Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Blaðsíða 5
ÞaO var ekki aoeins þýska beitiskipio Emden. sem kom til landsins rétt fyrir striS til þess a8 sýna hir hakakrossinn heldur komu hingaB tveir kafbátar U nr. 26 og 27 i júlí 1939. f september sama ár kom kafbáturinn U 30 hingaB til Reykjavíkur. Hann sökkti farþegaskipi Breta Artheniu 3. september nokkrum klukkustundum eftir upphaf striðsins. Þýskur bátur U 26 eBa 27 leggst a8 IngólfsgarSi. Þessi mynd er af töku kafbáts sunnan viS ísland i septem- ber 1941. Bóturinn var dreginn inn i Hvalfjörð. Breskar og norskar flugvélar héSan frá íslandi tryggSu töku bátsins. Þetta var einstæSur atburSur, aS þýskur kafbátsforingi gæfist upp. StaSa hans fyrir uppgjöf var ekki talin vonlaus. Stór íþróttahöll, er Bandaríkjamenn reistu við Hálogaland, var gefið heitið „Andrews Memorial Hall" til minningar um hershöfðingjann. íþróttafélög- in studdust mjög við þessa höll fyrstu eftirstríðsárin. Kvikmyndahúsið á Keflavikurflugvelli, sem enn er í notkun fyrir liðsmenn þar suður frá, heitir Andrews Theater. í apríl 1941 gerði Bandaríkjastjórn samkomulag við Kauffmann, sendiherra Dana í Washington, um að Bandaríkjamenn tækju að sér vernd Grænlands. Var siðan ráðist i lagningu flugvalla og annarra stöðva og nefndu Bandarikjamenn þær nöfnunum Blue West 1 til 8. Mikilvægasti völlurinn var í fyrstu Blue West I (Narssarssuak) nálægt Eiriksfirði. Seinna komu aðrir flugvellir svo sem við Syðri Straumsfjörð. Mest umferð mun hafa verið um Blue West I, bæði flutningur flugvéla og eins flug suður fyrir Hvarf við kafbátaleit og verndun skipalesta. Til aðgreiningar hétu stöðvarnar á austurströnd Grænlands Blue East. Seint á árinu 1941 og frá 1942 fara landsmenn að fá far i flugvélum, austur og einkum yestur yfir hafið, aðallega embættismenn í erindum fyrir ríkis- stjórnina. Hafa margar sögur orðið til frá þeim ferðum. Kom þar margt til, svo sem aðbúnaður í hervélunum, oft margra daga bið á flugvöllum, einkum er bilanir urðu t.d. i Goose Bay á Labrador, Gander á Nýfundnalandi, Presque Isle í Maine eða Blue West í Grænlandi. Var sérstaklega sögulegt að koma á grænlenska flugvöllinn Blue West I, (sem er i fullri notkun i dag í Narssarssuak) aðflug inn þröngan fjörð og fjöruborðið við flugvöllinn þakið flugvélum, er hlekkst hafði á. Var hætta á þýskri innrás? Viðskiptamálin. Þessu er óhætt að svara neitandi. Heyrst hefur um þýska áætlun um innrás i ísland, sem kann að hafa verið samin á einhverju stigi. Ekki mun hafa verið ástæða til að óttast hana meðan Bretar héldu velli í heimalandi sínu og Bandamenn höfðu yfirhöndina að mestu, að minnsta kosti með yfirsjávarskipum á hafsvæðinu kringum landið. Mesta hættan fólst í því, að Þjóðverjar hæfu sprengjuárásir t.d. á Reykjavik og hættunni raunverulega boðið heim með öllum þeim herbúnaði, sem var t.d. rétt utan við eldhúsgluggana hjá íbúum Reykjavikur. Lánið var, að Þjóðverjar áttu ekki mjög langfleygar flugvélar, meðan varnir voru veikastar hér á landi fram á mitt ár 1 941. Til dæmis hefur verið bent á, að Heinkel 111 vél frá Sola við Stavanger hefði mest getað borið eina 2-60 kílóa sprengju hingað til Reykjavikur til að ná aftur til heimaflugvallar. Aðstæður austur og norðaustur af landinu voru aðrar. Til dæmis hröktu Þjóðverjar norska herstöð frá Spitsbergen með skipum og flugvélum og rætt er um örlög sumra skipalesta á leið til Murmansk, er þær sigldu norðan Noregs. Freistandi væri að ræða stuttlega viðskiptamálin í striðinu, ef efni væru til. Má þar nefna bresku áhrifin á þau mál fyrstu árin, störf tveggja manna nefndar- innar skipuð Magnúsi Sigurðssyni, Landsbanda- stjóra, og C.R.S. Harris frá Englandi. Tilvist fslands innan sterlingssvæðisins kemur inn í þá sögu, greiðsiur fyrir ísfiskinn, er fór mestallur til Bretlands öll stríðsárin, með dollurum svo að landsmenn gætu greitt fyrir innflutning frá Bandarikjunum og Kanada o.fl. Er að finna frásagnir um þetta í skýrslum Landsbankans frá stríðsárunum, en lítið heillegt hefur verið skrifað um þessi mál. Mat á hernaðargildi íslands f stríðinu Þpð má meta í þessari röð eftir mikilvægi: 1) Aðstaðan í orrustunni um