Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Side 3
alltaf einhverjir, sem liggja þar
rúmfastir. Frá þvi um áramót
höfðu sex farþegar látist um
borð. Þeir ljúka ferðinni
aungvu að síður — í sérstökum
kæliklefa.
Sem sagt gott. Og allt í einu
liggur þessi lifurgrái ævintýra-
heimur á höfninni og þegar
komið á bátnum upp að hlið
skipsins, er það eins og tiu
hæða hús og maður undrast að
annað eins ferliki skuli ekki
fara á hliðina. Það er 26 þúsund
tonn og til samanburðar má
geta þess að olíuskipið Hamra-
fell, sem til þessa er stærsta
skip i eigu Islendinga, var 16
þúsund tonn. Sá hluti skipsins,
sem að farþegum snýr er 6 hæð-
ir eða dekk og er hægt að koma
fyrir um 650 farþegum ef i hart
færi. Reyndin er hinsvegar sú,
að hinir öldruðu farþegar eru
gjarnan einstæðir og vilja frem-
ur borga meira en vera í kelfa
með öðrum. Þessvegna voru
aðeins 440 farþegar. Ahöfnin er
hins vegar 340 manns og má af
þvi marka, hver þjónusta er á
boðstólum.
í þetta sinn var Kungsholm á
6 vikna siglingu, sem hófst i
New York, en Reykjavík var
fyrsti viðkomustaður á leiðinni
til Norður Noregs. Siglt er allt
norður til Knöskaness ( Nord-
cap) og með sex viðkomustöð-
um i hinum rómuðu norsku
fjörðum suður til Öslöar. Þaðan
er siglt inn í Eystrasalt, allt til
Leningrad, en þaðan með við-
komu i Hamburg, Amsterdam
og fleiri Vesturevrópuhöfnum,
unz lagt er á Atlantshafið að
nýju frá Le Havre í Frakklandi
og endað í New York.
Markaður fyrir ferðalög af
þessu tagi mun stærstur i
Bandarikjunum, þar sem
milljónerar í bandaríkjadölum
eru taldir vera viðlika margir
og íslendingar allir. Farþegarn-
ir voru líka nær einvörðungu
bandariskir. Það segir sina
sögu um rekstur fjölþjóðlegra
fyrirtækja, hvernig staðið er að
útgerðinni. Svíþjóð er heims-
frægt skattaviti og vonlaust að
gera skipið út þaðan, enda þótt
það heiti að vera sænskt.
Heimahöfnin er Monrovia í
Liberiu og þá er heldur ekki
skylda að ráða hálaunaða Svia í
áhöfnina. Þjónaliðið er að
mestu leyti ítalskt og er hvort-
tveggja, að Italir eru snjallir í
þeirri grein og mun léttari á
fóðrum.
Hvað kostar svo veizlan? Sex
vikna túr eins og áður er lýst
kostar að meðaltali eina milljón
íslenzkra króna, en allt uppí 1,6
milljónir í dýrustu vistarverun-
um. I sérstakri orðsendingu til
farþega, sem liggur frammi í
skipinu, er mælt með þvi að
hver farþegi reiði af hendi 2
dali í drykkjupeninga á dag í
matsal og aðra 2 dali fyrir her-
bergisþjónustu, en sanngjarnt
þykir að drykkjupeningar nemi
samtals 7H% af heildarfar-
gjaidinu og séu þeir látnir af
hendi hálfsmánaðarlega í löng-
um siglingum. Drykkjupening-
ar verða varla undir 100 þús-
und krónum í sex vikna ferð og
með ferðum, sem farþegum er
gefinn kostur á I landi, fara
dýrustu fargjöldin hæglega
uppi 2 milljónir á mann. Það er
að sönnu mikið verð, en þess
má geta til samanburðar, að
tveggja vikna ferð til London
— Amsterdam — Frankfurt —
Parísar og heim, kostar um 500
þúsund með því að fljúga á
afsláttarfargjaldi og búa á
miðlungshótelum.
Það er svipaður kostnaður á
viku og um borð i lúxusskipi
eins og Kungshólm. Munurinn
er þó sá, að um borð í Kungs-
holm er margfalt fleira innifal-
ið i verðinu.
Of langt mál yrði að telja það
allt upp, en nefna má samtals
17 sali, sem farþegar geta notað
að vild. Barir eru þrir, tveir
bóka- og lestrarsalir og fjögur
spilaherbergi með sérstökum
spilaborðum. Þar eru hár-
greiðslu- og snyrtistofur, bæði
fyrir karla og konur, sundlaug
inni og önnur úti, finnskt gufu-
bað og æfingastöð. Ýmiskonar
verzlanir eru þar og glæsilegir
reyksalir, konsertsalur, bió, 310
sæta leikhús og lyftur milli
hæða. Þar eru tennisvellir og
net til að slá í golfbolta og hægt
að fá bæði tennis og golf-
kennslu. Þrjár hljómsveitir
starfa í skipinu, þar er nætur-
klúbbur og „show“. Viljirðu
hlusta á fyrirlestra um ferða-
lög,- þá standa þeir til boða;
viljirðu læra að dansa, þá er
danskennari til taks, viljirðu
læra að spila bridge, þá eru
einnig til -kvaddir kennarar í
þeirri grein og sé giktin slæm,
þá er nuddari til taks, og guðs-
þjónustur fara fram á sunnu-
dögum.
Um kvöldið létti Kungsholm
akkerum og skrúfurnar tvær
byrjuðu að mjaka ferlikinu út á
flóann. Það hafði létt upp,
aldrei þessu vant og kvöldsólin
varpaði skini sínu á spegilslétt-
an hafflötinn. Eftir dálitla
stund bar Kungsholm við sjón-
deildarhring; það var eins og
dálitil bauja, sem minnkaði si-
fellt. Undarlegt að hugsa til
þess, að öll þessi ósköp skuli
vera þar innanborð: Heill heim-
ur út af fyrir sig, þar sem allt
gengur svo að segja i hæga-
gangi og stressið er víðsfjarri
— næsta óraunverulegur heim-
ur, án sambands við umheim-
inn að því er virðist. En stað-
reynd aungvu að siður
Gisli Sigurðsson
Á myndinni a8 ofan sést ms Kungsholm á siglingu: Sænskt
skip, skráð í Afríku, með ítalska þjóna og bandaríska farþega.
Að neSan sjást herlegheitin neðan þilja: Borðsalurinn, kalda
borðið, ein af hljómsveitum skipsins, útisundlaugin og loks
ein af vistarverum farþeganna.