Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Page 8
 WjlWBpPP1 w. i " iSi 1 ’eMLiilfJ •’ /Vr’" ('iúA’: ¥ L. ^ ' V.v- » * r X ' ) . & BL i - t ....* .... •* f f- J- Wmxsw, jti • *•> '>* -■, % > Verksmiðjuhúsin á Djúpuvík. I núverandi ástandi geta pau engan veginn talist hættulaus. Fossinn Eiðrofi í baksýn. Leifar af Suðurlandinu gamla sem eitt sinn flutti farpega milli Borgarness og Reykjavíkur en var síðar notaö sem vistarvera fyrir verksmiðjufólk á Djúpuvík. Bryggjan á Djúpuvík, sem ekki lítur út fy Dagstund á Djúpuvík Þeim sem aka um Noröur-Strandir í fyrsta sinn má margt verða að umhugsun- ar- og undrunarefni, að minnsta kosti varð sú reynsla undirritaðrar. Ökuleiðin sem þá er einkum átt við er nánar tiltekið frá Bjarnarfirði, framan undir Balafjöllum og áfram aö Gjögri. Þar um liggur leiðin á víxl fyrir friðsælar víkur og voga, yfir háar heiöar milli fjarða og um snarbrattar uröir og kleifar með hengiflug í sjó niður á aðra hönd en himingnæfandi bergstapa á hina. En þótt landslagiö sé mikilúðlegt og heillandi í senn, er það í sjálfu sér í engu ósamræmi viö það sem fyrir augu ber víða annarsstaðar á íslandi. Hitt er undarlegra og ekki eins algeng sjón enn sem komið er, þegar ekið er um íslensk byggðarlög, aö hér liggur akvegur svo að segja um hlaðið á hverju eyðibýlinu af öðru. Nöturleiki sá sem oftast einkennir eyöibýli er þó ekki áberandi á þessum slóðum því húsum er flestum vel viö haldið, flest nýmáluð að því er virðist, hverju sem það sætir. Ef til vill er fólkið nýflutt í burtu eða eigendur sýna eignum sínum meiri sóma hér en venjulega tíðkast um yfirgefna mannabústaði í sveitum landsins. Á Ströndum er fagurt en fámennt Leiðin liggur m.a. framhjá eyðibýlunum Asparvík og Eyjum, fyrir Eyjahyrnu og Kaldbakshorn upp af Brimnesi og áfram inn að Kleifum og Kaldbak við samnefnda vík. Fjöruborðið er þakið breiðum af rekaviði og æðarfuglinn hreiðrar búsæld- arlega um sig í eyjum og skerjum skammt utan við flæðarmálið, lambfé makrátt á beit í grænum brekkum og hlíðum. Undirlendi er takmarkað en sjávarflötur- inn blár og víður kemur þess í stað. Allmikill ferðamannastraumur er um þetta undraland en heimamenn eru allir á bak og burt. Þó fáum við sönnun fyrir því að þeim er átthagatryggð í blóð borin ekki síður en öðrum íslendingum, en einmitt um þessa tilteknu helgi eru um 60 manns að halda fjölskyldu- og átthagamót í sveitinni og hafast þar við í húsum og tjöldum. Og brátt sannfærumst við enn frekar um átthagatryggð Strandamanna. Með vegahandbók og fjórðungskort að leiöarljósi höldum viö þjóðveginn fyrir Kolbeinsvík og Byrgisvík. Þar er fátt til frásagna um horfiö mannlíf annað en grænar tóftir og á stöku stað gömul uppsátur niður við flæðarmáliö. En inni í botni Veiðileysufjarðar blasa við augum snyrtileg og vinaleg íbúðarhús, en engir eru þar íbúar fremur en annars staðar á þessari leið. Sæluhús hefur nú tekið við hlutverki gestrisinna húsráöenda á býlinu Veiðileysu um fyrirgreiðslu við vegmóða ferðamenn sem kunnu að þurfa á aðhlynningu og aðstoð að halcla áður en lagt er á brattan heiðarveg yfir til næsta fjaröar. Þaö