Atlantshafið var tví- mælalaust mikilvægust hér á landi fyrir Bandamenn, bæði sem flotastöð og aðstaða fyrir flugárásir á kafbáta og við vernd skipalesta og almennan stuðn- ing við flota Breta og Bandarikjamanna. Skipalestir á leið yfir hafið áttu hér skjól á fjörðum íslands og hafði það mjög verulega þýðingu í sambandi við siglingar yfir Atlantshafið, því að margar skipalestir til og frá Ameríku til Bretlands fóru norðurleiðina eftir mati á hverjum tíma, hvar kafbátastyrkur Þjóðverja var talinn vera mestur. Enn mikilvægari var aðstaðan fyrir skipalestir á leið til Murmansk, er yfirleitt lögðu upp frá Seyðisfirði. Hvergi var baráttan eins hörð og norðan Noregs, þar sem Þjóðverjar höfðu oft aðstöðu með kafbátum og flugvélum til að granda stórum hluta skipalesta. Héðan var haft eftirlit með ferðum Þjóðverja og lagt til atlögu, hvenær sem færi gafst. Þjóðverjar reyndu oft að leynast og komast út á Atlantshaf á skipum með ísröndinni milli íslands og Grænlands. Frægust varð ferð Bismarcks og Prinz Eugens. 2) Næst að mikilvægi fyrir Bandamenn var önnur flugaðstaða Breta og Bandaríkjamanna hér á landi. Flugumferðin yfir hafið með nýjar og notaðar flugvél- ar með viðkomu á íslandi varð ákaflega mikilvæg. Á þann hátt komust vélarnar sæmilega örugglega og fljótt yfir hafið og mikilvægt skipsrými var í staðinn notað fyrir önnur hergögn og matvæli fyrir vesturvíg- stöðvarnar og Bretland. 3) í þriðja lagi var ísland all mikilvægt sem herstöð fyrir landher og sem eyja í stóru hafi, sem varð að hernema til þess að óvinurinn gerði það ekki. Hér varð þvi almenn herstöð og þjálfunarstöð með mikla aðstöðu m.a. hersjúkrahús fyrir særða menn frá vígvöllum Vestur Evrópu og ekki síst úr hinni hat- römmu orrustu um Atlantshafið. Hér voru mikilvæg- ar veðurathugunarstöðvar, flugsamband við Græn- land og nokkuð við Rússland. Hér störfuðu herdeildir Breta ekki aðeins frá Englandi heldur líka herlið frá samveldislöndunum í þjálfun og biðstöðu. Hernám íslands reyndist mikilvægur áfangi við að fá Banda- ríkjamenn til að blanda sér í styrjöldina og við það léttu Bandaríkjameng á styrjaldarbyrðum Breta. ís- land varð og geysimikilvæg birgðastöð Bandamanna fyrir flug og flota, með olíu, mannafla og ekki síst vopn, sem var hlaðið hér upp. Einna mest áberandi voru hraukar af djúpsprengjum, sem vörðuðu veginn endalaust upp á Hellisheiði, einnig í birgðarstöðvum, utan vegar. Djúpsprengj'um þessum var ætlað að granda kafbátum Þjóðverja og var kastað úr flugvélum, en einkum skotið út frá korvettum og tundurspillum Bandamanna I eltingar- leik við kafbáta, er stóð alla styrjöldina. 4) Þá liggur í augum uppi, að landsmenn voru komnir að all verulegu leyti i vinnu fyrir Bandamenn, sem hluti striðsvélar þeirra. All stór hluti verkamanna og annars starfsfólks var í einni eða annarri mynd starfandi fyrir Bretland og Bandarikin við mannvirkja- gerð, þjónustu og framleiðslu. Síðast en ekki síst’ber þess að geta, að öll stærri fiskiskip landsmanna voru í flutningum með ísfisk til Bretlandseyja. Var þáttur fólks, sem vann i landi að fiskverkun, að sjálfsögðu einnig verulegur. 5) Friðbjörn Aðalsteinsson, stöðvarstjóri Landssím- ans á Loftskeytastöðinni á Melunum skrifaði grein eftir stríð í Simablaðið og hélt því fram, að stöðin á Melunum TFA hafi haft geysimikla þýðingu i orrust- unni um Atlantshafið. Stöðin var sterk, vel tækjum búin og sérstaklega vel staðsett. Þar höfðu Bretar aðstöðu út mest allt stríðið. Þeir komu fyrir eigin stöð, en studdust mjög mikið við þann tækjabúnað, sem Landssíminn hafði komið upp þarna til almennra radíoviðskipta við skipalestir. Hitt er ráðgáta, hvar Bretar og seinna Bandaríkjamenn höfðu miðunar- stöðvar til þess að finna óvinaskip og kafbáta á grundvelli radíó-sendinga þeirra. Það kemur t.d. fram að í eltingarleiknum við Bismarck hafði Bretum tekist að finna skipið eftir hlustun á sendingar þess. Voru miðunarstöðvar á Bretlandi, íslandi og Gíbraltar notaðar í þessu sambandi. Almennt séð var hernaðargildi landsins fyrst og fremst tengt flutningum á sjó og í lofti. Straumur Sjá nœstu j síðu_^^g ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.