Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1977, Síða 15
Heimsfréttirnar HEIMSFRÉTTIRNAR eru eins og ein samfelld hitasótt. Þær tala óráð. Við opnum útvarp að morgni. Flugrán yfir Miðjarðarhafi! Idi Amin á skurðarborði! Ölkrá sprengd í Belfast! Þá veit maður það — sama fréttin verður endurtekin í öllum fréttatímum útvarps og sjónvarps allan þann dag, siðdegisblöðin stilla henni upp á útsiðum og morgunblöðin taka hana upp næsta morgun. Sumt endist þetta dag eftir dag, jafnvel viku eftir viku. Heimurinn virðist standa á öndinni. Verður samið við ræningjana? Er Idi Amin i raun og veru á skurðarborði? Eða er hann að látast og gabba til áð komast i heims- fréttirnar einu sinni enn, bölvaður prakkarinn? Eitt er vist — á meðan kemst fátt annað að. Maður eins og Idi Amin getur sópað svo frá sér að hann sýnist standa einn i heiminum þá stundina sem hann er i sviðsljósinu. Allt annað hverfur i skuggann á meðan. Það er eins og heimsfréttirnar hafi aðeins eitt auga, sjái aldrei nema eitt i senn. Munum hvernig sifellt var klifað á Vietnam-stríðinu svo fátt annað komst að, langtimum saman. Á sama tima var háð i Súdan mannskæð styrjöld sem aldrei var getið fremur en hún væri ekki til. Kennedymorðið var risafréttaefni á sinum tíma. Hins var naumast getið í samhengi hvers vegna Kennedy varð þjóðhetja látinn — að hann knésetti rússa í Kúbudeilunni. Af sömu sökum var Krúsjef stjakað til hliðar í Sovét. Kaninn beið ósigur i Vietnam-striðinu og það varð Nixon að falli. Watergate-innbrotið var aðeins yfirvarp. En því aðeins var það haft að yfirvarpi að það var kjörið æsifréttaefni, kjörin átylla til að losa sig við leiðtoga sem hafði ekki staðið sig. I Sovét horfðu málin gagnstætt við: Blöðin þar voru svo þakklát þessum sama forseta að þau minntust nánast aldrei á þetta ameriska stórhneykslismál. í Portúgal var Caetano steypt af stóli af sömu sökum, hann hafði tapað striði, meira að segja mörgum striðum. Næstu mánuðina var Portúgal í fréttunum fyrst á hverjum morgni og siðast á hverju kvöldi. Nú er aldrei á það minnst. Heimsfréttaaugað leikur Sherlock Holmes. Það sér aðeins hið reyfaralega, horfir með smásjárnákvæmni á aukaatriði en nefnir varla aðalatriðin. Raunar þykja þau sjaldnast frétt- næm. Hver hafði t.d. áhuga á lagalegri og þjóðréttarlegri hlið málanna i deilu islendinga og breta? Hefði deilan aldrei farið út fyrir þau huglægu svið efast ég um að næstu nágrannar okkar á Norðurlöndum hefðu tekið eftir hvað gerðist, hvað þá aðrir. Öðru máli gegndi um hark það á miðunum sem lita mátti á sem sjóhernað i smækkaðri mynd — þar eygði heimsfréttaaugað rás viðburða sem að minnsta kosti væri ómaksins vert að fylgjast með. Til hvers gat það ekki leitt? Ég nefni líka heimsmeistaraeinvigi Fishers og Spasskis. Fyrir okkar sjónum var það eins og landkynning af himnum send. Þá naut Reykja- vík þeirrar náðar að vera nefnd i heimsfréttun- um dag eftir dag um allar jarðir. Þvi fór þó fjarri að það væri ísland og Reykjavík sem heims- fréttaaugað einblindi á. Meira að segja skákin sem slik var tæpast aðalatriðið. Mergurinn málsins var sá að þarna kepptu rússi og bandaríkjamaður. Risaveldin voru að takast á. Þó þetta væri aðeins leikur þrumdi kalda stríðið á baksviðinu — fyrir augliti heimsfréttanna. Hver hefði tekið eftir þessu ef Spasskí hefði verið islendingur en Fisher færeyingur? Fréttirnar í fjölmiðlunum eru það efnið sem allur almenningur fylgist með, statt og stöðugt. Heimsfrettakerfið er orðið eins og jukebox sem æsingamenn spila á að vild. íslenskir frétta- menn eru háðir þvi eins og aðrir. Ég er sólginn i fréttir eins og hver annar og þykist þvi tala út frá nokkurri reynslu sem hlustandi og áhorf- andi. Og því læt ég ekki hjá líða að staðhæfa að við eigum ekki verri fréttamenn en aðrir, fáeina meira að segja frábæra og nefni ég þá sérstak- lega Eið Guðnason hjá Sjónvarpinu og Gunnar Eyþórsson hjá Útvarpinu. En þeir stjórna ekki heimsfréttunum. Erlendur Jónsson Krossgáta Lesbókar Morgunblaðsins Lausn á síðustu krossgátu KL (1futýuf Hinoíw IÐTU- ffNII UtóD- ul ILL- MANAÖ Hfí Fti ve'P- fliC- F/CfL 1 TÍT -s r\ -* 14 O R F -I R -* H t N N T N) Jó'km Wflur- % K Æ R D U R .T L T 'o K A Vf IKuf öt>n- L A 5 1 W M líMXO í L 'A T 'o L 4 'zifNi íeru* \f tr-1£ F d itiN AMOI 1 í) 1 N M w N 4 L L A V/TI FJ/íK F R ’A V 1 f A iLMfl? A u s 1 r 4 E R C.O/JC U O. L Æ. T 1 PÚK- ARHlfl. ’A R A R w 1 R VíTLfl SÁRWJ A 4 A y 5 JVt-'lT áuf>\ l • E L íA M M ú N A íai A R T 1 N A IA A M A ypwo<, <?£iP 1 L L S y U R 1 W N A N A KfMVT ÍTdK-fl N Æ Hr D 'A T A m J)ýR- K M < D-VíL D ú fH9.\ B Air, F L A T 1 R Ar f> APféfS H E 1 M A N A N 1 4 A £ P 1 L 1 £> íiÐfl A A ífíF'- HLT. £ L-'lK M€Ti N fA R -f/ L A A T L 1 4 A a N T I N R V*Lfl 'A R. l Ck A IA L A HV A CL A L E a T /j \ \ FISK- T£í- uNDim hM- J\£>\ M I MflLM- IR. TÉNa- IH<k NIöRV fl©\a ep. -ri >- TTÓr*S MflÐuR 'fl CiTíMM ■forní —? dr a- L£i£> \1 c \/ bF- fíod' fiÐ' f\ (L ff, HU$I Pú-Kl ÓHLilK HlXÓ£> UlTfi \ \ /' fN" \ \ . mm Hflt-fJ HrtaN- AÐAR SPQ.e i £> RENtJ-- fí M í 1 M S HAPM £LO- sr-€f>i \se^- f£&\ 'Pc? NN CÍR, emR- íókHaR MERB MflNNS MftFfvl 5rq £rr id Hjúka KfM sr Y'oPM H(?EYJ l£> $Lfíur IR \ FÆn ToHti flUVTuí? LlíLft NL DffM •Æl fl fl T(íT- oMuR fANCft' MflRK LRRfl '/V VeiK- Rl L i Pvélst S£lf>! ‘fíRfíS FNO- 1 N Fl S U R HUÚft UM Fuql- iNn MlO- STÓÐ UR (VlPiWMS- Nf\TWS HuluR INM

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.