Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Síða 11
Karin Struck EINSKONAR TRÚSKIPTI „Ég missti trúna á að fiugrit og hópvinnan ein gæti breytt staðföstum sannfæringum og fordómum í hjörtum mannanna. Mér fannst ég hafa verið tæld og svikin. Haiði ég ekki alltaf verið lokuð inni í einhverjum hópi eins og fángelsi, hvort heldur hópurinn var fjölskylda mín eða / skólar. Eg hafði aldrei verið ein og gengið á vit sjálfrar Við drögum mörk persónuleikans alltaf of þröngt og ætlum honum of lftið svigrúm. Við teljum það einungis til persónuleika vors, sem greinir okkur sem einstaklinga frá öðrum. En við er- um heimur f hnotskurn. A sama hátt og lfkami okkar geymir þróunarsögu Iffsins allt aftur til fiskanna og jafnvel lengra, þá finnst f sálinni allt það sem nokkru sinni hefur bærst með manninum. Hermann Hesse: Demian Hvaðan kemur mér sú ofdirfð að ætla einkalifið — meira að segja mitt eigið — stjórnmálalegs eðlis? Er ég haldin ein- hverri réttlætingaráráttu? Ég vil seðja forvitni þeirra, sem sí og æ eru að spyrja mig: Hvað gerið þér til þess að breyta heiminum? Get ég með skrifum mínum breytt einhverju í málefnum hinna fjöl- mörgu atvinnulausu, hinna geðbiluðu, hinna kúguðu og fyrirlitnu, eiturlyfja- þræla og þessa ólæknandi normala fólks? Hvaðan kemur mér sú ofdirfska að tjá almenningi atriði úr einkalífi mínu, sjálfsævisögu og skáldskap, ramm- lega samanslungin. Sú var tiðin að ég steig upp á borð og bekki til þess að halda ræður. Ég hvatti til kröfugangna. Ég lagði undir mig sendiráð og lögregluþjónar slógu mig í andlitið. Ég samdi flugrit og hélt ræður fyrir verkamenn. Ég starfaði í SDS. Ég var meðlimur I kommúnistaflokknum (DKP). Ég ferðaðist til Austur- Þýzkalands til þess að fá þar skólun. Ég stóð á götum úti og ræddi við vegfar- endur um Austur-Þýskaland. Ég hrópaði „Ho Si Mín“. Siðan sagði ég mig úr Kommúnistaflokknum. Ég skrifaði skáldsögu. Ég ól börn. Ég stundaði vinnu eins og milljónir annarra og hjónaskiln- aður varð hlutskipti mitt. Einkalífið með sínum óteljandi skyldum heimtaði alla mína krafta. Ég var ekki lengur stúdína, sem fékk námsstyrkinn sinn lagðan inn á bankareikning. Ég varð að borga skatt, og ala upp börn. Ég varð að leggja upp í gönguna miklu gegn um myrkviði einka- erfiðleika, sem voru námserfiðleikum og verkkvíða stúdentsins þyngri. Ég var þreytt og að niðurlotum komin. Ég hafði ekki lengur frelsi og olnbogarými stúdentsins, sem hæglega getur frestað prófi um eitt misseri. Æskudraumarnir mísstu lit sinn og hugtakið bylting kom ekki jafn létt og af sömu hrifningu fram á varirnar. Mér féllu ekki lengurí geð ræður um breytingu og byltingu þjóð- félagsins og alls heimsins. Ég fylltist þörf til þess að vinna sem einstaklingur. Ég hafði ekki löngun til þess að tala um öreiga og verkamenn. Ég leitaði vináttu við fátæka barnafjölskyldu og ég trúlof- aðist verkamanni. Var ég að takmarka sjálfa mig? Var ég að hörfa til einkalífs- ins? Ég reyndi að hjálpa eiturlyfjaneit- anda. Ég skynjaði, hversu yfirborðs- kennd ég sjálf og nánustu vinir minir voru. Má ekki kalla þetta flótta til einka- Hfsins. Mig langar til þess að skrifa bók um f jölskyldu mina, þvl mér virðist svo sem að líf hennar sé „privat" og „póli- tískt“ dæmigert fyrir líf svo margra. Faðir minn