Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Side 3
arkitekta. Tveir stórir veggir voru ekk-
ert nama gluggar með útsýni yfir borg-
ina ...
3. desember
Versta kvöld, sem ég hef átt i mínu
vesældarlega, auma, hráa og spillta lífi,
var í gærkveldi. Við vorum aðeins fjór-
ar, og Sheila og Rod, sem er „herrann"
hennar í bili, buðu okkur heróin ...
22. desember
Ég hringdi til mömmu. Hún gladdist
svo mikið yfir að fá að heyra i mér, að
ég skyldi varla hvað hún sagði fyrir
gráti.
23. desember
í gærkveldi fannst mér eins og ég
væri komin til himins. Flugvélinni
seinkaði, en mamma, pabbi, Tim og
Alexandria (systkini hennar) voru öll
mætt til þess að taka á móti mér, og við
grétum eins og börn, án þess að
skammast okkar fyrir það ...
30. desember
Enn er helgi og hátíð. Eg er ham-
ingjusöm og glöð daginn út og inn og á
nóttunni líka!
1. janúar
Veislan í gærkvöldi var frábær.
Aldrei heföi mér dottið í hug, að vinir
pabba væru svona skemmtilegir og
áhugaverðir ...
4. janúar
Á morgun byrja ég aftur í skólanum
6. janúar
Hvílíkt áfall! Joe Driggs kom til min
í dag og spurði hvort ég ætti ekki
„eitthvað handa honum. Ég var næst-
um búin að gleyma, að fyrir skömmu
hafði ég verið seljandi. Ég vona, að
orðrómurinn breiðist ekki út...
24. janúar
Ó helvitis, andskotans — það hefur
gerst enn einu sinni. Ég veit ekki,
hvort ég á að æpa af fögnuði eða að
iðrast í sekk og ösku, hvað sem það
þýðir nú annars. Hver sá, sem heldur
því fram, að hass sé ekki vanabindandi
er vonlaus, asnalegur þorskhaus, óupp-
lýst naut! Ég hef notað eiturlyf síðan
10 júlí, og hvert skipti, sem ég hef
hætt, óttast ég ekkert meira en eitt-
hvað, sem líkist þessum efnum. Og
alltaf hef ég talið sjálfri mér trú um, að
ég gæti valið um það, hvort ég gæti
sleppt þvi eða ekki . ..
18. febrúar
Birgðirnar okkar hafa minnkað. Það
er búið að sleppa Lane úr varðhaldinu
og hann verður að gæta sín. En ég og
Chris tökum alltaf upp á einhverju
nýju. Við látum okkur ekki allt fyrir
brjósti brenna .. .
Marz...
Ég hef engin önnur föt en þau, sem
ég var i, þegar ég flýði að heiman . . .
(?)
í nótt svaf ég undir runna og í dag
rignir. Ég get ekki fundið neinn þeirra,
sem urðu mér samferða til Dene-
ver ... (Engin dagsetning er hjá Alice í
nokkurn tima. Hún hefur hripað þetta
niður á alls kyns pappirsafganga, bréf-
poka o.s.frv.)
(?)
Ég veit ekki, hvaða helvítis dagur er
eða hvaða tími dags. Ég veit ekki einu
sinni, hvaóa ár er eóa í hvaóa borg ég
er...
Einhvern annan dag
Loksins hef ég hitt prest, sem skilur
ungt fólk. Við ræddum saman í langan
tíma um það, hvers vegna ungt fólk
strýkur að heiman og svo hringdi hann
til mömmu og pabba .. .
Ég skil ekki, hvernig í ósköpunum
stendur á því, að þeim þykir enn vænt
um mig. En þannig er það i raun og
veru...
Seinna
Ég var að lesa yfir það, sem ég hef
hripað niður síðustu vikurnar og þá lá
við, að ég drukknaði í tárum ...
En nú er ekkert meira sem ég get
sagt í bili, kæra dagbók. Nema það, að
ég elska þig, og ég elska lífið og Guð.
Ég geri það sannarlega.
16. júní
(Alice hefur verið í skólanum og allt
gengið vel í 3 mánuði. Hún kynntist
ungum manni, Joel, og þau ákváðu að
halda saman. En gamli hópurinn, sem
Alice var með áður, reynir nú með
öllum brögðum að ná henni til sín
aftur).
— Amma dó i svefni í nótt. Og ég er
að reyna að segja við sjálfa mig, að hún
sé hjá afa ...
7. júlí
Frú Larsen lenti í bílslysi, svo að ég
ætla að hjálpa manninum hennar á
hverjum degi við matarstúss og gæta
litla barnsins þeirra . . .
(?)
. ... Mér finnst allt svo óraunveru-
legt. Ég hlýt að vera einhver önnur
persóna. Ég trúi því ekki enn, að þetta
hafi komið fyrir mig . . . Ég hlýt að vera
í einhvers konar fangelsissjúkra-
húsi. . .
