Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Síða 14
Þaö heitir Látrabjarg fullu nafni og er ekkert smá- smíöi. í kvæöi hefur þaö verið kallað: öldubrjóturinn kargi. Hann býður úthafinu byrginn: Hingaö og ekki lengra. Það er mátturinn 14 km. langur og 300—440 m. hár þar sem hæst er. Þaö er ógnarbjarg þeim, sem vanmáttugir vilja vió þae fitla. Það er dýrðarbjarg og þjónar fleygu lífi. Það er þes; fæðingarbjarg og barnaskólastaður. Það er uppeldisstað. ur heimsfrægrar karlmennsku í Rauðasandshreppi íslandi, er sannaði sig áþreifanlega sem slíkan 12.—15. desember 1947. Það er undrið, sem að baki stóð og undiv Björgunarafrekinu“, sem fór um víða veröld. Enginn veit hversu margar vængjaðar milljónir út skrifast þaðan úr skóla lífsins á ári hverju. Enda þótt Magnús Gestsson hafi skrifað um það heila bók og sagt eitthvað á þessa leið að gamni sinu: Ef allir íbúar þess með vængi tækju sig til í eindrægni og gerðu ferð sína samtímis upp í tungl I einfaldri fylkingu, goggur við stél, myndi hún ná alla leið þangað upp. Þó gerir hann hálft um hálft ráð fyrir að þrefalt fleiri en það búi í bjarginu, jafnvel fimmfalt fleiri. Enginn maður er ég til að fullyrða að endurskoða útreikning Magnúsar. En burði hef ég til að fullyrða að aldrei dettur neinum Látrabjargsfugli í hug að leggja upp í tunglferð. Þeir hafa öðru að sinna við sköpun nýrra og nýrra fugla í bjargi að boði lifsins lögmála. Á síðasta sumri gerðu Suður-Þingeyingar ferð sína i stórum hóp til Vestf jarða, flestir í fyrsta sinn, og gáfu sér viku til. Vegna vinsælda okkar í hæstu hæðum fengum við viku sólskin til ferðar og gáfum Vestfirðingum af þvi með okkur. Ferðin var farin á vegum búnaðarsambands sýslunnar undir stjórn Hermóðs í Árnesi. En landkynn- ingu annaðist Halldór á Kirkjubóli, Rebekka Eiríksdóttir kona hans og fleiri stórmenni vestur þar. Svo hefur mér sagt vestanmaður að sðlskinið hafi horfið með þingeyingum og ekki sést framar á því sumri. En ég var byrjaður að reyna að draga til stafs um Látrabjarg. Ferðir sem þessi kallast bændafarir. Við höfðum haft tvo ferðalagsdaga er við tókum að nálgast Bjargið, sem tíðum nefnist svo stuttu nafni af því það er meira öllum öðrum björgum á landi hér. í dag höfum við komið á stórstaðinn Reykhóla. En ekki gat ég séð Gretti bera uxann frá sævi heim til bæjar. Því á leið hans er risin þörungaverksmiðja, þeirra þar aðal- stolt. Sagt er þó að hún eigi að fara á hausinn, en er vonandi lýgimál. Annað stoltið til er kynbótahrútabú. Þeir stóðu inni hvítir sem snjórinn fyrir norðan og eiga að koma fótum undir eins hvíta ull og útrýma gulkunni, sem verið hefur okkar norðanmanna mesta stolt að rækta í nærri 100 ár. Annars: Undir háttatíma vorum við öll samankomin að Flókalundi í ágætu gistihúsi sem stendur í landareign Flóka heitins Vilgerðarsonar. Þar við hús og inni í því var þá samankomið allt stórmenni vestfirskra sveita ásamt okkur, önnum kafið að kjálka okkur niður til næturdval- ar í Vestursýslu. Hlutskipti mitt og Friðu konu minnar, svo og Þorsteins á Bjarnastöðum varð gisting í Kvíindis- dal í Rauðasandshreppi hjá Þórdísi Magnúsdóttur og Snæbirni Thoroddsen. Þau biðu eftir okkur langt fram á nótt með hlaðið borð og fögnuðu okkur eins og þjóðhöfðingjum eða eigin krökkum, sem væru að koma frá Ameriku. Þó var eitt að: Við vorum bara þrjú. „Og ég sem hélt að við ættum að fá fjóra gesti“, sagði Þórdís. Næsti dagur. Og það er Látrabjargsdagur þegar á hann líður. í Kvíindisdal komum við aftur. Hann er nú að baki um sinn, Sauðlauksdalur að baki og garðurinn Ranglátur, heldur hrörlegur orðinn, enda býr nú enginn framar í sjálfum Sauðlauksdal. Ó, guó! Sú báran er brött og há, hún brotnar í himininn inn! Svo kvað Matthías. Frá þessum bæ reið Eggert Ólafsson og Ingibjörg, brúður hans, og sukku bæði „ofan í bráðan Breiðafjörð“ rétt á