hafði starfað á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Hann hafði verið bóndi, slðan járnsmiður, þá vefari og slðast póstur. Fjölskyldan hafði hrakist upp frá slavnesku löndunum og slðan flúið frá Austur-Þýzkalandi. Mig langar til þess að skrifa um þessa fjölskyldu svipað og Tómas Mann gerði I verki slnu Buddenbrooksfjölskyldan. Er þetta hroki eða skýjaborgir? Hvaðan kemur mér sú sannfæring að með því að kafa niður I minn eigin hugarheim og rann- saka mínar eigin tilfinningar leiði ég i ljós sannindi, sem hefðu pólitískt og almennt gildi. Höfðu menn skapað sér sjálfir þessar andstæður, annars vegar opinbert líf, hins vegar einkalif. Höfðu menn búið til þessi hugtök til þess að einangra meðbræður sína og til þess að hindra að menn skyldu á almennum vettvangi þjáningu hvers annars ? Sam- hengið hefur rofnað. Þegar einhver byrjar að drekka og missir atvinnu sina segja menn; þetta er hans einkamál. Siðan kemur það í hlut bókmenntanna / yy mm . að reyna að lýsa atburðum I llfi ein- staklingsins. Þá kemur I ljós að hér er vandamál almenns eðlis á ferð. Til þess að halda mér við dæmið af drykkju- sjúklingnum nefni ég bók Hans Fricks „Afvötnun — dagbók", þar sem hann lýsir nákvæmlega reynslu sinni — og um leið reynslu milljóna annarra. Ekki finn ég samt til samviskubits út af því að geta ekki státað mig af eftirfar- andi; ég hef hvorki tekið þátt I þrýstiað- gerðum gegn kjarnorkurafstöðvum, né í að stofna kvennahús handa konum, sem sætt hafa misþyrmingum. Og svo mætti lengi telja. Ég spyr sjálfa mig, hvort ég hafi ekki samviskubit af þvi ég sat aðeins 10 stundir daglega við ritvélina, annaðist uppeldi barnanna, skrifaði stundum undir áskoranir, og sinnti um vandamál kynvilltra kvenna I heimaborg minni. Ekki gat ég helgað þessum mál- efnum alla krafta mina, heldur vann ég að þeim á höppum og glöppum, enda var ég I fullu starfi og hrjáð af streitu. Ég sagði við sjálfa mig; Ég er enginn stjórn- málamaður. Ég kem ekki meiru I verk en að ala upp börnin min og lesa mig til um stjórnmál. Áhyggjuleysið var á enda og brauðstritið tók alla krafta mina og jafn- vel meira en það. Hin pólitiska hrifning stúdentaóeirðanna hafði sett á mig sitt mark en gat ekki náð valdi á þjáningu samfélagsins, sem holdtekst I hverjum einstaklingi. Tilraun mín til þess að byggja upp „kommúnu" með verka- mannabörnum misheppnaðist. Ég bjó ein og barðist harðri baráttu til þess að sýna að kona getur staðið ein. For- ingjarnir úr stúdentaóeirðunum skrif- uðu doktorsritgerðir eða var vísað frá kennslu. Þannig fór t.d. um Hannes Heer, leiðtoga SDS i Bonn sem mótað hafði mig og aðra samstúdenta. Félags- málavafstrið og sú staðreynd að ég þrástarði á hinn ytri veruleika varð til þess að ég vanrækti minn innri mann. En nú heimtaði hann sinn rétt, þrengdi sér fram og kallaði á athygli mlna og skilning. A timum stúdentaóeirðanna fór ég ásamt félögum minum I SDS til Austur- Þýskalands. 1 Leibzig heimsóttum við stúdenta úr FDJ. Ég hafði vænst að I híbýlum þeirra héngju pólitísk vegg- spjöld, rauðir fánar og krepptur hnefi. En þvi fór víðs fjarri. A heimilum nokkra FDJ félaga héngu eftirprentanir franska impressionistans Renoir. Ég minnist þess að innra með mér fitjaði ég upp á nefið og hugsaði með mér. „Drott- inn minn dýri, en hvað þau eru ópólitisk i einkalífi sinu.