Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1978, Síða 6
englakroppur ársins í Bandaríkjunum
í gamla daga — þaö er aö segja
á stríðsárunum, fóru menn í bíó til
þess aö sjá stjörnur frá Hollywood.
Lana Turner, Betty Grable, Judy
Garland og Joan Crawford voru nöfn
sem allir þekktu og hermennirnir
fengu myndir af þeim í stríðum
straumum til aö festa upp hjá sér í
bröggunum og baráttuandinn óx til
muna. í þá daga haföi Hollywood
einokun á stjörnum, en svo leið sú
dýrö undir lok og menn fóru að gera
því skóna, aö tímabil stjarnanna væri
aö fullu liöiö og aldrei framar yröu
myndir af ókunnugri manneskju
festar upp í bröggum og bílaverk-
stæöum um allan heim.
En sú spá hefur ekki rætzt.
Stjörnur koma og fara, en þaö
virðist vera þörf fyrir þær og
þessvegna eru þær búnar til, auglýst-
ar og seldar eins og hver annar
varningur. Nú koma stjörnur ekki
einungis úr kvikmyndaiðnaðinum,
þótt hann sé löngum drjúgur til þeirra
nota. Skemmst er aö minnast þess,
aö tízkuandlit og englakroppur númer
eitt í Bandaríkjunum síöustu árin er
sjónvarpsstjarna: Farah Fawcett
Majors. Stórar litmyndir af henni í
eggjandi stellirtgu hafa selzt eins og
heitar lummur þar í landi.
En samkeppnin er hörö á þessu
sviöi og nú er kominn nýr engla-
kroppur, sem allir góöir drengir vilja
hafa uppi á vegg í svefnherberginu
sínu. í þetta sinn er englakroþpur
ársins Ijósmyndafyrirsæta: Cheryl
Tiegs. Svo mikill er vegur hennar um
þessar mundf, aö fréttaritiö TIME birti
af henni forsíðumynd ásamt meö
grein um feril hennar og frægö.
Gagnstætt Farah Fawcett Majors,
sem gjarna er sýnd á myndum sem
hin fullþroskaða og reynda heims-
kona, er Cheryl Tiegs æskublóminn
uppmálaður. Hún er „unglingurinn í