(?)
Mér liður betur í dag. Þau skiptu
um sárabindi og settu ný. Ekki furða,
að mig kenni til. Fingurgó'marnir eru
eitt opið sár, tvær neglur eru alveg
horfnar og hinar eru rétt liálfar ...
(?)
Ég hef nú loksins uppgötvað, hvern-
ig ég fékk LSD. Pabbi sagði mér, að
einhver hefói sett efnið á súkkulaði-
hneturnar, og það getur alveg komið
heim og saman, því að ég man, að ég
fékk mér af þeim, rétt eftir að ég hafði
þvegið litla barninu .-..
Alice fékk svo mikinn skammt af
LSD, að hún trylltist alveg. Hún sá
orma og skorkvikindi skriða um sig
alla, reif í hárið á sér, beit sig og
klóraði, svo að nauðsynlegt varð að
setja hana í bönd.)
29. júlí
Mér veittust þau forréttindi í dag að
mega byrja í skólanum hér á geð-
sjúkrahúsinu ...
Allir eftirlitsmennirnir eru með
hringlandi lyklakippur. Hringlið í
þeim finnnst mér óstöðvandi, þung-
lyndisleg áminning.
9. ágúst
Loksins, loksins heima, þar sem ég
ætla alltaf að vera. Tim og Alex voru
svo ánægð að hitta mig, að mér leið illa
yfir því, hvernig ég hafði eyðilagt lif
mitt og þeirra síðustu mánuði ...
16. september
Hvað heldurðu? Frú ..., gamli píanó-
kennarinn minn, vill endilega, að ég
leiki einleik á næstu fjölmennu nem-
endatónleikunum hennar .. . Hún fylg-
ist nákvæmlega með höndunum á mér,
svo að þetta getur ekki orðið fyrr en
seinna í haust, en spennandi er það!
20. september
Ég held, að þú getir aldrei giskað á,
hver hafi komið í dag! Enginn annar er
Joel! ...
Jæja, ef ég ætla að vakna klukkan
sex og gera morgunæfingar, verð ég að
fara að sofa. Auk þess langar mig til
þess að láta mig dreyma um þennan
yndislega dag og alla yndislega daga,
sem ég á i vænduni á næstunni.
Eftirmáli
Þremur vikum síðar var aðalpersóna
bókarinnar látin. Þegar foreldrar
hennar komu heim af kvikmyndasýn-
ingu, fundu þau Alice látna i íbúðinni.
Þau gerðu bæði sjúkrahúsi og lögreglu
viðvart, en ekkert var unnt að gera.
Alice hafði tekið inn of stóran
skammt af eiturlyfjum. Enginn veit,
hvort það vár af yfirlögðu ráði eða
vegna slyss. Enda skiptir það ef til vill
ekki mestu máli, heldur hitt, að Alice
lést, og andlát hennar var aðeins eitt af
mörgum af völdum eiturlyfja þetta ár-
ið.
(Þýtt og endursagt: Þórir S.
Guðbergsson.)
Myndin, sem Ijóðið fjallar um: Fall lcarusar eftir Brueghel, máluð árið 1563.
Myndin er í fagurlistasafninu í Brussel
W.H. Auden
LISTASAFNIÐ
Þeim skjátlaSist aldrei um þjáninguna
gömlu meisturunum: hve vel skildu þeir
mannleg viSbrögS, — hvernig hún atvikast
meSan einhver óviðkomandi er að snæðingi
eða opnar glugga eða er á ráfi.
Er öldungarnir bíða í andakt og kvíða
eftir fæðingunni undursamlegu, eru ávallt
á kreiki börn sem láta sér standa á sama
og renna sér á skautum á tjörn
við skógarjaðar.
Þeir gleymdu því aldrei
að blóðugasti píslardauði verðurað ganga
sinn gang, hvað sem tautar, úti i horni eða
á sóðalegum slóðum þar sem hundar lifa
áfram hundalífi og hestur böðuls nuddar
bjúgum lendum við feyskið tré.
I „Ikarusi" eftir Brueghel til dæmis:
hvernig allt snýr sér með hægð undan óhappinu, —
plógmaðurinn hefur e.t.v. heyrt skvamp, örvæntingaróp,
en fyrir hann var þetta ekki stórslys og sólin
skein, eins og vera bar, á bleika fætur sem hurfu
í grænt hafið. — og hið dýrðlega og dularfulla
skip sem hlýtur að hafa séð undrið, dreng falla
af himnum ofan, það átti sér áfangastað
og þangað var hiklaust haldið.
Aðalsleinn Ingólfsson þýddi og hef-
ur tileinkað þýðinguna Magnúsi
Tómassyni