“ Nú held ég að ég skilji, hvers vegna þessir stúdentar hföðu myndir Renoirs uppi við. Hvarvetna blöstu við þeim veggspjöld. Stjórnmálin og hið opinbera þrengdi sér allstaðar inn I einkalíf þeirra og þess vegna þráðu þau aðra hluti, persónulega hamingju og feg- urð — nú skil ég þetta. Það, sem virtist vera flótti og ósigur uppreisnarinnar, var nauðsyn, endurnýjun kraftanna og ný mótmæli. Mótmæli gegn einbeyt- ingarleysi félagsmálavafstursins, sem gerði mann æ innantómari og óánægðari. Áður fyrr hefði ég ekki spurt um dauðann. Ef ég hefði spurt, þá á eftir- farandi hátt: hve lengi varir byltingin? Þá var svarið; hún varir kannski I 50 ár. Þá verðum við orðin forgömul eða jafn- vel dauð og sú spurning vaknar; hvað höfum við unnið með þessu? Ekki stóð á svari; eftirkomendurnir munu njóta þessa. Þegar þú deyrð, deyrðu ekki öll. Félagarnir lifa áfram fyrir þig og halda verkinu áfram við að breyta veröldinni. En sú stund kom að mér varð ljóst, að ég lifði aðeins einu sinni. Ég átti rétt á einkalífi. Ég átti einnig rétt á þvi að leita hamingjunnar. Ég vildi breyta heiminum, en vildi samt ekki fórna mér fyrir málefnið. Timinn leið og enginn spurði mig, hvernig .mér fyndist að eld- ast og hvernig ég sætti mig við hrörnun og elli. Stuttu eftir að ég gekk úr Kommúnistaflokknum heimsótti ég gamlan flokksbróður, sem hafði dregið . sig I hlé. Mér skildist að til hafði verið fólk á undan mér, sem hafði reynt að breyta heiminum. Þetta fólk hafði elzt og dáið. Ég mýssti trúna á að flugrit og hópvinnan ein gætu breytt staðföstum sannfæringum og fordómum I huga og hjörtum mannanna. Þessi skilningur hafði slík áhrif á mig að mér fannst ég hafa verið tæld og svikin. Hafði ég ekki alltaf verið I einhverju samfélagi? Hafði ég ekki alltaf verið lokuð inni I ein- hverjum hóp eins og I fangelsi, hvort heldur að hópurinn var fjölskylda mín eða skólar. Ég hafði aldrei verið ein og gengið á vit sjálfrar mín. Ég hafði enga tilfinningu fyrir eigin gildi, enga vitund um eigin tilvist. Frá fæðingu hafði ég verið I einhverjum hópum, að vlsu alltaf einangruð. Atti þetta að ganga svona til eilífðarnóns? Ég hafði fundið til styrks þegar ég hrópaði slagorðin „Ho Sí Mín“ og „Nixon er morðingi". Mér fannst mér aukast afl við það að vera I sama hóp og Rudi Dutschke, en ein var ég ekki sterk. Ég hafði lært mikið og ef stúdenta- óeirðirnar og umbylting þessara ára hefðu ekki komið til, þá hefði ég ef til vill drýgt sjálfsmorð. Ég var reikul og hafði ekki lært að lifa. Ég var ekki lifsglöð, miklu fremur var ég þunglynd. Sálfræðingur gat ekki hjálpað mér. Eg þarfnaðist máls til tjáningar. Ég hafði líka þörf fyrir að koma einhverju I verk. Ritstörf urðu atvinna min. Ég varð þess áskynja að lestur og skriftir voru ef til vill markvissari aðgerðir en kröfugöng- ur og stjórnmálavafstur. Ég var þess áskynja að með þvi að skrifa gat ég umgengist samfélag mitt og tekið þátt I stjórnmálum. Þetta veitti mér meiri og djúpstæðari ánægju en fyrri stjórnmála- störf min. Mér datt I hug það sem Ung kona, rithöfundur að atvinnu, sagði við mig. „Meðan að kunningi minn, gamall kommúnisti, ber konuna sina með herða- Framhald á bls. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.