er Reykjarfjöröur, girtur háum hamrabeltum og bröttum hlíöum. Fjallið Kambur er furöuleg náttúrusmíð, sem gengur fram milli fjaröanna. Önnur sérkenni virðist Reykjarfjörðurinn ekki geyma umfram aðra staðhætti á þessu landshorni. Síldarbræöslustööin á Djúpuvík Þess vegna bregður okkur allmjög í brún, að aka svo aö segja fyrirvaralaust inn í þyrpingu stórhýsa og nokkurt þéttbýlishverfi á þessari eyðiströnd. Við erum sem sé stödd hjá hinni margfrægu ævintýrastofnun, Síldarbræðslustöðinni á Djúpuvík. En þar heyrir ævintýrið og um leiö byggðin í þorpinu aö mestu fortíðinni til, og ber raun vitni. Steinsteypt húsbákn, leyfar verksmiðjunnar, stara galopnum gluggum í augu feröamannsins: en þau gefa um leið hugmynd um stórhuga framtak, enda mun hér hafa risið stærsta mannvirki sinnar tegundar á landinu á þeim tíma, þótt atvikin og ef til vill óhófleg bjartsýni og óforsjálni hafi sameinast um að dæma starfsemina úr leik, svo sem enn gerist. Eitt af því sem minnir á önn og umsvif á þessum stað er allstór skips- skrokkur, sem hefur endanlega hafnað á landi uppi, en er nú ekki annað en ryðbrunnin skel; þó má enn lesa nafn á skipshliöinni: Þetta er Suðurlandiö gamla, sem í eina tíð flutti farþega og annan flutning milli Reykjavíkur og Borgarness. Reyndar minnist sú sem þetta ritar að hafa á barnsaldri fariö sína fyrstu ferð út í heiminn á þeim farkosti í kringum 1930. Sú breyting sem átti sér staö með uppbyggingu og starfsemi Síldarbræðsl- unnar á Djúpuvík hefur verið svo snögg og hröö og staðið svo stutt, að helst mætti ætla að þorpsbúa hefði verið að dreyma, ef ekki væru til staðar þau verksummerki, sem líkleg eru til að standa lengur en byggðin í þorpinu, ef svo heldur sem horfir. Þótt all-nýstárlegum bjarma hafi brugðið á byggðarlagið í Djúpuvík með kvikmyndinni „Blóörautt sólarlag" svo sem skammt er að minnast, þá hefur trúlega lítil breyting oröið á lífi íbúanna á staönum frá þeim tíma. Og meöal annars af þessum ástæðum vaknar spurningin um það hvernig mannlífið gangi í reynd fyrir sig á Djúpuvík, og hvers vegna fólk flytjist ekki einfaldlega til annarra byggö- arlaga fremur en að hafast við í nábýli við niðurnídd atvinnutæki, sem að engu gagni mega koma. Hins vegar mætti einnig spyrja hvað mæli á móti því, að fólk heyi sína lífsbaráttu á Djúpuvík, fremur en á öörum byggðum bólum á landinu, og ekki síst nú, þegar þjóðvegurinn liggur um þorpið og tengir staöinn öðrum byggðum landleiðina, þann tíma ársins sem hann er akfær. Svipuð aöstaða til samgangna er ekkert einsdæmi á íslandi. Börnin á Djúpuvík vilja hvergi fremur vera Með þessa spurningu í huga leitum við fyrst svara hjá ungu kynslóðinni á staðnum og tökum tali nokkur börn og unglinga, sem sitja í hóp á gömlum vagni á auðu svæöi, einskonar Lækjartogi í miðju þorpi, en þar hefur einnig verið komið upp fyrir þau nokkurri aöstööu til boltaleikja. Þaö kemur á óvart hvað margir krakkar eru þarna saman komnir, og í Ijós kemur aö fimm systkin eru í hópnum en þó vantar eitt, því sex eru þau Verksmiðjan á Djúpuvík á blómaárunum 1935 og 36. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.