Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Blaðsíða 13
MOÐIR ÁN BARNA Einn góðviðrisdaginn ekki alls fyrir löngu varð þýzkum ljós- myndara reikað út í skóg skammt fyrir utan Aachen við belgfsku landamærin. Nokkru á undan honum for ljóshærð kona, í gúmmfstfgvólum og stormjakka. Ljósmyndarinn bar ekki kennsl á hana — fyrr en hún sneri sér allt í einu við og leit í áttina til hans. Þá reyndist þetta vera Paola Belgíuprinsessa. Ljósm.vndaran- um hálfhnykkti við, þegar hann sá framan f hana. En honum tókst að ná af henni nokkrum ntyndum, og hér sést ein þeirra ásamt ann- arri nokkurra ára gamalli. Báðar eru af sömu konunni. En það er sannarlega ekki auðséð. Sú var tfðin, að Paola prinsessa þótti fegurst kvenna f þeirri stétt. Ilún var mjög í sviðsljósunum og eftirlæti blaðamanna og Ijós- myndara. Nú er hún orðin 39 ára gömul. Ilún hefur tekið miklum breytingum, og Iff hennar allt. Ilún býr afskekkt með Afberti, manni sfnum, f höll einni við Liittich. Hið ljúfa líf er nú fyrir bf og prinsessunni býðst fátt til afþreyingar — nema stöku sinn- um opinberar hcimsóknir á barnaheimili, í skóla eða sjúkra- hús. Þau hjónin eiga tvo syni, Philippc og Laurent, 12 og 14 ára gamla. En þau hafa lftið af þeim að segja nú orðið. Það er hrein- lega búið að taka þá af þeim. Þeir standa til konungserfða, og Baudouin Belgfukonungur og Fabiola drottning hans eru tekin við uppeldi þeirra. Það er sem sé farið að búa þá undir framtfðar- störfin. Móðir þeirra varð að fáta þá af hendi. Um annað var tæpast að velja. Ilún varð að hlýða lögum ættar sinnar. En það hefur mark- að hana svo, sem sjá má af mynd- inni; hún er orðin nærri óþekkjanieg. Paola Belgfuprinsessa hefur látiS mikiS £ sjá uppá sfSkastiS. Myndirnar tvær eru teknar meS aSeins fjögurra ára millibili. SVIAR KUNNA EKKI AÐ META ABBA Hljómsveitin varð fræg fyrir „Waterloo" hér um árið, þegar hún sigraði Evrópukeppninni árlegu og hefur sannarlega kunnað á þvf tökin að fylgja sigrinum eftir. Síðan hefur út gengið fjöldi hljómplatna með lögum, sem orðið hafa ofarlega á vinsældalistum og óhætt er að segja að aðdáendahópurinn er stór. En meðal hinna vandlát- ari er annað hljóð f strokknum og þykir þcim ABBA ekki rista mjög djúpt. ABBA er bókuð langt fram f tfmann; hljómleikarnir allar götur til Ástralfu og plötusalan er á borð við það sem gerðist hjá Bítlurtum á sjöunda ára- tugnum. Aðeins eitt veldur þeim og framkvæmdastjóran- um, Stikkan Andersson, áhyggjum. Þrátt fyrir allt er eins og Svfar séu manna treg- astir til að viðurkenna hljóm- sveitina. Takmarkið núna er að komast á toppinn í Banda- rfkjunum og söngleikur á Broadway er jafnvel f sigti. Þau Agnetha, Björn, Benny og Annifrid eru orðin vellauðug, en ekki þykir þeim vert að láta bera mikið á þvf heima fyrir. Öfundin er mjög rfkur þáttur f fari Svfa og enda þótt þau gætu sem bezt ekið á Rolls Royce eins og Bftlarnir fyrr meir, þá þora þau það ekki heima f Svf- þjóð af ótta við öfundina — og aka bara f Volvo eins og hinir. Jón Þ. Þór Af spjöldum skáksögunnar ÁriS 1889 var sjötta skákþing Bandaríkjanna háð í New York og í sambandi við það var haldið eitthvert mesta skákmót, sem sögur fara af. Þátttakendur voru 20 og tefldu þeir tvöfalda umferð, hver tefldi 38 skákir. Úrslitin urðu þau að Tschigorin og austurríski meistarinn Max Weiss urðu efstir og jafnir, hlutu 29 vinninga hvor. í 3. sæti varð Gunsberg með 28,5 v., 4. Blackburne 27,5. Burn 26. o.sv. frv. Fjármagns til mótsins var aflað m.a. með því að gefa út bók um mótið, sem seld var fyrirfram á 10 dollara eintakið. Þetta er einhver glæsilegasta mótsbók, sem út hefur verið gefin og hún er afar eftirsótt af söfnurum. Hvert eintak var tölusett og á titilblað hvers eintaks var prentað, hver hefði keypt. Ritstjóri var Wilhelm Steinitz. Fyrstu verðlaun í mótinu voru 1000 dollarar, sem var ófamikið fé á þeim tíma. Við skulum nú líta á skákina, sem fékk fegurðarverðlaun á mótinu, en hún var tefld I 1 . umferð. Hvítt: Mason Svart: Gunsberg ítalskur leikur 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bc4 — Bc5, 4. d3 — d6, 5. Be3 — Bb6, 6. c3 — Rf6. 7. Rbd2 — De7, 8. a4 — Be6, 9. Bb5 — Bxe3, 10. fxe3 — a6, 11. Bxc6 — bxc6, 12. b4 — 0-0, 13. 0-0 — Rg4, 14. De2 — f5. 15. exf5 — Bxf5, 16. e4 — Bd7. 17. Rc4 — Rf6, 18. Re3 — g6. 19. c4? — Rh5, 20. g3 — Bh3, 21. Hf2 — Rg7, 22. Db2 — Re6, 23. Hae1 — Hf7, 24. Hee2 — Haf8, 25. Re1 — Rd4, 26. Hed2 — Dg5, 27. R3g2 — Bxg2, 28. Kxg2 — De3, 29. Kf1 — Rb3M og hvítur gafst upp.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.