eftir. Átakanlegar sögur og yndislegar líka loða við alla bæi. Brátt er Örlygshöfn að baki og Hnjótur og æðarvarp Egils Ólafssonar undir litskrúðugum flöggum og öðrum tilfær- ingum til augnayndis og hagsbóta kollum. Fyrir fáeinum árum var þar ekkert varp. I Látravíkurlýsingu einhverri segir eitthvað á þessa leið: Þar verður dalur i landið og heiði að baki Bjargs, Látradalur, Látraheiði. Þar erum við nú komin og vitum hérumbil hvar á landinu, skólagengið fólk og lesið í landafræði. Aldrei líta Þingeyingar á hlutina með annarra manna augum. Hver getur kallað þessa dældarnefnu dal? Hver getur gefið grjótunum á Látraheiði heiðarnafn? Ekki þeir í Aðaldalnum, hvað þá Laxdælir. Ekki þeir sem smala Bárðardalsheiðar og Fljótsheiði. En sleppum nú einu sinni öllum ríkismannaríg. Hvallátrar. Þar er mikið um byggingar heldur fornar. Þar býr Þórður hreppstjóri. Þar býr Ásgeir vitavörður. Báðir eru þeir kunnir af athöfnum frægðarárið 1947 og fleíru. Þá bjuggu 8 fjölskyldur á þessum stað og komu allar mikið við sögu. Sama má víst segja um flest fólk í þessum hreppi, Rauðasandshreppi. í dag er mannmargt á Látrabæjum, þó ekki eigi þar nú heima nema 5 manneskjur. Hvað má slíkt lengi svo til ganga. í dag standa bifreiðar i öllum hlaðvörpum og finna vist engan áhyggjuþunga í sólskini okkar af óviss- unni um framtíð byggðarlagsins. En áfram, þvi ekkert erum við annað en flýtirinn. Áfram til hliðar við forna verstöð, sem tíminn er búinn að leggja í rúst undir brúnleitan sand eða rauðan. Þar örlar þó á grjótveggjum og grjótgörðum. Einnig höfum við veður áf kumlum og sögum af þeim og mannlífi Látravíkur fyrr á öldum af lifandi mannavörum. En ákafinn áfram er meiri en svo að sagnir um dauðra manna dysjar og verbúðir tolli verulega í okkur. Svo er fiskivíkin að baki utan einn blágrýtissteinninn með nafni og heitir Júdas. Hann verð ég endilega að finna aftur i fjöru. Allt er að baki I svona stórferðum á samri stundu og til móts við það er komið. Nú bregður samt útaf því. Lengra til vesturs efur enginn lifandi maður. Landið er ekki lengur til í þeirri áttinni nema undir sjónum. Nú nær það þannig alla leið vestur að miðlínu millum Látrabjargs og Grænlandsjökla síðan ríkisstjórnin færði þegnum sínum til fullra umráða 200 mílurnar. Það var vel af sér vikið. Og ætti hún að fá fyrir það meira lof en nokkur önnur en engar skammir út kjörtímabilið og annað til, hrósyrði allra að verðleikum. Þar sem hjól okkar hætta að snúast hjá Bjargtangavita, er allt sléttlendi þakið bifreiðum. Engum duldist að þar voru þær allar komnar okkur til sæmdar, sem gefum nú sólskin á báðar hendur, vestur á landsenda. Býsn eru meðan brothætt jörð brestur ekki undan fargi þar sem á hennar holu skurn hlaðið er Látrabjargi. Aldrei hefur nokkur íslendingur sem ég fundið aðra eins list í þessum orðum Jóns Helgasonar. Áður hafði ég ekki hugmynd um að ég kynni svona < mikið í honum. En það var anhað: Lofthræðslan greip mig þegar ég var kominn fram á fremstu brún, eða rétt að segja þangað. Hún var svo mögnuð að ég er viss um að hún hefur verið eins og útmálaður aumingjaskapur frá hvirfli og langt niður á bak — í augum allra sem á mig vildu líta. En það gerði vist enginn. Okkar tími á verulegu Bjargi var ekki kominn. Hressingu urðum við að fá áður. Það lá í loftinu og bætti heilsuna, alltént um stundarsakir. Allt kvennaval úr Rauðasandshreppi og nærliggjandi byggðarlögum, börn og öldungar að viðbættum knálegum körlum, situr þarna fyrir okkur hjá vitanum. Blandast nú saman þingeyingar og barðstrendingar, án verulegrar blóðblöndunar þó, svo vitað sé. Einhverjir heimamenn eru komnir lengst upp í vita, t.d. hreppstjóri þeirra, að fræða gesti. En konur og heimasætur hlaða upp lönum af pönnukökum á guðsgræna jörðina. Og í öðru lagi koma Framhald ð bls. 16.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.