn. Þú, vinur minn, ert góður, hciðvirður og vitur og það sem meira er: þú ert fullkominn en ég á hinn bóginn ræði við þig af spakviti og heiðarieik en.. .ég er brjálaður. Ég ein- ungis bregð grímu á brjál mitt því að ég vil fremur vera brjál- aður einn með sjálfum mér. Vinur minn, þú ert eigi vin- ur minn en hvernig get ég lát- ið þig skilja það? Vegleið mfn er ei vegleið þfn en engu að sfður göngum við saman hönd f hönd. Fugla hræðan Dag nokkurn spurði ég fuglahræðu: „Þú hlýtur að vera þreytt á því að vera ætfð kjurr á þessum einmanalega akri.“ Og hún svaraði mér: „Bless- un þess að hræða er djúp og varanleg; ég þreytist aldrei.“ Eftir andartaks umhugsun sagði ég: „Þetta er rétt þvf að einnig ég hefi kynnst þessari blessun.“ En hún svaraði mér: „Að- eins þeir sem hálmi eru troðn- ir fá kynst henni.“ Þá yfirgaf ég fuglahræðuna án þess að vita hvort hún hefði lofað mig eóur lastað. Leið nú eitt ár og fuglahræð- an varð heimspekingur. Og er ég átti að nýju leið framhjá sá ég að tveir hrafnar höfðu gjört sér hreiður undir hattinum hennar. Sámur hinn spaki Einn góðan veðurdag átti hundur nokkur afar spakur að viti leið framhjá kattahóp. Og þar eð hundurinn sá að kettirnir er virtust f þungum þönkum töluðu saman og tóku eigi eftir nærveru hans þá stansaði hann til að hlusta eft- ir því sem þeir sögðu. Stóð þá upp stór köttur, al- varlegur og gætinn á svip, snéri sér að félögum sfnum og sagði: „Bræður, biðjið og er þér hafið beðið einu sinni og tvisvar og einu sinni enn þá mun án efa rigna músum úr himninum." Er hundurinn heyrði þetta hló hann með sjálfum sér og yfirgaf kettina um leið og hann sagði: „Blinda og óvitra kattarkyn. Stendur eigi skrif- að og hefi ég eigi alltaf vitað og foreldrar mfnir á undan mér að það sem fellur af himn- um ofan er vér lyftum hjört- um vorum f bæn og áköllun eru ekki mýs heldur bein.“ Sjálfin mín sjö Á þöglustu stund næturinn- ar er ég var til rekkju genginn og sveif millum svefns og vöku settust sjálfin mín sjö á ráð- skraf og hvfsluðust á: FYRSTA SJÁLF: ÖII þessi ár hefi ég búið f þessum brjá- læðing og eigi gjört annað en Iffga písl hans um daga og vekja upp sorg hans um nætur. Ég get eigi lengur borið örlög mfn og gjöri þvf uppreisn. ANNAÐ SJÁLF: Bróðir, ör- lög þfn eru léttvægari en mín þar eð mér hefir verið áskapað að vera gleðinnar sjálf í þess- um brjálæðing. Eg hiæ er hann er kátur. Syng á hans hamingjustundum og dansa vængjuðum fótum um glöð- ustu hugsanir hans. Það er ég sem rfs upp gegn svo þreyt- andi tilveru. ÞRIÐJA SJÁLF: En hvað segið þér um mig? Sjálfið sem af munúð er uppæst. Logandi brandúr villtra ástrfðna og ótrúlegra óska. Það er ástar- innar sjúka sjálf sem gjöra á uppreisn gegn þessum brjá- Iæðing. FJÓRÐA SJÁLF: Ég er aumast yðar allra því að mér féll hatrið og niðurrifsöflin f hlut. Það er ég, illviðrasjálfið, borið f niðdimmum holum hel- vftis sem mestan hefi réttinn á að mótmæla þjónkun minni við þennan brjálæðing. FIMMTA SJÁLF: Nei, það er ég. Sjálf hugsunarinnar og ímyndunaraflsins, þjáð af hungri og þorsta, dæmt til að váfra stefnulaust í leit að hinu ókunna og óskapaóa. Það er ég en eigi þér sem hefi stærstan réttinn til að rfsa upp. SJÖTTA SJÁLF: En ég? Vinnusjálfið, hinn kreppti verkamaður sem með löngun í svip og f þolgæði handa sinna gefur dögunum smáttogsmátt lögun og skepur úr formiaus- um frumefnum nýjar og eilff- ar myndir. Það er ég, einfar- inn, sem gildastar ástæður hefi til að gjöra uppreisn gegn þessum óværa brjálæðing. SJÖUNDA SJÁLF: Undar- legt þykir mér að þér skuluð öll rísa upp gegn þessum manni fyrir það eitt að hvert yðar hafi sitt ákveðna ætlunar- verk að vinna. Æ, hversu mik- ið gæfi ég eigi fyrir að vera eitt yðar með afráðinn starfa og örlög sköpuð en ég hefi ekkert afmarkað hlutverk. Ég er sjálfið sem ekkert gjörir. Sá sem dvelst f hinu hljóða og tóma rúmi sem ei er rúm og f tfma sem ei er tími meðan þér með yóar striti hafið áhrif á mannsins lff. Segið mér, grannar, hver skal uppreisn gjöra, þér eður ég? Þá er sjöunda sjálfið hafði lokið máli sfnu litust hin sex á með vorkunn f augum en sögðu ekkert og er nóttin dýpkaði lögðust þau hvert af öðru til svefns í nýrri og un- aðslegri afgift. Einungis sjöunda sjálfið vakti og mændi rýnandi aug- um innf gapið tómt að baki allra hluta. l'lKffamli: II.f. Vrvakur. Ruvkjavfk Framk\ .stj.: Ilaraldur Svfinsson Rilsljórar: Mallliias Johanncssen St> rinir (íunnarsson Rilslj.fllr.: (iísli SÍKurðsson AunKsinuar: Arni (iarðar Kristinsson Rilstjórn: Aðalstræti 6. Simi 10100

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.