Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Blaðsíða 12
Súsanna í baði, eða Súsanna og tveir senatorar. Myndin er tekin á Kjarvalssýningunni, sem
staðið hefur yfir í sumar.
Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum
Súsanna í baði
Einskonar
trúskipti
Framhald af bls 11
tré, þá geng ég ekki í Kommúnistaflokk-
inn." Við þekkjum öll þessar þversagnir;
ungi maðurinn, sem tekur virkan þátt i
stjórnmálum, sinnir málefnum útigangs-
manna og vinnur að bættum kjörum
verkamanna; hann kúgar konuna sína
heima hjá sér.
Hvernig brúum við gjána milli opin-
bers lífs og einkalífs? Fyrsta skrefið er
að.skilja það, að málefni einkalifsins eru
einnig málefni heildarinnar, eða eins og
Hesse segir: „Við drögum mörk persónu-
leikans alltaf of þröngt." Öll okkar
einkavandamál eru afsprengi tíðarand-
ans. Við verðum bara að tjá þau. Andúð-
in á því, sem aðeins telst heyra einkalif-
inu til, eru hin viðteknu viðbrögð þessa
tímabils. Seinni heimstyrjöldin er fyrir
löngu um garð gengin, en vitundin um
milljónirnar, sem þá týndu lifinu, hvort
heldur á vigvöllunum, í Hirósíma eða i
gasklefunum, hefur slævt tilfinningar
okkar og samvisku.
Við höfum vanist stórum tölum. Við
hugsum ekki sem einstaklingar i litlum
stærðum. Allt okkar volæði er einkamál
og það verðum við að bera ein. Þar
hjálpa háar tölur ekki upp á sakirnar.
Það er enginn flótti að rifja upp fyrir
sér, hvernig það er að hugsa sem ein-
staklingur, engin uppgjöf — þvert á
móti er það mennskur hæfileiki til þess
að þýða kalið hjarta. Víða bólar á nýjum
mótmælum, sem eru orðin tímabær. —
Dagblöðin sem ekki gátu lengUr sagt
tíðindi af vatnsdælum, sem notaðar voru
til þess að dreifa mannfjöldanum, fóru i
fréttaleysinu að koma á kreik orðrómi
um uppgjöf, flótta og sjálfskoðun. Þetta
minnir á viðbrögð fólks, sem heldur í
vetrarkuldanum að nú vori aldrei
framar.
Að draga sig í hlé, ihuga og hverfa á
vit sjálf sin er manninum jafn nauðsyn-
legt og vatn og brauð. Hæfni okkar til
félagshyggju og félagsstarfa eru þættir i
persónuleika vorum á sama hátt og
pyntingarnáttúran á upptök sin I af-
skræmdum persónuleika fangabúða-
böðulsins. Persónusaga hvers ein-
staklings tengir hann sterkustu
böndunum við meðbræður sína. For-
sendan til þess að geta tekið þátt í félags-
lífi og stjórnmálum er hæfileikinn til
þess að lifa einkalífi.
V.l. þýddi
Tif-skýringar:
SDS Sozialistischer Deutscher Student-
enbund.
FDJ Freie Deutsche Jugend = samtök
ungkommúnista f Austur-Þýskalandi.
Ohnesr
Ohnesorg = stúdent f Berlfn. Hann var
áhorfandi að kröfugöngu stúdenta f
Berlfn og beið bana af kúlu úr byssu
lögreglumanns. Dauði hans olli miklum
úlfaþyt.
Dutschke = þekktur leiðtogi vinstri-
sinnaðra stúdenta f V-Þýskalandi.
t'tHffandi: II.f. \r\akur. Rvykjavík
Framk\.slj.: Ilaraldur Swinsson
Kilsljórar: IMallhias Johanm sspn
Slyrmir (iunnarsson
Rilslj.fllr.: (ílsli Si«urðsson
AukI.vsinuar: Árni (iarðar Krislinsson
Kilsijórn: AðalslraMi 6. Simi loioo
Áður en þeirri einstæðu Kjarvals-
sýningu lýkur, sem nú er á Kjarvals-
stöðum, þar sem sýndar eru myndir
þessa mikla meistara, sem flestar
eru í einkaeign, langar mig til að
minnast á eina af þessum myndum,
ef einhverjir er lesa þessar línur ættu
eftir að skoða sýninguna, eða teldu
það ómaksins vert að líta á hana
aftur, enn einu sinni.
