Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Side 10
BOKffl li SWBBRl hryggilega möguleika myndlistar- mannsins, að konan hætti að hafa áhrif á hann. Og siðar: „Mér þykir verst, að konur, sem koma hingað í heimsókn, lita á mig eins og pensil. En mér hefur verið bannað að tala illa um konur. Þó verð ég að segja, að mér líkar ekki, þegar þær gang- ast upp i þvi að vilja vera annað en konur, þ.e. — minnstu ekki á ósköpin — þegar þær afneita eðli sinu, þá er djöfullinn laus. Þá verður að minna þær á, hvernig þær eru i laginu, og þess vegna hef ég teikn- að þær með þessum löngu búsæld- arlegu lærum. Það er framlag mitt til kvennaársins. Það hefur verið í tizku — ég veit ekki hver hefur stjórnað þessari hel- vitis tízku — að hafa kvenfólkið eins og girðingarstaura. Eg hef tízkukónga og hönnuði lúmskt grun- aða — að breyta konunni í þessa staura. Það er að visu hægt að fara með þeim i Þjóðleikhúsið og á kon- serta, en girðingarstaurar eru hvim- leið náttúruspjöll. fylgja þeim heim - við dyrnar. Maður mundi - en skila þeim Þeir sem þekkja Sverri, vita að hann hefur ekki alltaf gengið heill til skógar. En hann gerir það ekki að umtalsefni i bókinni. Aðeins einu sinni minnist hann á „harmkvæli sin og heilsuleysi” suður i Berlin. Þá skrifaði hann guði bréf, en fann ekki heimilisfangið. Hann kveðst ekki hafa fordóma gagnvart trúarbrögð- um. En þau hafa ekki verið honum neins virðis og hann biður ekki til guðs: „Ég hef aldrei séð guð og veit ekki til að neinn hafi séð hann. Og ég get Ein af nýlegum mannamyndum Sverris, sem prýða bókina. Opna úr bókinni. Á vinstri síðunni er teikning frá 1967, sem heftir „Bryndís" og hluti myndarinnar stækkaður upp á hægri síðunni. Opna úr bókinni, Skúlptúr eftir Sverri á síðunni til hægri, og hluti hans stækkaðurá vinstri síðunni. Verkið heitir einfaldlega „Tálguð spýta". ekki ímyndáð mér, að slíkt almætti gæti verið þekkt fyrir að bera ábyrgð á þeim glundroða og óstjórn, sem hvarvetna blasir við i heiminum. En ég veit, að þú svarar því til, að maðurinn eigi frjálsan vilja. Ég skil hvorki það „frelsi" né þann „vilja". Og á öðrum stað: „Það er enginn trúarboðskapur í myndunum mín- um, aðeins lotning fyrir lífi og landi." CESAR VALLEJO TVOLJOÐ Jóhann Hjálmarsson þýddi ALLIR Eftir orrustuna , þegar hermaðurinn var fallinn kom maður til hans og sagði: „Ekki deyja, mér þykir vænt um þig!" En likið hélt áfram að deyja. PARIS I OKTOBER 1936 Frá öllu þessu fer ég einn. Frá bekknum sem ég sit á, frá buxum minum, frá stöðu minni, frá gerðum minum, frá ætlunarverkum sem eru að engu orðin, frá öllu þessu fer ég einn. Frá Champs Élysées eða gönguferðum á stignum undarlega Rue de la Lune heldurdauði minn, heldur vagga mín og umkringdurfóki, einn, frjáls reikar mannlegur svipur minn og fellir skugga sina hvern af öðrum. Og ég fer burt frá öllu og allt minnir á fjarveru mina: skórnir minir, reimagötin, einnig forin jafnvel krumpurnar i handarkrikanum á hnepptri skyrtu minni. Og tveir menn komu til hans og sögðu: „Yfirgefðu okkur ekki! Vertu hugrakkur! Snúðu við!" En líkið hélt áfram að deyja. Og tuttugu menn komu hlaupandi, hundrað, þúsund, fimmhundruð þúsund og hrópuðu: „Svo takmarkalaus kærleikur og engin vörn gegn dauðanum!" En likið hélt áfram að deyja. Milljónir manna söfnuðust umhverfis hann og báðu sameiginlegrar bænar: „Vertu hjá okkur. bróðir, vertu hjá okkur!" En likið hélt áfram að deyja. Þá komu allir jarðarbúar til hans; sorgmætt likið sá þá, hrærðist, reis hægt á fætur, faðmaði þann fyrsta meðal hinna góðu, gekk. . . CÉSAR VALLEJO (1892—1938) fæddist t Perú, ert fór ungur til Partsar þar sem hann lést úr berklum. Dauða sinn hafði hann sóð fyrir: Einn dag þegar rignir mun ég deyja I Parts, orti hann, I Ijóði sem vitnar um eirimanaleik og örvsentingu. Vallejo er skéld sársaukans. Bók hans Poemas humanos (Mannleg Ijóð) er vitnisburður um kvöl manns sem jarðvistin er framandi. en um leið er hann skarpskyggnari en flest skáld önnur. Það er einkum I Ijóðum ortum vegna borgarastyrjaldarinnar á Spáni sem aukin samkennd með öðrum verður áberandi I skáldskap allejos, oftast er það hans eigin depurð sem er yrkisefnið. Vakið hefur athygli að Mannleg Ijóð og Spánarljóðin eru flest ort haustið 1937. Nélasgð dauðans varð skáldinu innblástur. það tókst á við llfið af meiri krafti en nokkru sinni fyrr. Ljóðlist Suður-Amerlku hefur notið fordæmis Vallejos. Mörg skáld hafa lofsungið hann. Að margra dómi er hann höfuðskáld Suður-Amerlku. Það sem Vallejo sameinar I skáldskap slnum er nakinn og opinn IjóSstfll þar sem einskis er látið ófreistaðtil að sýna manninn eins og hann er og um leið birtast myndir og llkingar sem eru súrreallskar, miskunnarlausar og vandskýrðar. Raunsæi og óvænt hugmyndatengsl vega salt I skáldskap Vallejos. Ljóð hans eru I senn grátur og hlátur, viðkvæm og kaldhæðin. Hann er um margt fyrirrennari fáránleikans sem mótað hefur bókmenntir samtlmans, ekki slst leikritagerð, og birtist þar sem spurning um erindi okkar á jörðinni. Tvö Ijóð eftir César Vallejo, Ógnvaldurinn tlmi og Treystu gleraugunum. birtust I Lesbók fyrir nokkru (32. tbl. 4. sept. 1977.). Þýðandi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.