Mynd sú er hér um ræðir ber
nafnið „Súsanna í baði" í sýningar-
skránni og er á vegg hægra megin
þegar gengið er inn í salinn. Eigandi
myndarinnar e'r Jón Þorsteinsson
íþróttakennari.
— 0 —
Það var einhverju sinni sem oftar
að ég flutti Kjarval frá flugvelli á
Egilsstöðum og til kofa hans við
Selfljót.
Ekki man ég nú hvort hann var að
koma frá því að klassa upp saltfisk-
inn í Landsbankanum, en af þeirri
ferð hans er sérstök saga, sem ekki
verður sögð að þessu sinni — eða
hann sagðist vera að koma úr gilli
frá Ragnari vini sínum, nema hvað,
meistarinn var í ágætu skapi, lék á
als oddi, auðsjáanlega ánægður
með sig og tilveruna.
Þegar hann var sestur upp í bílinn
og við lagðir af stað gat hann ekki
lengur orða bundist um ástæðuna
fyrir gleði sinni.
„Árum saman," sagði Kjarval, „er
ég búinn að glíma við problem, sem
mér hefur aldreí tekist að leysa fyrr
en núna.
Undanfarið (undanfarin ár?) hef
éq verið að mála mynd af Súsönnu i
baði. Hún á að vera að leika á hörpu
í baðinu, en mér tókst aldrei að
mála strengina eins og ég vildi hafa
þá. Allt í einu leystist problemið, ég
notaði vatnsbunur fyrir strengi. En
þegar ég var búinn heð mynd a voru
tveir karlmenn komnir inn á hana til
þess að horfa á Súsönnu í baðinu.
— Átti ég að reka þá út? Nei, herra
skólameistari, ég gat ekki fengið
það af mér." Þannig — eða mjög á
þessa leið fórust Kjarval orð. Þykist
ég nokkurn veginn muna mál hans
um myndina orðrétt, enda helstu
punktar þess skrifaðir upp að lokinni
ferð.
Því var það um daginn er ég kom
til að skoða sýninguna, að mér brá
heldur betur i brún. í stað lostfag-
urrar konu, sem ég hélt að Súsanna
hefði átt að vera, var þarna á mynd-
inni svíradigur karlmaður í baðinu.
Hitt stóð heima við það sem Kjarval
hafði sagt, bæði með vatnsbunu
strengina, þó ég hefði búist við
þeim öðruvísi og gæjarana tvo, sem
meistarinn gat ekki fengið af sér að
reka út af myndinni. Það var
kannski heldurekki von þarsem hér
var um að ræða virðulega senatora,
eftir því sem myndaskráin hermdi.
Ekki fór hjá þvl að eitthvað fór hér
á milli mála.
Var hugsanlegt að Kjarval hafi átt
við aðra mynd en þessa, þegar hann
ræddi við mig I blílnum forðum?
Hafi svo ekki verið fór tæpast hjá
því að annar hvort misminnti meist-
arann um kvenlegan yndisþokka
eða að okkur bar ekki saman um
kyngreiningu á Súsönnuheitinu og
ég yfirgaf sýningarsalinn fullur von-
brigða.
Æ síðan að meistari Kjarval sagði
mér frá þvl hvernig hann hefði leyst
problemið, sem svo lengi hafði vaf-
ist yfir honum I sambandi við hörp-
una hennar Súsönnu, hafði mig
langað til að sjá myndina af henni I
baðinu, en hafði ekki hugmynd um
hvar hún var niður komin. — Þarna
var þá myndin komin — en allt
öðruvísi en ég hafði gert mér I
hugarlund. — í baðinu var karl-
mannsbeljaki I stað brjóstaprúðrar
þokkadísar. — Það var þá ástæða
til, eða hitt þó heldur fyrir gæjarana
að troða sér inn á myndina, hjá
meistaranum til að horfa á þessi
ósköp.
Hvílíkur misskilningur af minni
hálfu.
— 0 —
Nokkru seinna hitti ég vin minn
Jón Þorsteinsson, eiganda myndar-
innar og segi honum alla sólarsög-
una, og frá vonbrigðum mínum og
misskilningi. ekki hafði ég fyrr lokið
sögunni en Jón skellihlær slnum
smitandi hlátri og segir: „Það fór
eins fyrir mér, mér sýndist Súsanna
vera karlmaður og sagði Kjarval
það. „Nei góði minn, þetta er sápan
utan á Súsönnu," segir Jón að Kjar-
val hafi þá sagt.
Þórarinn Þórarinsson
frá Eiðum.
©